Sýslumaður hafnar kröfu um kyrrsetningu eigna Valitor

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hafnað kyrr­setn­ing­ar­kröfu Datacell og Sunshine Press Productions á eignum Valitor.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors.
Viðar Þor­kels­son, for­stjóri Valitors. Mynd: Aðsend

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hafnað kyrr­setn­ing­ar­kröfu Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) á eignum Valitor. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Samkvæmt henni kemur ákvörð­unin ekki óvart enda telur Valitor að kyrr­setn­ing­ar­krafan hafi ekki átt við rök að styðj­ast.

Datacell og Suns­hine Press Producti­ons, sem önn­uð­ust rekst­ur greiðslu­gátt­ar fyr­ir Wiki­leaks, hyggj­ast fara í skaða­bóta­mál gegn Valitor vegna þess að fé­lagið ákvað ein­hliða og án fyr­ir­vara að loka gátt­inni árið 2011. Fyr­ir­tæk­in fóru fram á að sýslu­maður­inn kyrr­setti eign­ir Valitors fyr­ir sex og hálf­an millj­arð króna. Frá þessu er greint í frétt mbl.is.

Segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni að vert sé að benda á að langstærstur hluti krafna fram­an­greindra félaga á hendur Valitor, eða um 95 pró­sent, sé krafa SPP sem er að lang­mestu leyti í eigu Julian Assange, auk nokk­urra Íslend­inga.

„Það félag hefur aldrei átt í neinu við­skipta­sam­bandi við Valitor. Auk þess hefur félagið aldrei haft nema hverf­andi tekjur en gerir samt millj­arða kröfur á hendur fyr­ir­tæk­inu. Valitor hefur frá upp­hafi talið að eng­inn grund­völlur sé fyrir kröfu­gerð SPP og hefur því ítrekað hafnað henni. Auk þess er vert að minna á að eng­inn dómur hefur fallið um kröfu­gerð SPP.

Í hnot­skurn snýst mála­til­bún­aður Datacell og SPP um að Valitor hafi valdið þeim tjóni með riftun árið 2011 á samn­ingi um greiðslu­gátt sem gerði félög­unum kleift að taka á móti greiðslum í gegnum inter­netið. Hugðist Datacell nýta gátt­ina til fjár­söfn­unar í þágu Wikileaks sam­tak­anna með milli­göngu SPP. Því fór þó fjarri að allar bjargir væru bann­aðar með lokun gátt­ar­innar enda bentu félögin sjálf á nokkrar aðrar leiðir að gefa fé til Wikileaks. Auk þess var á vef­síðu sam­tak­anna allan þann tíma sem greiðslu­gáttin var lokuð vísað til fjöl­margra ann­arra greiðslu­leiða, s.s. með raf­mynt, milli­færslum á banka­reikn­ing og með Paypal. For­svars­maður Wikileaks hefur greint frá því að sam­tökin hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna lok­un­ar­innar heldur stór­grætt, þar sem þau hafi orðið að taka við bitcoin gjald­miðl­inum þess í stað, en verð­mæti hans hefur auk­ist um 50.000 pró­sent síðan þá.

Wikileaks hefur meira að segja greint frá því opin­ber­lega að raf­mynt­irnar bitcoin og litecoin hafi verið helsta fjár­mögn­un­ar­leið þeirra á þeim tíma sem greiðslu­gátt Valitor var opin. Þessu til við­bótar má benda á að á þriðja hund­rað evr­ópskir færslu­hirðar veita áþekka þjón­ustu og Valitor. Þannig er enn alger­lega óút­skýrt af hálfu þess­ara félaga hvernig það geti valdið þeim margra millj­arða tjóni að ein greiðslu­leið af mörgum lok­ist tíma­bundið og verður kröfu­gerðin á hendur Valitor að skoð­ast í því ljósi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár