Hefnd Sigmundar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur markvisst sótt fylgi til pólitískra andstæðinga sem honum hefur lent saman við á undan­förnum árum. Miðflokk­urinn mælist nú næst­stærsti flokkur landsins og höfðar til ólíkra hópa kjósenda. Fjórða hver manneskja á aldrinum 50 til 67 ára styður Miðflokkinn.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tapaði fyrir Sigurði Inga Jóhanns­syni í formanns­kjöri Framsóknar­flokksins haustið 2016 og stofnaði í kjölfarið Miðflokkinn. Hann hafði áður þurft að víkja úr ríkis­stjórn með Bjarna Benedikts­syni, formanni Sjálfstæðis­flokksins, vegna uppljóstrana í Panama­skjölunum og loks varð hann uppvís um það í nóvember 2018 að taka þátt í niðrandi samtali um Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, á Klaustri bar.

Stærstur hjá eldri kjósendum

Eftir nokkurt fylgistap í kringum hneykslismál hefur Sigmundur Davíð náð að sækja sér fylgi til flokka þeirra allra og gera Miðflokkinn að næst­stærsta stjórn­málaflokki landsins samkvæmt niður­stöðum kannana sem MMR tók saman fyrir Stundina. Miðflokkurinn mælist með 15,2 prósenta fylgi á tíma­bilinu, rétt á eftir 19,6 prósenta fylgi Sjálfstæðis­flokksins. Miðflokkurinn mælist stærsti flokkurinn hjá aldurs­hópnum 50 til 67 ára með 24 prósenta fylgi og líka hjá öllum kjósendum yfir 60 ára aldri. Hann mælist einnig sá vinsælasti á Suður­landi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár