Segir veikar forsendur til að höfða mál vegna aflandskrónuútboða

Engin rann­sókn er í gangi, né í far­vatn­inu, á því af hverju snjó­hengjan var ekki þurrkuð upp upp í fyrra á geng­inu 165-170 krónur á evru. Stjórn­völd telja að þeir sem seldu krónur á 190 krónur fyrir hverja evru hafi „veikar for­sendur fyrir máls­höfðun“.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að það sé engin rannsókn í gangi um af hverju Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra og nú forsætisráðherra, hafi ekki þurrkað upp snjóhengju aflandskróna í fyrra.
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það sé engin rann­sókn í gangi um af hverju Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og nú for­sæt­is­ráð­herra, hafi ekki þurrkað upp snjó­hengju aflandskróna í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir veikar for­sendur fyrir þá aflandskrónu­eig­endur sem seldu krónur sínar á geng­inu 190 krónur fyrir hverja evru fyrir ári síðan að höfða mál. Þeir aflandskrónu­eig­endur sem höfn­uðu því til­boði býðst nú að borga 137,5 krónur fyrir hverja evru og hafa frest fram til 15. júní til að bregð­ast við því til­boði. Taki þeir því hefur þol­in­mæði þeirra skilað 38 pró­sent við­bót­ar­geng­is­hagn­aði. Alls óljóst er þó hvort eft­ir­stand­andi aflandskrónu­eig­endur muni taka til­boð­inu, í ljósi þess að krónan er enn að styrkj­ast og skráð gengi hennar gagn­vart evru er nú um 110 krónur. Það þýðir að ef aflandskrónu­eig­end­urnir myndu skipta krón­unum sínum í banka – sem þeir mega ekki enn sam­kvæmt gild­andi fjár­magns­höftum á eignir þeirra – myndu þeir fá um 25 pró­sent fleiri evrur fyrir en sam­kvæmt til­boði Seðla­bank­ans.

Björn Valur Gíslason, vara­þing­maður Vinstri grænna, spurði Benedikt af því í skrif­legri fyr­ir­spurn á Alþingi hvort hann teldi að þeir aflandskrónu­eig­endur sem seldu eignir sínar á 190 krónur fyrir hverja evru í útboði í fyrra­sumar gætu átt „rétt á bótum eða til­boði um sömu kjör og boðin eru aflandskrónu­eig­endum nú, þ.e. 137,50 kr. fyrir eina evru?“ Hann spurði Benedikt enn fremur hvort hann liti svo á að yfir­lýs­ingar hans í ræðu á þing­fundi 13. mars síð­ast­lið­inn gætu styrkt stöðu stöðu þeirra sem leystu krónur sínar út á evru­geng­inu 190 krónur? Í þeirri ræðu sagði Benedikt að mögu­legt hefði verið að þurrka upp aflandskrónu­vand­ann í kringum útboðið sem Seðla­bank­inn hélt um mitt síð­asta ár, með því að lækka gengið aðeins. Það hafi ekki verið gert og nú sé hægt að sjá það glöggt að skyn­sam­legt hefði verið að gera það. „Í ráðu­neyt­inu heyri ég að lík­legt sé að á þeim tíma hefði verið hægt að þurrka snjó­hengj­una svo­nefndu upp að mestu leyti ef gengið hefði verið á milli 165 og 170 krónur á evru. Nú sjáum við glöggt að skyn­sam­legt hefði verið að ljúka við­skipt­unum á því gengi. Þá­ver­andi stjórn­völd ákváðu að gera það ekki. Kannski vegna þess sjón­ar­miðs að með því hefði verið gert allt of vel við aflandskrónu­eig­end­ur. Eftir á sjá allir að Íslend­ingar hefðu grætt mjög mikið á því að ljúka dæm­inu þá, en menn misstu af því tæki­færi.“

Benedikt segir nú í svari sínu til Björns Vals að engir útreikn­ingar hafi verið gerðir á því hversu mikið Íslandi hefði getað grætt á slíku til­boði og að það hafi ekki „verið sjálf­stætt mark­mið að hámarka hagnað í við­skiptum við þá aðila sem hafa sætt tak­mörk­unum vegna haft­anna heldur leysa greiðslu­jafn­að­ar­vanda“. Ef öllum aflandskrónu­eig­endur hefði verið boðið 165-170 krónur á evru í fyrra­sumar, og þeir hefðu allir tekið því til­boði, hefði gjald­eyr­is­forði Seðla­banka Íslands farið fyrir neðan þá stærð sem talin er nauð­syn­leg „til að tryggja að almenn losun fjár­magns­hafta raskaði ekki efna­hags­legum og fjár­mála­legum stöð­ug­leika.“

Benedikt segir enga rann­sókn vera hafna á því af hverju Bjarni Bene­dikts­son, þá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og nú for­sæt­is­ráð­herra, hafi ekki „nýtt tæki­færið“ í fyrra til að leysa vand­ann á þeim for­sendum sem Benedikt tal­aði um í ræðu sinni 13. mars. Hann sagði enga slíka rann­sókn heldur vera í far­vatn­inu.

Benedikt segir afar veikar for­sendur vera fyrir þá aflandskrónu­eig­endur sem ákváðu að fara út á því gengi sem Seðla­bank­inn bauð þeim í fyrra að höfða mál til greiðslu bóta vegna þess sem síðar var gert eða sagt í afnáms­ferl­inu. „Þátttaka í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­bank­ans var val­frjáls og eng­inn aflandskrónu­eig­andi var skuld­bund­inn til að taka þátt í því frekar en hann vildi. Þessir val­kostir og fyr­ir­sjá­an­leiki í mál­inu gera það að verkum að afar veikar for­sendur eru til að höfða mál til greiðslu bóta vegna þess sem síðar var gert eða sagt í afnáms­ferl­inu enda hefur aldrei legið fyrir nein stað­fest­ing á því að þeir aflandskrónu­eig­endur sem ekki tóku þátt í útboð­inu í júní 2016 myndu síðar í afnáms­ferl­inu verða leystir undan sínum tak­mörk­unum á verri kjörum en þeim sem boðin voru sum­arið 2016.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár