Björn Ingi staðfestir samstarf við Sigmund Davíð

Björn Ingi Hrafns­son hefur stað­fest að boðað fram­boð sem hann vann að muni ganga til liðs við nýja hreyf­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­ver­andi útgef­andi og aðal­eig­andi Pressunnar, hefur til­kynnt að boðað fram­boð til Alþingis sem hann vann að því að stofna muni ganga til liðst við nýja stjórn­mála­hreyf­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Sig­mundur Davíð til­kynnti um það á sunnu­dag að hann hefði yfir­gefið Fram­sókn­ar­flokk­inn og myndi stofna nýjan flokk utan um sjálfan sig.

[links] Björn Ingi hefur áður tekið þátt í stjórn­málum. Hann starf­aði sem aðstoð­ar­maður ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins um skeið og sat í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fyrir hönd flokks­ins. Björn Ingi segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að hann hafi fengið ótrú­lega mikil og jákvæð við­brögð við til­kynn­ingu sinni um að til stæði að stofna nýtt borg­ara­lega sinnað fram­boð. „Nú hefur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagt sig úr Fram­sókn­ar­flokknum og boðað nýja stjórn­mála­hreyf­ingu. Í því fel­ast vatna­skil að mínu mati. Ég fagna því mjög að við Íslend­ingar fáum aftur tæki­færi til að kynn­ast fram­tíð­ar­sýn hans sem stjórn­málafor­ingja, enda geta flestir verið sam­mála um þann mikla árangur sem náð­ist fyrir land og þjóð undir hans for­ystu á sínum tíma.

Fremur en að dreifa kröftum fram­fara­sinn­aðs fólks tel ég mik­il­vægt að sam­eina það með sam­vinnu að leið­ar­ljósi. Sam­vinnu­fólk ætlar því glað­beitt að ganga til liðs við nýja miðju­hreyf­ingu Sig­mundar Davíðs -- því það er verk að vinna og skammur tími til stefnu.“

Mun vera með listabókstafinn M

Líklegt er talið að flokkur Sig­mundar Davíðs muni heita Mið­flokk­ur­inn og að lista­bók­stafur hans verði M. Stuðn­ings­menn Sig­mundar Davíðs eru þegar byrj­aðir að safna með­mæl­endum og að fá fólk til að vera á fram­boðs­lista. Engin stefnu­skrá hefur hins vegar verið birt, enn sem komið er.

Sig­mundur Davíð til­kynnti um brott­hvarf sitt úr Fram­sókn­ar­flokknum í um 3.500 orða bréfi til flokks­manna sem hann birti á heima­síðu sinni um síð­ustu helgi. Bréfið var birt 90 mín­útum áður en að auka­kjör­dæm­is­þing Fram­sókn­ar­manna, þar sem taka átti ákvörðun um val á lista, hófst.

Í bréf­inu fór hann í löngu máli yfir atlögur gegn sér. Sig­mundur Davíð sagð­ist hafa treyst Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, „fyrir fjöregg­inu mínu“ þegar hann sam­þykkti að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl 2016 og taldi sig hafa lof­orð upp á vas­ann um að Sigurður Ingi myndi ekki fara gegn honum. Í kjöl­farið hafi hins vegar verið gerðar sex til­raunir til að fella hann, og það hafi loks tek­ist í byrjun októ­ber 2016, þegar Sigurður Ingi var kjör­inn for­maður flokks­ins.

Tengsl Björns Inga og Sigmundar Davíðs miðpunktur fjárkúgunarmáls

Í nóv­em­ber 2014 keypti Pressan, sem Björn Ingi stýrði á þeim tíma, meir­hluta í útgáfu­fé­lag­inu DV. Ekkert var gefið upp um hverjir hefðu fjár­magnað þau kaup utan þess að hluti hafi verið greiddur með selj­enda­láni.

Í byrjun júní 2015 greindi Vísir frá því að tvær konur hefðu verið hand­teknar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Kon­urnar heita Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand og eru syst­ur. Sam­kvæmt reyfara­kenndri frá­sögn fjöl­miðla áttu þær að hafa sent hand­skrifað bréf heim til Sig­mundar Dav­íðs þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim um átta millj­ónir króna. Ann­ars myndu upp­lýs­ingar sem áttu að vera við­kvæmar fyrir hann að verða gerðar opin­ber­ar. Málið var strax til­kynnt til lög­reglu sem réðst í umfangs­miklar aðgerðir sem leiddu til þess að syst­urnar voru hand­teknar, og síðar dæmdar.

[adspot]Upp­lýs­ing­arnar sem hótað var að gera opin­berar snér­ust, að sögn Vís­is.is, um fjár­hags­leg tengsl Sig­mundar Dav­íðs og Björns Inga. Stundin sagði að upp­lýs­ing­arnar væru tölvu­póstur sem farið hefði á milli for­sæt­is­ráð­herra og Björns Inga í tengslum við kaupin á DV á árinu 2014.­ Upp­lýs­ing­arnar snér­ust um að ­Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka sem notuð hafi verið til kaupanna.

Björn Ingi birti stöðu­upp­færslu á Face­book sama dag og málið kom upp til að bregð­ast við þessum ásök­un­um. Þar sagði hann Sig­mund Davíð ekki hafa fjár­magnað kaup Pressunnar á DV og að hann ætti ekki hlut í blað­inu. Þar sagði hann einnig: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sál­ar.“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu um málið skömmu síð­ar. Þar sagði hann að bréf hafi verið sent á heim­ili hans, í umslagi merkt eig­in­konu hans. Þar hafi verið skrifað að ef Sig­mundur Davíð myndi ekki greiða nokkrar millj­ónir króna myndu fjöl­miðlar fá upp­lýs­ingar sem ættu að reyn­ast honum skað­leg­ar. Hann segir að af bréf­inu að ráða virð­ast umræddar upp­lýs­ingar byggja á get­gátum og sögu­sögn­um. Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig: "Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt. ­Fjöl­skyldu minni er veru­lega brugðið vegna þess­ara atburða. Ég vil hvetja til hóf­stilltrar umræðu um málið og minni á að grun­aðir ger­endur eiga ætt­ingja og vini sem liðið geta fyrir umfjöll­un­ina."

Nær allir miðlar Pressunnar voru seldir til félags í eigu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns fyrr í þessum mán­uði og við það fór Björn Ingi út úr rekstri fjöl­miðla­sam­stæð­unnar. Kröfu­hafar Pressunnar vinna nú að því að setja félagið í þrot og verður ein slík beiðni tekin fyrir í héaðs­dómi 5. októ­ber næst­kom­andi. Hugur þeirra stendur til að rifta sölu fjöl­miðl­anna þegar gjald­þrot hefur verið stað­fest og skipta­stjóri skip­aður yfir búið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár