Bændasamtökin vilja takmarka niðurfellingu tolla á úkraínskar vörur

Evr­ópu­sam­bandið og Bretland hafa fellt niður tolla á allar vörur frá Úkraínu til þess að styðja við ríkið og fyrir Alþingi liggur frum­varp fjár­mála­ráð­herra um hið sama. Bænda­sam­tökin vilja þrengja frum­varpið og hafa áhyggjur af auknum inn­flutn­ingi þaðan.

Bændasamtökin vilja að frumvarp fjármálaráðherra um tollaniðurfellingar til handa Úkraínu verði þrengt.
Bænda­sam­tökin vilja að frum­varp fjár­mála­ráð­herra um tolla­nið­ur­fell­ingar til handa Úkraínu verði þrengt.

Bænda­sam­tök Íslands hafa áhyggjur af því að auk­inn inn­flutn­ingur á land­bún­að­ar­vörum frá Úkraínu geti haft nei­kvæð áhrif á íslenskan land­búnað, sem glími í dag við erf­iða stöðu sökum gríð­ar­legra hækk­ana á aðföngum.

Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna við frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem fjallar um að fella skuli niður tolla af öllum vörum sem eru að öllu leyti upp­runnar í Úkraínu fram til 31. maí árið 2023.

Um er að ræða frum­varp sem er sprottið fram af því að Úkraína fór þess á leit við EFTA-ríkin að bæta toll­fríð­indi rík­is­ins, sökum þess að inn­rás Rússa hefur leitt til þess að lok­ast hefur verið fyrir útflutn­ing frá Úkraínu um hafnir í Svarta­hafi.

Bæði Evr­ópu­sam­bandið og Bretland hafa þegar afnumið alla tolla á úkra­ínskar vörur og nú ætlar Ísland að gera hið sama.

Innflutningur á mjólkurdufti helst talinn líklegur

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að ef frum­varpið verði að lögum geti það leitt til þess að fluttar yrðu til Íslands land­bún­að­ar­vörur frá Úkraínu í meiri mæli en nú er, sem gæti haft nei­kvæð áhrif á verð og/eða fram­boð íslenskra land­bún­að­ar­vara.

„Þar ber einkum að nefna mjólk­ur­duft en mögu­legt er að af slíkum inn­flutn­ingi geti orðið. Ekki er talið lík­legt að flutt verði inn kjúklinga­kjöt eða egg þar sem flutn­ings­vega­lengd er mikil. Af sömu ástæðum er ekki lík­legt að fluttar yrðu inn unnar kjöt­vörur, þótt ekki sé hægt að úti­loka slíkt,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

[adspot]

Bænda­sam­tökin segj­ast taka undir þessi „varn­að­ar­orð“ sem frum­varps­ins og leggja til að tolla­nið­ur­fell­ingar til handa Úkraínu verði tak­mark­aðar frá því sem frum­varpið leggur fram. Þannig leggja sam­tökin til að nið­ur­fell­ing tolla „nái ein­göngu til þeirra land­bún­að­ar­af­urða sem að jafn­aði hafa verið fluttar inn frá Úkraínu“ og að þeir flokkar verði skil­greindir með nákvæmum hætti í frum­varp­inu.

Einnig leggja Bænda­sam­tökin til að magn land­bún­að­ar­af­urða sem flytja má inn toll­frjálst verði skil­greint, þannig að mögu­leg stærð­argráða inn­flutn­ings liggi ljós fyrir. Þá vilja sam­tökin að „tryggt verði í hví­vetna“ að heil­brigðis­kröfum sem gerðar eru til inn­flutn­ings mat­væla frá löndum utan ESB verði fylgt.

Vilja að Ísland beiti sér fyrir vopnahléi

Í umsögn Bænda­sam­tak­anna er því einnig komið á fram­færi að það sé „afstaða Bænda­sam­taka Íslands að lausn á vanda Úkraínu felist í því að bund­inn verði endir á stríðs­á­tökin sem þar geisa“ og því eigi Ísland eigi að beita sér á alþjóða­vett­vangi fyrir því að gert verði vopna­hlé eða með öðrum hætti bund­inn endi á stríðs­á­tökin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár