Tæplega 25 þúsund manns standa utan trúfélaga

Enn fækk­aði í þjóð­kirkj­unni á síð­asta ári. Kaþ­ólikkum hefur hins vegar fjölgað hratt sam­hliða fjölgun erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis. En mesta aukn­ingin er á meðal þeirra sem skrá sig utan trú- og líf­skoð­un­ar­fé­laga.

Sífellt fleiri Íslendingar velja að standa utan trú- og lífsskoðunarfélaga.
Sífellt fleiri Íslend­ingar velja að standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi þeirra íbúa á Íslandi sem skráðir eru utan trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­laga hefur vel rúm­­lega tvö­­fald­­ast frá því í byrjun árs 2009, eða á ára­tug. Þá voru þeir sem voru skráðir utan slíkra félaga 9.306 tals­ins. Um síð­­­ustu ára­­mót var sú tala komin upp í 24.871. Á síð­asta ári einu saman fjölg­aði þeim sem skráðir eru utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga um rúm­lega 2.300. Því er lang­mest aukn­ing á skrán­ingum hér­lendis á meðal þeirra sem skrá sig utan trú­fé­laga.

[links]Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóð­skrár Íslands um skrán­ingar í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru alls 232.646 ein­stak­lingar skráðir í íslensku þjóð­kirkj­una. Þeim fækk­aði um 26 í jóla­mán­uð­inum. Þjóð­kirkjan er áfram sem áður lang­fjöl­menn­asta trú­fé­lag lands­ins með 65,2 pró­sent lands­manna inn­an­borðs. Það þýðir því að 34,8 pró­sent þjóð­ar­innar er utan þjóð­kirkju, eða um 124.173 manns. [adspot]Aldrei hafa verið fleiri lands­menn utan þjóð­kirkj­unnar, en frá árinu 2009 hefur með­limum hennar fækkað á hverju ári. Alls hefur þeim fækkað um 20.190 frá þeim tíma. Um ald­ar­mót voru rétt um 90 pró­sent allra lands­manna í þjóð­kirkj­unni.

Kaþólikkum fjölgar hratt

Miklar breyt­ingar hafa einnig átt sér stað í öðrum trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum á und­an­förnum árum. Næst fjöl­menn­asta trú­fé­lag lands­ins er Kaþólska kirkjan en í henni voru 13.991 manns um nýliðin ára­mót. Í byrjun árs 2009 voru 9.281 manns skráðir í hana. Þeim hefur því fjölgað um 73 pró­sent á tíu árum. Þessi aukn­ing hefur átt sér stað sam­hliða mik­illi fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, en stærstu hóp­arnir sem hingað flytja koma frá löndum þar sem staða Kaþólsku kirkj­unnar er sterk. Þar munar mest um Pólverja, sem eru fjöl­menn­asta hóp erlendra rík­is­borg­ara sem búsettur er á Íslandi. Í byrjun árs 2009 bjuggu 11.611 slíkir á Íslandi en í byrjun des­em­ber 2018 var sá fjöldi kom­inn upp í 19.190.

Frí­kirkjur lands­ins hafa einnig bætt við söfn­uði sína á und­an­förnum árum. Frí­kirkjan í Reykja­vík telur nú 9.874 (aukn­ing um 25 pró­sent frá 2009) með­limi og Frí­kirkjan í Hafn­ar­firði 6.983 (aukn­ing um 33 pró­sent frá 2009).

Alls eru 4.472 íbúar lands­ins skráðir í Ása­trú­ar­fé­lag­inu. Fjöldi þeirra sem aðhyll­ast þá trú hefur marg­fald­ast á síð­ast­liðnum ára­tug, en með­limir voru alls 1.275 í byrjun árs 2009. Þeir hafa því 3,5fald­ast á tíma­bil­inu.

Mikil fjölgun hjá Siðmennt en fækkar hratt hjá Zúistum

Siðmennt, sem hefur verið skráð trú­fé­lag frá árinu 2013, hefur einnig vaxið ásmegin ár frá ári. Í byrjun árs 2014 voru 612 ein­stak­lingar skráðir í líf­skoð­un­ar­fé­lagið en nú eru með­limir þess 2.840 tals­ins. Með­lima­fjöld­inn hefur því nálægt fimm­fald­ast á örfáum árum.

[adspot]Þeim sem skráðir eru í trú­fé­lög múslima á Íslandi hefur einnig fjölgað mjög á und­an­förnum árum. Árið 2009 voru 404 manns skráðir í Félag múslima á Íslandi. Í byrjun árs 2019 voru þeir orðnir 552 tals­ins en frá 2010 hafa verið tvö trú­fé­lög múslima hér­lend­is. Hitt, Menn­ing­ar­setur múslima, var með 393 með­limi skráða í byrjun árs.

Það trú­fé­lag sem hefur vakið eina mesta athygli á und­an­förnum árum eru Zúistar. Þeir voru tveir árið 2014 en fjöldi þeirra rauk upp í rúm­lega þrjú þús­und í byrjun árs 2016, eftir að hópur manna taldi sig hafa tekið yfir félagið og ætl­aði að end­ur­greiða fólki þau sókn­ar­gjöld sem inn­heimt yrði vegna þeirra. Síðan stóð yfir ára­löng bar­átta milli þess hóps og þeirra aðila sem áður höfðu farið með yfir­ráð í félags­skapn­um. Sú bar­átta end­aði með sigri hinna síð­ar­nefndu. Hratt hefur fjarað undan félag­inu síðan en skráðir með­limir nú eru 1.604 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár