Um kosningaspána

Allt um kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar sem birt er reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga á Íslandi.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Til útskýr­ingar má segja að vægi kann­ana er gefið eftir því hversu næmur könn­un­ar­að­il­inn og aðferðir hans eru á raun­veru­legar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu. Kosn­ingar eru auð­vitað eini mæli­kvarð­inn á það hversu vel könn­un­ar­að­ilum tekst upp svo miðað er við sögu­leg gögn og þau borin saman við kosn­inga­úr­slit til að ákvarða áreið­an­leika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könn­unin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.

Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrst í aðdrag­anda sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­a 2014 og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er nú keyrð í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 28. októ­ber í annað sinn. Kosn­inga­spáin fékk mikla athygli fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2016, ekki síst fyrir þing­sæta­spána þar sem spáð var um hvaða fram­bjóð­endur myndu ná kjöri. Nánar um það hér að neðan.

Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni hverju sinni eru nýj­ustu kann­anir könn­un­ar­að­ila vegnar eftir áreið­an­leika. Fylgi ein­stakra fram­boða er svo fundið með vegnu með­al­tali úr þeim könn­unum sem liggja til grund­vallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér. Vægi hverrar könn­unar fyrir sig er metið út frá fyr­ir­fram gefnum for­sendum, eins og stærð úrtaks, fjölda svar­enda, lengd könn­un­ar­tíma­bils og áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila. Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila byggir á því hversu nærri kann­an­irnar hafa kom­ist nið­ur­stöðum kosn­inga á und­an­förnum árum.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Þingsætaspáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ingum. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér á vefnum.

Fyrir kjördæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta. Þing­sæta­spáin var jafn­framt birt í fyrsta sinn í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2016.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og reikna út líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, fengið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ingum. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingnum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár