Afkoma Arion banka undir væntingum en batnar milli ára

Banka­stjóri Arion banka segir upp­gjör bank­ans á þriðja árs­fjórð­ungi markast af falli Primera Air.

Hagnaður sam­stæðu Ari­on banka á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 nam 1,1 millj­arði króna sam­an­borið við 0,1 millj­arðs króna tap á sama tíma­bili 2017.

Fall Primera Air hafði nei­kvæð áhrif á rekstur bank­ans, og þurfti hann að færa niður eignir vegna þess.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka vegna rekst­urs bank­ans á þriðja árs­fjórð­ungi. Arion banki er skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð.

Afkoman er sögð undir vænt­ingum.

Arðsemi eig­in fjár var 2,3 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, sem telst lítil arð­semi í alþjóð­legum sam­an­burði. Nei­kvæða arð­semi var upp á 0,2% á sama tíma­bili árið 2017.

Heild­ar­eign­ir námu 1.219,5 millj­örðum króna í lok sept­em­ber 2018, sam­an­borið við 1.147,8 millj­arða króna í árs­lok 2017 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 199,3 millj­örðum króna, sam­an­borið við 225,6 millj­arða króna í árs­lok 2017. Ari­on banki greiddi 10 millj­arða króna í arð í lok sept­em­ber 2018.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 21,7% í lok sept­em­ber en var 24,0% í árs­lok 2017.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri, að félagið sé nú með dótt­ur­fé­lagið Valitor í sölu­ferli, og unnið sé að því í sam­starfi við erlendan fjár­fest­inga­banka. „Valitor heldur áfram að vaxa erlendis en fyr­ir­tækið býður við­skipta­vinum sínum á Norð­ur­löndum og í Bret­landi fjöl­breyttar lausnir á sviði greiðslu­miðl­unar. Stefnu­mótun varð­andi fram­tíð­ar­eign­ar­hald Valitor er lokið og vinnur bank­inn að því að fá til liðs við sig alþjóð­legan fjár­fest­ing­ar­banka til að aðstoða við sölu félags­ins, að hluta eða í heild. Gera má ráð fyrir að ákvörðun um næstu skref verði kynnt á næst­unni,“ segir Hösk­uldur í til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ingu bendir Hösk­uldur einnig á að innan Arion banka hafi verið unnið ötul­lega að jafn­rétt­is­málum, bæði hvað varðar launa­stefnu og kynja­hlut­föll í stjórn, og sé staðan nú þann­ing, að bank­inn sé í fremstu röð sam­bæri­legra fyr­ir­tækja á Norð­ur­löndum. „Á und­an­förnum árum hefur verið rík áhersla á jafn­rétt­is­mál innan bank­ans með góðum árangri. Arion banki varð nýverið fyrsti bank­inn og jafn­framt eitt stærsta fyr­ir­tækið sem fengið hefur heim­ild til að nota Jafn­launa­merki vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Arion banki inn­leiddi fyrst jafn­launa­kerfi í starf­semi sína árið 2015 og fékk í kjöl­farið Jafn­launa­vottun VR. Jafn­launa­kerfið er mik­il­vægt stjórn­tæki og stuðlar að því að starfs­fólki, sem vinnur jafn­verð­mæt störf, sé ekki mis­munað í launum. Við höfum einnig unnið að því að jafna kynja­hlut­föll í stjórn­enda­hópi bank­ans. Nú þegar bank­inn hefur verið skráður í kaup­höll­ina í Stokk­hólmi þá er ánægju­legt að sjá að við erum nokkuð fram­ar­lega á þessu sviði miðað við önnur félög í þeirri kaup­höll. Á nýjum lista sem gef­inn er út af All­Bright, sem er sænsk stofnun sem hefur það meg­in­mark­mið að stuðla að auknu jafn­rétti í við­skipta­líf­inu, er Arion banki í 17. sæti af 329 fyr­ir­tækjum, sem eru skráð í kaup­höll­inni í Stokk­hólmi, þegar kemur að jöfnum hlut­föllum kynj­anna í hópi stjórn­enda. Við munum halda áfram á þess­ari braut með það að mark­miði jafna enn frekar stöðu kynj­anna innan bank­ans,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár