Innrás Costco gott „spark í rassinn“ á íslenskri verslun

Costco mun ekki éta íslenskan versl­un­ar­markað með húð og hári, en lík­legt er að íslensk versl­un­ar­fyr­ir­tæki bregð­ist við inn­komu þess með betri þjón­ustu og meiri fjöl­breytni.

Innkoma Costco á markað á Íslandi markar mikil tíma­mót. Ekki ein­ungis vegna þess hversu mik­ill slag­kraftur fylgir slíkum risa, heldur ekki síst vegna þess hvernig við­skipta­módel fyr­ir­tæk­is­ins virkar. Það að fyr­ir­tækið sé komið með 41 þús­und áskriftir/aðild­ar­við­skipta­vini er með ólík­indum, á jafn litlum mark­aði. Og það á fyrsta degi.

Það verður áhuga­vert að fylgj­ast með því hvernig íslensk versl­un­ar­fyr­ir­tæki munu bregð­ast við þess­ari inn­komu.

Við fjöl­skyldan erum búsett á Seattle svæð­inu, þar sem hjartað í þróun smá­sölu í heim­inum slær. Hér eru Amazon og Costco bæði með höf­uð­stöðvar, stóran hluta hlut­hafa sinna (óvenju stóran stað­bund­inn á svæð­inu) og nýj­ungar sýni­legar hér fyrst.

Hér koma nokkrir punktar frá mér um þessa banda­rísku inn­rás á lít­inn ein­angr­aðan smá­sölu­markað sem Ísland er.

1. Viðbrögð stóru versl­ana­keðj­anna á Íslandi sem rekar versl­arnir undir merkjum Krón­unnar (Festi), Bónuss og Hagkaup (Hagar), verða vafa­lítið þau að reyna eftir fremsta megni að bjóða jafn­góð verð og Costco og um leið að halda í sína við­skipta­vini. Þessar versl­anir búa að löngu við­skipta­sam­bandi og góðum stað­setn­ingum á versl­unum.

Enn betri útfærsla á net­verslun - t.d. með betri yfir­sýn yfir inn­kaupin í hvert skipti sem verslað er, og upp­bygg­ingu vild­ar­kjara­kerfis - er eitt­hvað sem íslensku verslanka­keðj­urnar gætu þurft að útfæra nánar og betur. Þar er hægt að horfa til Amazon Prime (Now) og Amazon Fresh, þar sem not­endur greiða mán­að­ar­gjald sem nemur um 1.500 krónum og fá í stað­inn aðgengi að góðum verðum, betra vöru­úr­vali og betri þjón­ustu, þar á meðal styttri afhend­ing­ar­tíma á vöru heima að dyrum.

Þessi áskrift­ar­hugsun í verslun snýst að miklu leyti um það, að styrkja og dýpka við­skipta­sam­bandið milli versl­un­ar­innar og við­skipta­vina, og leyfa þeim að njóta þess þegar fram í sækir.

Innkoma Costco gæti ýtt við íslenskum versl­unum hvað þetta varðar, og leitt til þess að þær fari að bjóða fjöl­breytt­ari þjón­ustu fyrir sína við­skipta­vini.

2. Heild­versl­anir með ýmsan varn­ing, eins og bíldekk, verk­færi, hús­gögn og ýmis­legt fleira, gætu fundið ræki­lega fyrir inn­komu Costco, og þyrftu þá að reyna að bjóða aðrar vörur en Costco býður upp á. Verð­mun­ur­inn er lík­legur til að verða mik­ill á mörgum vöru­teg­undum, en ekki öllum.

Eitt af því sem hefur blómstrað í smá­sölu und­an­farin ár eru sér­hæfðar versl­anir með til­teknar vöru­teg­undir, t.d. ein­hverja til­tekna mat­vöru (kjöt, fisk, osta, græn­meti, líf­rænan mat) eða gjafa­vöru. Ekki er ólík­legt að inn­koma Costco geti skerpt enn meira á mögu­leikum sér­hæfðrar versl­unar, og þá sér­hæfðra heild­versl­ana.

3. Til fram­tíðar litið gætu þessi gríð­ar­legu sterku við­brögð við­skipta­vina, með yfir 40 þús­und áskriftir, leitt til opn­unar á fleiri versl­unum Costco hér á landi. Bestu versl­anir Costco í Evrópu hafa verið að velta allt að 15 millj­örðum króna, og má til sam­an­burðar nefna að heild­ar­velta Haga á síð­asta ári var 80 millj­arðar. Þrátt fyrir að inn­koma Costco verði kröftug og eft­ir­tekt­ar­verð, og sé það nú þegar, þá verður hún tak­mörkuð til lengri tíma við þessa eina stað­setn­ingu í Kauptúni. Hún gæti orðið magninn­kaupa­búð fjöl­skyldna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, til fram­tíðar, sé horft til reynsl­unnar á öðrum mörk­uðum, þar sem sam­keppnin milli versl­ana er dínamísk. Þar hefur sýnt sig að Costco býður ekki endi­lega bestu verðin, heldur frekar góð til­boð á til­teknum vörum, og lætur við­skipta­vini veru­lega njóta þess að vera að greiða fyrir Costco aðild­ina.

En Costco mun ekki „éta“ mark­að­inn með húð og hári, því ein stað­setn­ing getur það ekki og veltan verður alltaf tak­mörkuð vegna þessa. Góðar stað­setn­ingar versl­ana eru mikil verð­mæti, enda eru þær grunn­ur­inn að við­skipta­tengsl­unum.

Mark­aðsvirði félags­ins er 76 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um átt­faldri upp­hæð mark­aðsvirðis allra félaga í kaup­höll Íslands, eða um átta þús­und millj­örðum króna.

Árlegar tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu um 121 millj­arði Banda­ríkja­dala í fyrra, eða sem nemur um 13 þús­und millj­örðum króna. Í skjóli þess­arar miklu stærðar getur fyr­ir­tækið náð fram miklu hag­ræði við inn­kaup og tekið þátt í verð­sam­keppni af mik­illi festu og þol­in­mæði. Allar stærðir í sam­hengi við íslenskan veru­leika eru yfir­þyrm­andi, og mun tím­inn leiða í ljós hvernig fyr­ir­tækið mun haga sinni verð­stýr­ingu þegar fram í sækir.

Á þess­ari stöðu hagn­ast íslenskir neyt­endur, sem er mikið gleði­efni, og það sem meira er; þetta er líka hollt spark í rass­inn fyrir íslensk versl­un­ar­fyr­ir­tæki sem þurfa nú að velta við steinum, styrkja þjón­ustu sína og jafn­vel að stíga enn stærri skref í átta að nútíma­legum versl­un­ar­háttum. Til dæmis með dýpri og betri útfærslu á net­við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár