Afhjúpun Channel 4 beinir spjótunum enn meira að Cambridge Analytica

Frétta­menn Channel 4 beittu földum mynda­vélum til að afhjúpa vinnu­brögð Cambridge Analytica.

Afhjúp­andi umfjöllun bresku sjón­varps­stöðv­ar­innar Channel 4, um vinnu­brögð grein­ingar- og ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Cambridge Analytica hefur beint spjót­unum enn meira að fyr­ir­tæk­inu sem áhrifa­valds á hinu póli­tíska sviði víða um heim.

Í þætt­inum sem sýndur var í gær, kom fram hjá for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins að ýmsum brögðum væri beitt gegn póli­tískum and­stæð­ingum þeirra sem fyr­ir­tækið væri að vinna fyrir, og kom fram í máli for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins að þar á meðal væru mútu­greiðslur. Þá kom fram í þætt­inum, að fyr­ir­tækið beiti kerf­is­bund­inni dreif­ingu á umfjöll­unum og efni á sam­fé­lags­miðlum, sem gæti náð til hópa sem gætu verið lík­legir til að kjósa þann sem unnið væri fyrir. Í máli for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins kom fram, að þeir væru ekki síst að vinna með aðferða­fræði sem ýtti undir ótta hjá fólki.

Í máli Alex­ander Nix, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, kom fram að Cambridge Analytica væri að vinna við kosn­inga­bar­áttur víða um heim þessi miss­erin, meðal ann­ars í Asíu, Afríku og Evrópu. Kom fram í máli hans að félagið beitti ýmsum aðferðum, þar á meðal fölskum félögum, vænd­is­konum og und­ir­verk­tökum til að fela sporin.

Cambridge Analytica komst í sviðs­ljósið um helg­ina þegar New York Times greindi frá því, að félagið hefði nýtt per­sónu­upp­lýs­ingar um 50 millj­ónir not­enda, sem aflað var í gegnum per­sónu­leika­próf.

Gengi Facebook hríð­féll í gær, um 7 pró­sent, en fjár­festar ótt­ast að fyr­ir­tækið muni lenda í vand­ræðum vegna þess hvernig farið hefur verið með upp­lýs­ingar not­enda mið­ils­ins. Facebook seg­ist ætla að kom­ast til botns í mál­inu, og að öllum steinum verði velt við í þeirri vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár