Davíð Helgason hvetur fólk til að segja skilið við Danske Bank

Frum­kvöð­ull, búsettur í Danmörku, hættir við­skiptum við Danske bank eftir að bank­inn var ásak­aður um pen­inga­þvætti.

Davíð Helgason
Davíð Helgason Mynd: Samsett mynd

Davíð Helgason, stofn­andi og eig­andi Unity Technologies sem fram­leiðir verk­færi fyrir tölvu­leikja­fram­leið­endur, greinir frá því á Facebook-síðu sinni í dag að hann sé hættur við­skiptum við Danske bank. Hann hvetur aðra til að gera slíkt hið sama.

Danske ­bank er ásak­aður um að hafa stundað pen­inga­þvætti fyr­ir­ u.þ.b. 890 millj­arða íslenskra króna í gegnum úti­búið sitt í Eist­landi. Kjarninn fjall­aði um málið á dög­unum.

Ásök­un­in, sem teng­ist hinu svo­kall­aða Magnit­ski­j-­máli, snýr að starf­semi úti­bús D­anske ­bank í Eist­landi. Úti­búið átti að hafa tekið á móti stórum fjár­hæðum frá erlendum við­skipta­vin­um, mörgum hverjum frá löndum sem hafa veikar varnir gegn pen­inga­þvætti, líkt og Rúss­landi, Mold­óvu og ­Az­er­bai­j­an.

Bank­inn bauð upp á þjón­ustu til erlendra við­skipta­vina allt til árs­ins 2015 en byrj­aði að draga úr starf­sem­inni tveimur árum fyrr eftir að grun­semdir vökn­uðu í kjöl­far skýrslu frá inn­an­búð­ar­mönnum árið 2013. Stuttu seinna hóf bank­inn eigin rann­sókn á mál­inu. Eftir tölu­verða fjöl­miðlaum­fjöllun um málið jók bank­inn umfang rann­sókn­ar­innar síð­ast­lið­inn sept­em­ber og skoð­aði færslur við­skipta­vina frá árinu 2007.

Danske bank svarar Davíð

Davíð segir að bank­inn hafi þjón­u­stað hann vel og hafa hann verið ánægður með þá þjón­ustu. Hann bendir aftur á móti á að stjórn­endur ættu ekki aðeins að tryggja að farið sé að lögum heldur að starf­semin geti litið dags­ins ljós. Hann telur að bank­anum ekki hafa tek­ist það og hættir því við­skiptum við hann.

Hann segir í lok stöðu­upp­færsl­unnar að ef aðeins ein mann­eskja sem hann þekkir hætti hjá Danske bank í kjöl­far hennar þá verði hann ánægður.

Starfs­maður Danske bank svarar Davíð á þræði við færslu hans en í því svari kemur fram að þeim þyki leitt að hann vilji ekki vera við­skipta­vinur hjá þeim lengur. Starfs­mað­ur­inn segir að bank­inn taki málið og ábyrgð þeirra að koma í veg fyrir pen­inga­þvætti alvar­lega. Þau von­ist til að hann end­ur­skoði ákvörðun sína.

Davíð er sonur Sigrúnar Dav­íðs­dóttur, frétta­konu RÚV, og hálf­bróðir Egils Helga­sonar fjöl­miðla­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár