Dagur sér ekki fyrir sér afsögn borgarstjóra vegna braggamálsins

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík segir Morg­un­blaðs­arm Sjálf­stæð­is­flokks­ins bera ábyrgð á því að mál­flutn­ingur um afsögn hans sé hávær. Hann er gestur sjón­varps­þátt­ar­ins 21 á Hring­braut í kvöld.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, sér ekki fyrir sér að hann muni segja af sér emb­ætt­inu vegna bragga­máls­ins svo­kall­aða. Á end­anum sé það þó ekki bara hans að svara þeirri spurn­ingu. [links]Hávær krafa hefur verið um það úr ranni hluta þeirra flokka sem eru í minni­hluta í borg­ar­stjórn að Dagur axli ábyrgð vegna máls­ins og segi af sér. Hann segir þann mál­flutn­ing fyrst og síð­ast koma úr einni átt. „Þetta er mál­flutn­ingur sem Morg­un­blaðs­armur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur haldið á lofti, ekki bara í þessu máli heldur hefur þetta verið nefnt óvenju­oft í tengslum við ýmis­legt.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, við Dag í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur verður í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Bragginn í Naut­hóls­vík hefur valdið fjaðrafoki síð­ast­liðnar vikur þar sem kostn­aður við fram­kvæmdir end­ur­gerðar hans fóru langt fram úr áætlun. Kostn­aður við fram­kvæmd­irnar nemur nú rúm­lega 400 millj­ónum króna en upp­haf­lega var gert ráð fyrir að hann yrði 158 millj­ónir.

Hæsti reikn­ing­ur­inn við fram­kvæmd­irn­ar hljóð­aði upp á 105 millj­ón­ir króna og gras­strá sem gróður­sett voru í kring­um bygg­ing­una kost­uðu 757 þús­und krón­ur. Fram­kvæmdum er enn ólokið en tölu­verð vinna er eft­ir í við­bygg­ing­unni, þar sem til stend­ur að opna frum­kvöðla­setur. Fram­kvæmdin er nú til skoð­unar hjá innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar.

[adspot]Í þætt­inum í kvöld segir Dagur, sem verið hefur í veik­inda­leyfi und­an­farnar vikur en snéri aftur til starfa í upp­hafi viku, einnig að stans­lausar kröfur um afsögn sé nýr tónn í borg­ar­stjórn. „Að hvað sem aflaga fer þá eigi borg­ar­stjóri að fara frá. Þetta mál [bragga­málið] er nú hjá innri end­ur­skoðun. Við erum að fara yfir það. Ég kveinka mér ekk­ert undan því að mín ábyrgð eða ann­arra verði rædd þegar nið­ur­stöð­urnar liggja fyrir. En mér finnst þetta dæmi um mál sem eru mik­il­væg, alvar­leg, fara svo­lítið fljótt ofan í póli­tískar skot­grafir áður en að öll kurl eru komin til grafar. Og ég er ekki viss um það að nota stór orð áður en gögnin liggja á borð­inu sé skyn­sam­leg leið til þess að nálg­ast umræðu yfir höfuð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár