Helga Vala: Dómsmálaráðherra verður að segja af sér strax í dag

Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar telur að Sigríður Á. Andersen verði að segja af sér eftir að meiri­hluti Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins komst að þeirri nið­ur­stöðu að skipan dóm­ara bryti gegn 6. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helga­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, telur að dóms­mála­ráð­herr­ann, Sigríður Á. Andersen, verði að segja af sér strax í dag. Þetta segir í hún í sam­tali við Kjarnann eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu var ljós í morgun.

[links]Fram kom í fréttum fyrr í dag að Ísland hefði tapað Lands­rétt­ar­mál­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum en Ísland braut gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan er sú að mað­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­með­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, sem er dóm­ari við rétt­inn, var ekki skipuð í hann með lög­mætum hætt­i. Sig­ríður til­nefndi dóm­ar­ana sem skip­aðir voru í Lands­rétt og Alþingi sam­þykkti þá skip­an.

„Þetta kemur auð­vitað ekki á óvart,“ segir Helga Vala og bendir á að ákvarð­anir ráð­herra hafi mikið verið gagn­rýndar. Í fyrsta lagi nefnir hún þær ákvarð­anir dóms­mála­ráð­herra að víkja frá nið­ur­stöðum hæfn­is­nefndar án úttektar, í öðru lagi að hún hafi farið gegn ráð­legg­ingum sér­fræð­inga innan ráðu­neyt­is­ins og í þriðja lagi að greidd hafi verið atkvæði með öllum fimmtán dóm­ur­unum en ekki fyrir hvern og einn.

Annar geti vel tekið við embættinu

„Nú þurfum við að taka til og til þess verður ráð­herr­ann að fara. Hún verður að segja af sér í dag því þetta er ekki minni háttar mál. Ákvarð­anir hennar sjálfrar hafa leitt til þessa ástands sem nú er komið upp,“ segir Helga Vala en hún telur jafn­framt að emb­ættið sé stærra en Sigríður og að ein­hver annar geti vel tekið við emb­ætt­inu. Hún biðlar því til Sigríðar að bera virð­ingu fyrir emb­ætt­inu og segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár