Vonandi „kveikja þær ekki sömu elda“ með þjóðernishyggjunni

Ítarlega er fjallað um efna­hags­málin í Evrópu í útgáfu Vís­bend­ingar sem kemur til áskrif­enda á föstu­dag­inn.

Ítarlega er fjallað um stöðu efna­hags­mála í Evrópu í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, sem kemur til áskrif­enda á morgun, föstu­dag. Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, skrifar um stöðu mála í Evrópu, ekki síst í fjár­mála­kerf­inu, en blikur eru nú á lofti, ekki síst í Suður-Evrópu.

„Reynslan hefur leitt í ljós að sam­eig­in­legur mark­aður með fjár­magn, þar sem bankar lána óhikað yfir landa­mæri, krefst sam­eig­in­legra reglna um upp­gjör þrota­búa þar sem kveðið er á um hver bíði tjón af gjald­þroti banka. Æskilegt er að lán­ar­drottnar taki á sig hluta af tjón­inu en skuld­sett ríki séu ekki þvinguð til þess að bera alla byrði af end­ur­greiðslu skulda. Greiðslu­fall ítal­skra banka í kjöl­far verð­falls á ítölskum rík­is­skulda­bréfum myndi hafa slæm áhrif fyrir lána­bækur franskra og þýskra banka og sjóðir ESB eru ekki nógu stórir til þess að bjarga rík­is­sjóði Ítalíu. Mun því reyna mjög á það næstu mán­uði hvort Evrópski seðla­bank­inn heldur áfram að halda niðri vöxtum á rík­is­bréfum þótt ríks­stjórn Ítalíu auki halla­rekstur sinn.

Við þessi vand­ræði bæt­ist aukið fylgi þjóð­ern­is­sinn­aðra flokka til hægri og vinstri sem sjá minni hag í milli­ríkja­sam­starfi, sam­eig­in­legum vinnu­mark­aði og alþjóð­legum við­skiptum. Þær kyn­slóðir sem komu svo miklu í verk við að end­ur­reisa Evrópu eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina og höfðu áður orðið vitni að skelfi­legum aleið­ingum þjóð­ern­is­hyggju á fjórða og fimmta tug ald­ar­innar eru nú að hverfa og nýjar kyn­slóðir taka við. Vonandi munu þær ekki kveikja sömu elda og brunnu á tutt­ug­ustu öld­inni,“ segir meðal ann­ars í greint Gylfa.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár