Virði skráðra félaga nú um 30 prósent af landsframleiðslu

Íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn nemur nú 798,2 millj­örðum króna, sé miðað við mark­aðsvirði skráðra félaga á aðal­l­ista kaup­hall­ar­innar.

Mark­aðsvirði félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands er nú 798,2 millj­arðar íslenskra króna, miðað við loka­gengi mark­aða í dag.

Það er upp­hæð sem nemur ríf­lega 30 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu sem var um 2.555 millj­arðar króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Hagstofu Íslands.

Mark­aðsvirði félaga á aðal­l­ista í kaup­höll­inni hefur farið minnk­andi, sé horft fyrir mark­að­inn í heild und­an­farna sex mán­uði.

Munar þar mestu um að Össur fór af mark­aði á Íslandi í des­em­ber í fyrra og eru bréf félags­ins nú ein­ungis til við­skipta á mark­aði í Kaup­manna­höfn. Össur var um 170 millj­arða virði, þegar félagið fór útaf íslenska mark­aðnum, en danskir hlut­hafar eru stærstu eig­endur þess. Þar stærstur er William Demant Holding, sem á tæp­lega helm­ings­hlut í félag­inu.

Verð­mætasta félagið á Íslandi er Marel, en mark­aðsvirði þess er nú 255 millj­arðar króna. Næst verð­mætasta félagið er Icelandair en virði þess er rúm­lega 70 millj­arðar króna.

Ódýrasta félagið er Origo, áður Nýherji, en virði þess er nú 11,2 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár