Trump: Efnavopnaárás í Sýrlandi hefur breytt viðhorfum mínum

Donald J. Trump, Banda­ríkja­for­seti, sagði á blaða­manna­fundi rétt í þessu, að hann væri búinn að skipta um stefnu í mál­efnum Sýrlands.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti segir að efna­vopna­árás í Sýrlandi í síð­ustu viku, þar sem 72 óbreyttir borg­arar féllu og þar af í það minnsta 20 börn, hefði breytt skoðun hans á mál­efnum Sýrlands. Árásin væri hroll­vekj­andi og það væri hrika­legt að horfa upp á dauða „sak­lausra barna, lít­illa barna“ í mynd­skeiðum af vett­vangi. Hann sagði afstöðu sína gagn­vart Assad Sýr­lands­for­seta breytta, en fram að þessu hefur hann sagt að ekki væri ástæða til að aðhaf­ast gagn­vart Assad.

Trump sagði að árásin hefði á marg­vís­lega vegu „farið yfir strikið“ og hún yrði ekki liðin. Hann sagði að nú þegar hefði verið brugð­ist við henni, en hann sagð­ist enn fremur ekki geta úttalað sig um til hvaða aðgerða verði gripið.

Öll spjóta standa nú á Assad en nær öruggt er talið, sam­kvæmt umfjöllun fjöl­miðla, að stjórn­ar­her Sýrlands, sem lítur boð­valdi for­set­ans, hafi beitt efna­vopn­unum. Hann nýtur stuðn­ings Rússa, sem hafa stutt her­inn í aðgerðum sínum gegn upp­reisn­ar­mönnum og ISIS.

Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkj­anna gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum, sagði árás­ina algjör­lega ólíð­andi, og beindi spjótum sínum að Assad og Rússum, undir stjórn Vladímir Pútín, for­seta. „Hversu mörg börn þurfa að láta lífið áður en Rússar fara að láta sig málið varða?“ sagði Haley þegar hún ávarp­aði full­trúa aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hún sagði að öllum steinum yrði velt við, til að greina hvað hefði nákvæm­lega gerst. Ekkert annað kæmi til greina en sam­staða um að binda enda á hörm­ung­arnar í Sýrlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár