Yfir 100 milljarða útlánavöxtur Landsbankans á árinu

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 15,4 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 15,4 millj­arða króna á fyrstu 9 mán­uðum árs­ins, en útlána­aukn­ing nam 112,4 millj­örðum króna, sem er um 12,1 pró­sent aukn­ing milli ára. Það er aukn­ing sem er umtals­vert umfram hag­vöxt, en spár gera ráð fyrir 3 til 4 pró­sent hag­vexti á þessu ári.

Íslenska ríkið er eig­andi bank­ans að mestu leyti, eða rúm­lega 98 pró­sent. Frá árinu 2013 hefur bank­inn greitt 131,7 millj­arða króna í arð.

Heild­ar­eignir Lands­bank­ans, sem að uppi­stöðu til eru útlán, juk­ust umtals­vert milli ára en þær nema nú 1.317 millj­örðum króna. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans var á fyrr­nefndu tíma­bili 45 pró­sent.

Eigið fé bank­ans er 235,9 millj­arðar og eig­in­fjár­hlut­fallið 24,8 pró­sent. Lág­marks­eig­in­fjár­hlut­fall Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er 20,5 pró­sent.

Innlán hjá Lands­bank­anum hafa á þessu ári auk­ist um meira en 14,5 pró­sent, eða sem nemur um 87,5 millj­örðum króna.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, fagnar rekstr­ar­nið­ur­stöð­unni, í til­kynn­ingu. „Á árinu hafa bæði útlán og inn­lán hjá bank­anum auk­ist umtals­vert og í ágúst síð­ast­liðnum styrkt­ist fjár­mögnun bank­ans enn frekar með útgáfu fyrsta víkj­andi skulda­bréfs­ins. Þessi útgáfa er mik­il­væg varða á leið bank­ans að yfir­lýstu 10% arð­sem­is­mark­miði en jafn­framt skiptir miklu máli að árangur af rekstri verði áfram góður. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins er 45% og í krónum talið er kostn­aður áþekkur því sem hann var á sama tíma­bili árið 2017. Við munum áfram vinna að því að auka skil­virkni í rekstri og nýta öll tæki­færi til að draga úr kostn­aði. Það sem af er ári og sér í lagi á þriðja árs­fjórð­ungi hefur staða á verð­bréfa­mörk­uðum verið erfið en fyrir því eru ýmsar ástæður. Lands­bank­inn er við­skipta­vaki fyrir fjöl­mörg íslensk fyr­ir­tæki og stuðlar þannig að eðli­legri verð­myndum og selj­an­leika á mörk­uðum fyrir íslenska fjár­festa, hvernig sem árar. Á heild­ina litið er Lands­bank­inn í sterkri stöðu, með gott eigið fé, vel fjár­magn­aður og vel í stakk búinn til að takast á við breyt­ingar í umhverf­inu,“ segir Lilja Björk.

Rekstr­ar­tekjur Lands­bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018 námu 41,1 millj­arði króna sam­an­borið við 41,6 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Aðrar rekstr­ar­tekjur námu 3,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 5,9 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður, sem er 36% lækkun. Óhag­stæðar aðstæður á verð­bréfa­mörk­uðum eru helsta skýr­ing lækk­un­ar­innar, segir í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár