Guðrún Johnsen látin hætta í stjórn Arion banka – Steinunn tekur sæti hennar

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Glitnis í Bret­landi er komin í stjórn Arion banka. Hún er til­nefnd af Attestor Capital.

Guðrún Johnsen, sem hefur verið vara­for­maður stjórnar Arion banka, hefur verið látin hætta í stjórn bank­ans. Sæti hennar tekur Steinunn Kristín Þórð­ar­dóttir, sem hefur verið vara­maður í stjórn­inni. Hún er til­nefnd í stjórn­ina af Kaup­skilum.

Þetta var ákveðið á hlut­hafa­fundi Arion banka sem fram fór fimmtu­dag­inn 30. nóv­em­ber.

Stjórn Arion banka skipa nú: Eva Cederbalk for­maður, Brynjólfur Bjarna­son, Jakob Már Ásmunds­son, John P. Madden, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Steinunn Kristín Þórð­ar­dóttir og Þóra Hall­gríms­dóttir. Kirstín er full­trúi Banka­sýslu rík­is­ins í stjórn­inni, Steinunn er til­nefnd að Attestor Capital, en aðrir eru til­nefndir af Kaup­skilum.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka segir að Steinunn Kristín hafi starfað sem fram­kvæmda­stjóri hjá Beringer Finance á árunum 2015-2017, fyrst í Noregi og síðar á Íslandi auk þess að gegna stöðu for­stöðu­manns alþjóða­deildar fyr­ir­tæk­is­ins á sviði mat­væla og sjáv­ar­fangs. Árið 2010 stofn­aði Steinunn ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Akton AS í Noregi og var fram­kvæmda­stjóri þess til árs­ins 2015. Hún starf­aði hjá Íslands­banka, sem þá hét Glitnir, á árunum 2001-2008, fyrst sem for­stöðu­maður alþjóða­lán­veit­inga og síðar sem fram­kvæmda­stjóri bank­ans í Bret­landi.

Steinunn er með MIM gráðu frá Thund­er­bird og BA gráðu í alþjóða­við­skiptum og stjórn­mála­fræði frá Uni­versity of South Carolina.

Vogunarsjóðir stórir í eigendahópnum

Í mars var til­­kynnt að fjórir aðil­­ar, vog­un­­ar­­sjóð­irnir Taconic Capi­tal, Och-Ziff Capi­talM­ana­gement, Attestor Capi­tal og fjár­­­fest­inga­­bank­inn Gold­man Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­­þingi á 48,8 millj­­­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­­færðu eigin fé Arion banka.

Þegar samið var um stöð­u­­­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­­­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­­­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­­­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­­­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­­­­ast myndi rík­­­­­is­­­­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Í við­­­skipt­unum fólst því að eig­endur ⅔ hluta Kaup­­­þings voru að kaupa stóran hluta í Arion banka á eins lágu verði og mög­u­­­legt var fyrir þá án þess að virkja ákvæði sem gerði íslenska rík­­­inu kleift að ganga inn í kaup­in.

Til við­­­bótar átti þessi hópur kaup­rétt á 21,9 pró­­­sent hlut í Arion banka. Hefðu þeir nýtt hann yrðu vog­un­­­ar­­­sjóð­irnir þrír og Gold­man Sachs beinir eig­endur að meiri­hluta í Arion banka.

Þessir fjórir aðilar keyptu hlut­inn í Arion banka af Kaup­­­þingi ehf. eiga líka sam­tals 66,31 pró­­­sent hlut í Kaup­­­þingi. Langstærsti ein­staki eig­andi Kaup­­­þings eru sjóðir í stýr­ingu Taconic Capi­tal með 38,64 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Næst stærsti eig­and­inn er lúx­em­borgískt félag tengd Och-Ziff Capi­tal Mana­gement Group með 14,21 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Þriðji stærsti hóp­­­ur­inn eru sjóðir í stýr­ingu hjá Attestor Capi­tal, sem eiga 8,63 pró­­­sent hlut. Fjár­­­­­fest­inga­­­bank­inn Gold­man Sachs og sjóður í stýr­ingu hans eru síðan skráðir fyrir 4,83 pró­­­sent hlut. Því er ljóst að sjóð­irnir voru að selja sjálfum sér hluti í Arion banka. Og beinn og óbeinn hlutur þeirra í bank­­anum er sam­an­lagt mun hærri en sá hlutur sem keyptur var.

Í ágúst var til­kynnt að þeir ætl­uðu sér ekki að nýta sér kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut sem þeir höfðu samið um, og þurftu að nýta fyrir 19. sept­em­ber.

Til stóð að Arion banki yrði skráður á mark­aði í októ­ber eða nóv­em­ber en því var frestað vegna kosn­inga á Íslandi. Stefnt er að því að af skrán­ing­unni verði á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár