Sjálfstæðisflokkurinn minnkar enn í kosningaspánni

Vinstri græn hafa nú stuðn­ing 27 pró­sent kjós­enda miðað við kosn­inga­spána.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður flokksins, ganga í þingsal.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, þing­maður flokks­ins, ganga í þing­sal. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinstri hreyf­ingin – grænt fram­boð nýtur nú lang mests stuðn­ings fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 28. októ­ber næst­kom­andi, með 27 pró­sent stuðn­ing þegar þrjár vikur eru til kosn­inga. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar enn fylgi og er nú með 22,1 pró­sent í kosn­inga­spánni.

Vinstri græn hafa bætt miklu fylgi við sig síðan rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Í Alþing­is­kosn­ing­unum í fyrra fengu Vinstri græn 15,9 pró­sent atkvæða.

Ólíklegt er að nýj­ustu vend­ingar á sviði stjórn­mál­anna í gær hafi haft áhrif á nýj­ustu könn­un­ina sem reikn­ast í kosn­inga­spánni. Það er könnun Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands sem birt var í morgun, laug­ar­dag.

[chart]

Sam­fylk­ingin mælist nú þriðja stærsta fram­boðið í kosn­inga­spánni með 10,4 pró­sent stuðn­ing. Píratar eru nú með 10 pró­sent stuðn­ing og eru orðið fjórða stærsta fram­boðið. Píratar hafa verið næstir á eftir Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokknum í kosn­inga­spánni síðan kosið var síð­ast til Alþingis. Þar áður hafði fylgi við Pírata náð meira en 40 pró­sent í upp­hafi árs 2016.

[adspot]

Kosn­inga­spáin er unnin af Baldri Héð­ins­syni í sam­starfi við Kjarnann í aðdrag­anda kosn­inga á Íslandi. Lesa má um aðferða­fræði og fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar á kosn­inga­spár­vef Kjarnans eða á kosn­inga­spa.is.

Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn mæl­ast með nógu mikið fylgi til þess að gera sig gild­andi á Alþingi, ef nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar eru í takt við nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Flokkur fólks­ins mælist með 8,4 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn með 8,3 pró­sent.

[chart]

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tapar fylgi á milli kosn­inga­spáa og er nú með 6,5 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur fallið úr rúm­lega 10 pró­sent stuðn­ingi eftir fall rík­is­stjórn­ar­innar. Það verður að telj­ast áhyggju­efni fyrir for­ystu flokks­ins en ljóst er að klofn­ingur innan flokks­ins og til­koma fram­boðs Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hefur hoggið stórt skarð í Fram­sókn­ar­flokk­inn.

[links]Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Viðreisn og Björt fram­tíð mæl­ast með enn minna fylgi en þeir gerðu síð­ast. Viðreisn hefur stuðn­ing 3,5 pró­sent kjós­enda og Björt fram­tíð þrjú pró­sent.

Hægt er að skoða nýj­ustu kosn­inga­spána í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans. Þar má einnig lesa í líkur á því að fram­boðin geti myndað saman meiri­hluta á þingi, miðað við nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar kosn­inga­spánni sem fjallað er um hér 7. októ­ber eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 2. – 6. októ­ber (vægi 38,5%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 2-3. okt (vægi 22,2%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 19,7%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 15. – 28. sept­em­ber (vægi 16,6%)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár