Inga Sæland segist ekki etja saman hælisleitendum og öryrkjum

Formaður Flokks fólks­ins segir aðra reyna að ata auri á flokk­inn og snúa út úr mál­flutn­ingi sínum. Fyrir liggi að Íslend­ingar búi í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi.

Inga Sæland, for­maður flokks fólks­ins, vísar á bug ásök­unum um að hún etji saman hæl­is­leit­endum og öryrkjum. Hún segir gagn­rýni sína á störf Útlend­inga­stofn­unar snúa að því að máls­með­ferð­ar­tími hæl­is­leit­enda hér­lendis sé allt of langur og að sú bið sé „klár mann­vonska“ að hennar mati. Þetta kemur fram í við­tali við Ingu í DV í dag.

Þar segir að fyrir liggi að Íslend­ingar búi í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi, enda séu 10,6 pró­sent íbúa þjóð­ar­innar af erlendu bergi brotin. Um sé að ræða frá­bært og dug­legt fólk sem hafi hjálpað til við að byggja upp sam­fé­lagið.

Það sem hún hafi gagn­rýnt sé að hér séu hæl­is­leit­endur látnir bíða í eitt til þrjú ár áður en þeir fá svar við umsóknum sínum og þá oftar en ekki sé þeim vísað úr landi. „Þessi bið er klár mann­vonska að mínu mati. Mér blöskrar það þegar fjöl­skyldur með ung börn sem eru búnar að aðlag­ast sam­fé­lag­inu og vinna hér baki brotnu, jafn­vel farnar að tala íslensku, eru sendar úr landi.“

Inga telur aðferð Norð­manna, sem eru með í gildi reglu um að afgreiða mál hæl­is­leit­enda á 48 klukku­tímum, mun mann­eskju­legri en þá leið sem farin hefur verið hér­lendis. „Sú regla felur í raun í sér að þeim sem eiga ekki rétt á hæli er vísað taf­ar­laust úr landi. Þeir sem fá hæli fá hins vegar úrlausn sinna mála fljótt. „Ég á eftir að spyrja þessa háu herra sem eru að kalla mig öllum illum nöfnum: Vilja þeir hafa þetta ein­hvern veg­inn öðru­vísi? Vill Logi Ein­ars­son, minn fyrr­ver­andi flokks­bróðir, hafa þetta ein­hvern veg­inn öðru­vísi? Þeir segja að ég sé að etja saman hæl­is­leit­endum og öryrkjum, það er ósatt, Það er ein­ungis þannig sem þeir kjósa að túlka það sem ég segi, spurn­ing hvaða stimpil þeir vilja setja á sjálfa sig. Fólki væri nær að snúa bökum saman um þær hug­sjónir að útrýma hér fátækt en að reyna að ata okkur auri og snúa út úr mál­flutn­ingi mínum.“

Flokkur fólks­ins mæld­ist með 8,4 pró­sent fylgi í nýlegri könnun Gallup. Ef kosið yrði nú myndi flokk­ur­inn fá fimm þing­menn. Flokk­ur­inn fékk 3,5 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um. Næst verður kosið árið 2020 nema að boðað verði til kosn­inga fyrir þann tíma.

Í við­tal­inu við DV segir Inga að þótt flokkur hennar sé ekki inni á þingi sé hann að hennar mati öfl­ug­asta stjórn­ar­and­staðan. „Það er orðið svo lítið um hug­sjónir. Þegar fólk er komið í álnir er eins og legg­ist yfir það ein­hver hula og það virð­ist eiga erfitt með að stíga niður til okkar hinna og horfast í augu við raun­veru­lega stöðu almenn­ings í land­inu, fólks­ins sem það á að vera að vinna fyrir.“

Sagðist sennilega Marine Le Pen týpa

Inga hefur vakið mikla athygli fyrir ýmis ummæli að und­an­förnu. Í byrjun ágúst sagði hún í sam­tali við frétta­stofu RÚV að hún væri sátt við að vera kölluð popúlisti. „Ég hef ákveðið að taka jákvæða pól­inn í hæð­ina og segja, ja popúlisti er bara svona ein­hver svaka­lega vin­sæll. En ég veit nátt­úru­lega hvað hug­takið er útbreitt fyr­ir. Ég er senni­lega svona Marine Le Pen týpa sem er verið að mála mig af þeim sem munu hvort sem er aldrei kjósa flokk­inn. Af okkur stafar ógn vegna þess að við erum boð­beri breyt­inga. Við erum ein­læg og heið­ar­leg og við vinnum af hug­sjón og við ætlum að halda því áfram og við erum bara sátt við að vera popúlist­ar. Ég ætla að segja að það þýði bara það að vera vin­sæll í dag.“

Marine Le Pen er fyrr­ver­andi for­maður frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar (f. Front National) og var for­seta­fram­bjóð­andi hennar fyrr á þessu ári. Þar náði hún í aðra umferð en tap­aði fyrir Emmanuel Macron. Í kosn­­inga­bar­átt­unni lagði Le Pen áherslu á að vilja tak­­marka fjölda inn­­flytj­enda sem Frakk­land tæki á móti og sagð­ist ætla að halda þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu um fram­­tíð Frakk­lands í Evr­­ópu­­sam­­band­inu.

Árangur Le Pen í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna var sá besti sem fram­bjóð­andi flokks hennar hafði nokkru sinni náð – hún fékk um ell­efu millj­ónir atkvæða – en olli samt sem áður von­brigð­um. Fylgi Marine Le Pen var mest í „ryð­belti“ Norð­­ur­-Frakk­lands og hjá íhalds­­­söm­um og öldruð­um íbúum í suð­aust­­ur­hluta lands­ins.

Inga vakti líka athygli fyrir grein sem hún skrif­aði í Morg­un­blaðið í júní, í kjöl­far þess að sér­sveit lög­regl­unnar hafði verið vopnuð á nokkrum við­burðum sem haldnir voru í Reykja­vík. Í grein­inni sagði hún að Íslend­ingar þyrftu að við­ur­kenna þá ógn sem fylgj­endur öfga-íslams bera með sér. Að forð­ast þá umræðu væri hrein og klár og afneit­un. „Sér­sveit lög­regl­unnar undir alvæpni sýnir sig á almanna­færi og það án þess að hættu­stig sé aukið opin­ber­lega. Hvað vita þeir sem við vitum ekki? Hvers vegna vill eng­inn taka umræð­una um ástandið í Evr­ópu og þá stað­reynd að Ísland til­heyrir henni, þótt eng­inn hafi verið sprengdur eða myrtur hér í hryðju­verka­árás enn sem komið er? „Það er kom­inn tími til að taka umræð­una og löngu kom­inn tími til að taka á árásum þeirra sam­landa okkar sem vilja og munu kalla okkur öllum illum nöfn­um. Þeirra sömu og vilja breiða út faðm­inn og bjarga öllum heim­in­um.“ Mik­il­vægt væri að fella sig ekki á bak við „rétt­trún­að­ar­kenn­ing­ar“ og treysta því að hryðju­verkaógnin komi ekki til Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár