Forstjóri LSH: Staðan er óásættanleg, semjið!

For­stjóri Land­spít­al­ans segir ekki ásætt­an­legt að heima­þjón­usta við sæng­ur­konur og nýbura sé í upp­námi.

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, segir að það sé algjör­lega óásætt­an­legt að heima­þjón­usta við sæng­ur­konur og nýbura liggi niðri þar sem samn­ingur ljós­mæðra við Sjúkra­trygg­ingar rann út.

Þær hafa unnið sjálf­stætt sem verk­takar á grunni samn­ings­ins. Eins og kunn­ugt er hafa ljós­mæður átt harðri bar­áttu um kjara­bætur und­an­farna mán­uði, en ekki hefur tek­ist að ná saman við Sjúkra­trygg­ingar Íslands vegna fyrr­nefndrar þjón­ustu.

Í pistli á heima­síðu Land­spít­al­ans segir Páll að hann geti ekki lagt nægi­lega þunga áherslu á að samn­ingar náist. „Í byrjun vik­unnar hættu ljós­mæður sem sinnt hafa heima­þjón­ustu við sæng­ur­konur og nýbura þeirri þjón­ustu í kjöl­far þess að samn­ingur þeirra við Sjúkra­trygg­ingar Íslands er runn­inn út og ekki hefur samist að nýju. Ég get ekki lagt nægi­lega þunga áherslu á að samn­ingar náist hið allra fyrsta. Þjónusta ljós­mæðra við fjöl­skyldur í heima­húsum er afar mik­il­vægur þáttur í við­kvæmri þjón­ustu­keðju sem nú hefur verið rofin. Við höfum við þessar aðstæður hafið sam­starf við Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæðs­ins um breytta en skerta þjón­ustu við þennan hóp. Það er ekki ásætt­an­legt, hvorki til lengri né skemmri tíma. Semjið!,“ segir Páll í pistli sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár