Leggja til að öll birting á álagningu skatta og gjalda verði rafræn

Talið er að með raf­rænni til­kynn­ingu um álagn­ingu skatta og gjalda munu rík­is­út­gjöld lækka um 120 millj­ónir króna á ári.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála og efna­hags­ráð­herra lagði fram nýtt frum­varp um raf­ræna birt­ingu á álagn­ingu skatta og gjalda. Í því felst að raf­ræn birt­ing verður meg­in­reglan þegar kemur að birt­ingu til­kynn­inga um álagn­ingu skatta og gjalda. Samkvæmt frum­varp­inu er þetta gert til að minnka rík­is­út­gjöld og auka hag­ræð­ingu.

Í frum­varp­inu segir að raf­rænar til­kynn­ingar hafi jákvæð fjár­hags­leg áhrif í för með sér fyrir ríki og sveit­ar­fé­lög. En með því að falla frá skrif­legum til­kynn­ingum um álagn­ingu skatta og gjalda þá er talið að útgjöld rík­is­ins drag­ist saman um 120 millj­ónir króna á ári. Sú upp­hæð er sam­an­lagður kostn­aður rík­is­að­ila af póst­burð­ar­gjöldum.

Óbein áhrif af breyt­ing­unum eru einnig jákvæð fjár­hags­lega, svo sem minna umstang við umsýslu skjala, betra aðgengi að gögnum og hag­kvæm­ari vistun af hálfu álagn­ing­ar­að­ila, ein­stak­linga og lög­að­ila, segir í frum­varp­inu. Einnig er raf­ræn birt­ing almennt mun ein­fald­ari í fram­kvæmd en bréfa­send­ingar. Samkvæmt því sem segir í frum­varp­inu þá hafa allir skatt­greið­endur hags­muni af þessum breyt­ingum.

Liður í rafrænni stjórnsýslu.

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar er lögð áhersla á bættan rík­is­rekstur og ein­földun reglu­verks í þágu atvinnu­lífs og almenn­ings. Til að fylgja því eftir kom einnig fram að stefnt sé að öfl­ugri raf­rænni stjórn­sýslu og fjöl­breyttum mögu­leikum á sjálfs­af­greiðslur fyrir gjald­endur.

Í júní síð­ast­liðnum var gerð breyt­ing á birt­ingu til­kynn­inga um álagn­ingu bif­reiða­gjalda. Breyt­ingin fólst í því að 205 þús­und ein­stak­lingar fengu raf­ræna til­kynn­ingu í póst­hólfið á Ísland.is en ekki með bréf­pósti eins og áður hefur tíðkast og 60 þús­und lög­að­ilar fengu sendan raf­rænan reikn­ing. Hægt var að óska eftir því hjá þjón­ustu­veri toll­stjóra að fá seð­il­inn sendan heim á papp­írs­formi. Breyt­ingin var aug­lýst í blöðum, á vef­miðlum og með útvarps­aug­lýs­ingum. Hvað inn­heimt­una varðar var inn­heimtu­hlut­fallið 20. ágúst síð­ast­lið­inn örlítið betra en á sama tíma í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fjár­sýsl­unni.

Í frum­varp­inu segir enn fremur að Ísland sé í kjör­stöðu þegar kemur að hag­nýt­ingu upp­lýs­inga­tækni við veit­ingu opin­berrar þjón­ustu. Tækni­legir inn­viðir séu allir til staðar og aðgengi og notkun lands­manna á upp­lýs­inga­tækni með því besta sem ger­ist.

Tækifæri til hagræðingar

Í stjórn­sýslu­lögum er svokölluð birt­ing­ar­regla, þ.e. að birta beri aðila máls efni ákvörð­unar sem bindur enda á stjórn­sýslu­mál. Ákvarð­anir um álagn­ingu skatta og gjalda eru taldar íþyngj­andi og því eru þær jafnan til­kynntar skrif­lega hvort sem kveðið er á um slíkan birt­ing­ar­hátt í sér­lögum eða ekki. Í því ljósi og með hlið­sjón af breyt­ingum sem hafa orðið með auknum tækni­fram­förum er tæki­færi til hag­ræð­ingar fyrir hendi þegar kemur að útsend­ingu til­kynn­inga um álagn­ingu skatta og gjalda, sam­kvæmt því sem kemur fram í frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár