Saga ÁTVR kostaði 22 milljónir króna

Það tók þrettán ár að rita bók um fyrst 90 árin í sögu ÁTVR. Kostn­að­ur­inn er 53 pró­sent yfir upp­haf­legri kostn­að­ar­á­ætlun.

Heild­ar­kostn­aður við ritun bókar um fyrstu 90 árin í sögu Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) var um 22 millj­ónir króna. Frá þessu er greint í frétt sem birt­ist á vef fyr­ir­tæk­is­ins í gær. Höfundar bók­ar­innar, sem kall­ast „Engin venju­leg verslun“, eru þrír; þau Hildigunnur Ólafs­dóttir, Sum­ar­liði R. Ísleifs­son og Sverrir Jak­obs­son. ÁTVR er í eigu íslenska rík­is­ins.

Þrettán ár eru síðan að ritun bók­ar­innar hófst. Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um hversu mikið verk­efnið hefði kostað í lok apríl. Þá vildu stjórn­endur ÁTVR ekki upp­lýsa um það og sögð­ust ætla að gera það með frétt á heima­síðu sinni í nán­ustu fram­tíð.

Í upp­haf­legri kostn­að­ar­á­ætlun frá árinu 2006 var gert ráð fyrir að kostn­aður við ritun og útgáfu sög­unnar væri 14,4 millj­ón­ir. Nú hefur verið opin­berað að end­an­legur kostn­aður sé 22 millj­ónir króna, sem er 53 pró­sent yfir upp­haf­legum kostn­aði. Í svari ÁTVR við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að greiðslur til höf­unda voru 16 millj­ónir af kostn­aði við útgáfu.

Í frétt á heima­síðu ÁTVR um útgáfu bók­ar­innar segir að tafir hafi orðið á útgáf­unni vegna þess að ákveðið var að sagan spann­aði lengra tíma­bil í sögu ÁTVR en upp­haf­lega var lagt upp með og að tíma­frekt hefði reynst að finna rétt­hafa mynda sem birt­ust í bók­inni. Þar segir einnig að saga ÁTVR sé fram­lag til sögu lands og þjóðar.

Rafræn útgáfa af bók­inni er komin í birt­ingu á vef ÁTVR, vin­bu­din.is. Bókin fer svo í almenna lausa­sölu hjá Pennanum á næstu vikum og verður aðgengi­leg á helstu bóka­söfnum lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár