SUB: Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafnar víðu samráði

Samtök ungra bænda (SUB) gagn­rýna harð­lega þá ákvörðun sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, að leysa upp sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga.

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júl­í­us­son Mynd: Hringbraut

Samtök ungra bænda gagn­rýna harð­lega þá ákvörðun sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, að leysa upp sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Þess í stað verður skip­aður nýr sam­ráðs­hópur þar sem fækkað er um nærri helm­ing í hópnum. Með því hverfur ráð­herra frá þeirri stefnu að ná skuli víð­tækri sátt og skiln­ingi margra aðila um búvöru­samn­inga, eins og nauð­syn­legt er.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá SUB sem birt­ist í morgun.

Í ályktun sem stjórn SUB sam­þykkti á fundi sínum þann 18. jan­úar síð­ast­lið­inn segir meðal ann­ars að með þessu sé víð­tæku sam­ráði hafnað og þess í stað horfið til for­tíðar þar sem fáir komi að borð­inu. Hvorki sé hafður með full­trúi úr umhverf­is­ráðu­neyt­inu, sem á þó marga snertifleti með land­bún­að­inum, né heldur frá ungum bændum sem lengst þurfa að búa eftir þeirri stefnu sem mörkuð er núna.

Segir enn fremur í til­kynn­ing­unni að sam­tökin skori á ráð­herra að end­ur­skoða þessa ákvörðun og halda stærð hóps­ins óbreyttri svo hann geti staðið undir nafni sem sam­ráðs­hópur.

[box]

Endurskipað í samráðshóp

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, end­ur­skip­aði í sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga í jan­úar í fyrra. Sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu á þeim tíma var sér­stak­lega horft til þess að auka vægi umhverf­is- og neyt­enda­sjón­ar­miða í hópn­um.

Mat ráð­herra á þeim tíma var að mik­il­vægt hefði verið að víð­tæk sam­vinna og sátt myndi nást við breyt­ingar á búvöru­samn­ingi og búvöru­lög­um. Í stjórn­ar­sátt­mála segði m.a. „… að við þessar breyt­ingar verði lögð áhersla á hags­muni og val­frelsi neyt­enda og bænda. Áfram verði tryggð fram­leiðsla heil­næmra, inn­lendra afurða í umhverf­is­vænum og sam­keppn­is­hæfum land­bún­að­i.“ Breið aðkoma hags­muna­að­ila við end­ur­skoðun búvöru­samn­ings hefði því verið því nauð­syn­leg.

Samráðshópurinn minnkar á ný

Kristján Þór ákvað í lok síð­asta árs að end­ur­skipa enn á ný sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins þann 27. des­em­ber síð­ast­lið­inn segir að upp­haf­lega hafi verið lagt upp með að skip­aður yrði sjö manna sam­ráðs­hópur en í tíð tveggja síð­ustu rík­is­stjórna hafi full­trúum fjölg­aði í 13. Nú hafi verið ákveðið fækka þeim að nýju og verði óskað eftir nýjum til­nefn­ingum á næstu dögum. Tryggt verði að störf hóps­ins end­ur­spegli áform búvöru­laga um „aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­ur­skoð­un­inni.“

Segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni að sam­ráðs­hópnum verði sent erind­is­bréf sem taki mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gild­andi búvöru­lög voru sam­þykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Lögð verði áhersla á að hóp­ur­inn ljúki störfum sem fyrst og eigi síðar en í lok árs 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár