Lilja Mósesdóttir ræðir forystudýrkun í VG: „Ég var „Ömmuð““

Fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna seg­ist hafa verið notuð í atkvæða­smölun, en orðið fyrir per­són­u­árásum. Hún hafi þurft að flytja úr landi eftir þing­mennsku til að vera metin að verð­leikum.

Lilja Mósesdóttir ræðir forystudýrkun í VG: „Ég var „Ömmuð““
Lilja Mós­es­dóttir Þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi segir leynd­ar­hyggju hafa ríkt innan raða Vinstri grænna. Mynd: Geirix / Pressphotos.biz

Lilja Mós­es­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, segir að hún hafi orðið fyrir per­són­u­árásum innan þing­flokks­ins og þurft að flytja af landi brott eftir þing­setu til að eiga mögu­leika á að vera metin að verð­leikum.

Þetta kemur fram í nýrri bók sem kemur út í til­efni af tutt­ugu ára afmæli Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs. Bókin ber tit­il­inn „Hreyfing rauð og græn“ og er eftir Pétur Hrafn Árnason sagn­fræð­ing. Í henni er saga VG rakin frá upp­hafs­árum flokks­ins til núver­andi stöðu sem leið­andi flokks í rík­is­stjórn.

Í bók­inni eru ýmsar frá­sagnir frá áhrifa­fólki úr flokknum í gegnum tíð­ina. Lilja sat á þingi frá 2009 til 2013, en hún og Atli Gíslason sögðu sig bæði úr þing­flokki VG þegar kjör­tíma­bilið var hálfnað. „Ég kem af miklu sjálf­stæð­is­fólki en var sjálf alltaf vinstrisinnuð,“ er haft eftir Lilju í bók­inni. „Áður en ég gekk til liðs við VG hafði ég aðeins tekið þátt í starfi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár