Tíu hópar sem borga fyrir auknar tekjur ríkissjóðs á árinu 2018

Skatt­tekjur rík­is­sjóðs munu aukast úr 627 millj­örðum króna í fyrra í 662 millj­arða króna í ár. En hverjir borga þessar auknu tekjur?

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur úr 662 milljörðum króna að spila á yfirstandandi ári.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur úr 662 millj­örðum króna að spila á yfir­stand­andi ári. Mynd: Birgir Þór Harðarson

1.Launafólk í landinu

Stefnt er að því að að tekju­skattur sem leggst á ein­stak­linga muni verða 14,1 millj­örðum króna hærri í ár en hann var í fyrra. Alls áætlar íslenska ríkið að ná inn 181,2 millj­örðum króna í tekju­skatt sem leggst á ein­stak­linga í land­inu á árinu 2018.

2. Fyrirtækin í landinu

Tekju­skattur sem leggst á lög­að­ila, fyr­ir­tæki og félög lands­ins, dregst hins vegar saman á milli ára. Samkvæmt fjár­lögum mun hann skila tveimur millj­örðum krónum minna rík­is­kass­ann í ár en hann gerði í fyrra. Alls munu lög­að­ilar greiða 73,5 millj­arða króna í tekju­skatt á þessu ári. Þá munu tekjur af inn­heimtu trygg­ing­ar­gjalds hækka umtals­vert. Þær voru 89 millj­arðar króna í fyrra en fjár­lög árs­ins 2018 gera ráð fyrir að þær verði 96,4 millj­arðar króna.

3. Bankar landsins

Þrátt fyrir að búið sé að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna, lyfta höftum að mestu og banka­kerfið að stærstu leyti í eigu rík­is­ins þá er enn inn­heimtur 0,376 pró­sent banka­skattur af heild­ar­skuldum fjár­mála­fyr­ir­tækja sem hafa heim­ild til að taka við inn­lánum. Þessi sér­staki skattur var fyrst lagður á árið 2010. Banka­skatt­ur­inn skil­aði 8,8 millj­örðum króna í rík­is­sjóð árið 2017 en á að skila 9,2 millj­örðum króna í ár. Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa sagt að þessi skattur geri það að verkum að bankar séu ekki sam­keppn­is­hæfir við aðra veit­endur útlána. Því borga í raun við­skipta­vinir bank­anna banka­skatt­inn, að minnsta kosti að hluta, í gegnum lak­ari kjör en þeir gætu ella boðið.

4. Fjármagnseigendur

Tæpur helm­ingur allra fjár­magnstekna sem verða til á Íslandi í fyrra renna til tæp­lega tvö þús­und fram­telj­enda. Sá litli hópur er rík­asta eitt pró­sent lands­manna. Skatt­ur­inn skil­aði mun meira í kass­ann árið 2017 en áætl­anir gerðu ráð fyrir, eða sam­tals 36 millj­örðum króna. Í ár er reiknað með því að fjár­magns­eig­endur greiði 37,1 millj­arð króna í skatt af pen­ing­unum sem þeir láta vinna fyrir sig, eða 1,1 millj­arði króna meira en í fyrra.

5. Bifreiðareigendur

Það er dýrt að eiga bif­reið. Það þarf að greiða olíu­gjald (hækkar úr 10,8 millj­örðum króna í 11,4 millj­arða króna), vöru­gjöld af bens­íni (hækkar úr 12,8 millj­örðum króna í 13,3 millj­arða króna), kíló­metra­gjald af stórum öku­tækjum (hækkar úr 1.030 í 1.100 millj­arða króna) og bif­reiða­gjald (hækkar úr 7,3 millj­örðum króna í 7,5 millj­arða króna) svo fátt eitt sé nefnt. Mest hækkar þó svo­kallað kolefn­is­gjald, sem er lagt á jarð­efna­elds­neyti og jarð­gas. Tekjur rík­is­sjóð vegna þess fara úr tæpum 3,7 millj­örðum króna í 5,6 millj­arða króna.

6. Húsnæðiskaupendur

Allir ein­stak­lingar sem kaupa sér íbúð­ar­hús­næði þurfa að greiða 0,8 pró­sent af heild­ar­fast­eign­ar­mati í svo­kallað stimp­il­gjald. Sú und­an­tekn­ing er til staðar að veittur er helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Tekjur rík­is­sjóðs af inn­heimtu stimp­il­gjalda voru 4,8 millj­arðar króna á árinu 2017. Fjárlög yfir­stand­andi árs gera ráð fyrir að þær tekjur verði 5,1 millj­arður króna í ár.

7. Sjávarútvegsfyrirtæki

Ein mest ræddi tekju­stofn íslenska rík­is­ins eru veið­gjöld, sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Sumum finnst gjöldin allt of há en ansi mörgum finnst þau hafa verið of lág. Þau hækka umtals­vert á milli ára. Í fyrra inn­heimti rík­is­sjóður sex millj­arða króna í veiði­gjöld en sam­kvæmt fjár­lögum er gert ráð fyrir því að þau skili rúmum tíu millj­örðum króna í ár.

8. Þeir sem reykja eða taka í vörina

Tóbaks­gjald leggst á allar tóbaks­vörur, hvort sem um er að ræða vind­linga og sígar­ettur eða hið gróf­korn­aða nef­tó­bak sem ÁTVR fram­leiðir og selur, og er sjaldn­ast kallað annað en „Ruddi“. Inn­heimta tóbaks­gjalds skil­aði um sex millj­örðum króna í rík­is­sjóð í fyrra og áætl­anir fyrir árið 2018 gera ráð fyrir að í ár muni tekj­urnar aukast um 50 millj­ónir króna.

9. Þeir sem drekka áfengi

Allir sem flytja inn eða fram­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2.25 pró­sent af vín­anda að rúm­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda. Tekjur rík­is­sjóðs vegna áfeng­is­gjalds voru 17,8 millj­arðar króna árið 2017 en verða, sam­kvæmt fjár­lögum, 18,6 millj­arðar króna í ár.

10. Allir sem greiða útvarpsgjald til RÚV

Útvarps­gjaldið er lagt á ein­stak­linga 16-70 ára, sem eru með tekju­skatts­stofn yfir tekju­mörk­um en und­anþegn­ir frá gjald­inu eru elli- og ör­orku­líf­eyr­isþegar sem dvelja á dval­ar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekju­árs­ins Gjald­skyld­an hvíli einnig á inn­lend­um lög­að­ilum. Út­varps­gjaldið hækkar úr 16.800 krón­um í 17.200 krón­ur á milli ára. Það þýðir að tekjur rík­is­sjóðs vegna inn­heimtu þess, sem eiga að renna óskiptar til RÚV, fara úr tæp­lega 4,1 millj­arði króna í rúm­lega 4,2 millj­arða króna. Alls nemur hækk­unin 140 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár