Alþingi tekur fyrir málefni United Silicon

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis mun halda opinn fund um mál­efni verk­smiðju United Silicon í Helguvík.

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis hefur boðað til fundar um mál­efni verk­smiðju United Silicon í Helguvík á mið­viku­dags­morgun. Fund­ur­inn verður opinn fjöl­miðlum og verður sendur út í beinni útsend­ingu á vef Alþingis.

Mikið hefur verið rætt um kís­il­ver United Silicon und­an­farnar vikur, og bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa meðal ann­ars kallað eftir því að verk­smiðj­unni verði hrein­lega lokað vegna meng­unar. Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra hefur sagt að til greina komi að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar, ef ekki tak­ist að draga úr mengun og laga það sem er að.

[links]Um miðjan síð­asta mánuð hafn­aði Umhverf­is­stofnun beiðni fyr­ir­tæk­is­ins um sex mán­aða frest til úrbóta á mengun sem berst frá verk­smiðj­unni og öðrum frá­vikum frá starfs­leyfi þess. Því þarf að fara fram verk­fræði­leg úttekt á hönnun og rekstri verk­smið­unn­ar, og á næstu vikum mun Umhverf­is­stofnun leita eftir til­boðum í slíka úttekt, en það verður gert á kostnað United Sil­icon. Þangað til nið­ur­staða liggur fyrir um þörf­ina á umbótum sam­kvæmt slíkri rann­sókn má kís­il­verk­smiðjan ekki starfa, nema reka einn ljós­boga­ofn.

Fyr­ir­tækið hafði farið fram á að fá frest­inn til að bæta úr frá­vikum og ganga frá úrbótum á meng­un­ar­varna­bún­aði og meng­un­ar­vörnum sem og orsök og upp­tök lykt­ar­meng­un­ar. Mikið hefur verið fjallað um mengun frá kís­il­verk­smiðj­unni í fjöl­miðlum und­an­far­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár