Ragnar Þór pantar sér gult vesti

Formaður VR segir að ekk­ert sé að marka kosn­inga­lof­orð stjórn­mála­manna því þeir virð­ist ein­göngu hafa hug­sjónir og drif­kraft í að breyta á fjög­urra ára fresti, og þá aðeins í nokkra daga.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Samsett mynd

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur pantað sér gult vesti sem vísar til mót­mæl­anna í Frakk­landi. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á facebook-síðu sinni í dag.

Mót­mæli „gulu vest­anna“ hóf­ust fyr­ir fjórum vik­um í Par­ís en þá flykkt­ist fólk út á göt­ur til að mót­mæla hækk­un­um á elds­neyt­is­skött­um. Upp­haf þeirra má rekja til hækk­un skatta á elds­neyti en mót­mæl­in hafa breyst í al­menn mót­mæli gegn for­seta Frakk­lands, Emm­anu­el Macron.

„Kjörnir full­trúar stunda hrossa­kaup á börum bæj­ar­ins, eru upp­vísir af ósæmi­legri hegðun, jafn­vel kyn­ferð­is­legri áreitni. Stjórn­völd lækka veiði­gjöld og hækka fram­lög til stjórn­mála­flokka. Þjóð­ar­sjóður skal stofn­aður fyrir ein­hverja dek­ur­kálfa að gambla með. Kjararáð hækkar kjör þeirra um tæp­lega helm­ing um leið og ekk­ert svig­rúm er til kerf­is­breyt­inga eða kjara­bóta fyrir þjóð­ina. Skýrsla um hvít­þvott fjár­mála­kerf­is­ins segir okkur að vanda betur valið á þeim sem fá bank­ana í hend­urnar næst. Upp­bygg­ing inn­viða verða svo fjár­magn­aðir með gjald­töku,“ segir Ragnar í færsl­unni.

Hann bætir því við að ekk­ert sé að marka kosn­inga­lof­orðin eins og venju­lega því stjórn­mála­menn virð­ist ein­göngu hafa hug­sjónir og drif­kraft í að breyta á 4 ára fresti, og þá aðeins í nokkra daga. Í milli­tíð­inni séu þau kyrfi­lega læst í neðstu skúffu rík­is­stjórn­ar­innar með stórum bunka spill­ing­ar­mála, panama­skjala og nýju stjórn­ar­skráni.

Ragnar spyr í lok færsl­unnar hvort hann eigi að panta fleiri vesti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár