Héraðsdómur hafnar kröfur um kyrrsetningu á eignum Valitors

Julian Assange er stærsti eig­andi félags sem gerir háa kröfu á Valitor.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur hafnað kyrr­setn­ing­ar­kröfu Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) á eignum Valitor.

Í til­kynn­ingu frá Valitor segir að þessi nið­ur­staða komi ekki á óvart. „Ákvörð­unin kemur ekki óvart enda telur Valitor að kyrr­setn­ing­ar­krafan hafi ekki átt við nein rök að styðj­ast, auk þess sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði áður hafnað sömu kröfu. Valitor vill jafn­framt nota tæki­færið til að vísa á bug sögu­burði í fjöl­miðlum þess efnis að lög­maður Datacell og SPP hafi átt í ein­hvers konar samn­inga­við­ræðum við Valitor um upp­gjör á kröfum þess­ara fyr­ir­tækja á hendur félag­inu. Engar slíkar við­ræður hafa átt sér stað,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá er enn fremur bent á það, að stærstur hluti krafna fram­an­greindra félaga á hendur Valitor sé í eigu Julian Assange, for­sprakka Wikileaks.

Í til­kynn­ingu segir að félag Assange hafi aldrei átt í neinu við­skipta­sam­bandi við Valitor. „Vert er að benda á að langstærstur hluti krafna fram­an­greindra félaga á hendur Valitor, eða um 95%, er krafa SPP sem er að lang­mestu leyti í eigu Julian Assange. Það félag hefur aldrei átt í neinu við­skipta­sam­bandi við Valitor. Auk þess hefur félagið aldrei haft nema hverf­andi tekjur en gerir samt millj­arða kröfur á hendur fyr­ir­tæk­inu. Valitor hefur frá upp­hafi talið að eng­inn grund­völlur sé fyrir kröfu­gerð SPP og hefur því ítrekað hafnað henni. Auk þess er vert að minna á að eng­inn dómur hefur fallið um kröfu­gerð SPP,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár