Umhverfisráðherra: Kemur til greina að loka kísilverinu

Björt Ólafs­dóttir sagði í við­tali við RÚV að staðan í kís­il­veri United Silicon væri algjör­lega óásætt­an­leg.

Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra.
Björt Ólafs­dóttir, umhverf­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það kemur til greina að loka verk­smiðju United Silicon vegna meng­unar frá starf­sem­inni, segir Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra. Þetta kom fram í við­tali við hana á RÚV í kvöld.

Hún tók þar með undir orð Friðjóns Ein­ars­sonar, for­manns bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar, sem hefur kraf­ist þess að kís­il­ver­inu verði lokað vegna arsenik­meng­unar. Umhverf­is­stofnun hefur tak­markað starf­sem­ina meðan rann­sókn fer fram en stöðvar hana ekki.

Eins og greint var frá fyrr í dag, þá hefur Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, beðist afsök­unar á því að hafa greitt götu United Silicon. „Við sem töl­uðum fyrir upp­bygg­ingu United Sil­icon í Helgu­vík og fögn­uðum 500 milljón króna fjár­fest­inga­samn­ingi við félagið í apríl 2014 trúðum lof­orðum fyr­ir­tæk­is­ins um fjöl­breytt og vel launuð störf, góðan rekstur í sátt við lög og regl­ur. Okkur er illa brugð­ið,“ sagði Ásmundur í upp­hafi ræðu sinn­ar á þingi.

Björt sagð­ist í sjón­varps­fréttum RÚV hafa miklar áhyggjur af meng­un­inni. „Það er mjög erfitt að sá þessa gam­al­dags­stefnu vera að raun­ger­ast hér enn og aftur og þó er árið 2017. En þetta er það sem fyrri rík­is­stjórnir, allar, hafa haft á stefnu­skránni hjá sér. Þær hafa veitt skatta­af­slætti til við­líka starf­semi, meng­andi starf­semi. Það er það sem við þurfum að fást við í dag,“ sagði Björt. Hún sagði núver­andi rík­is­stjórn hafa stigið stærsta græna skrefið til að veita ekki skatta­af­slætti til starf­semi sem þess­arar.

Hún sagði koma til greina að láta loka starf­sem­inni, ef ekki tæk­ist að draga úr mengnun og laga það sem væri að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár