Ekki útilokað að sömu erfiðleikar komi upp hjá Thorsil og PCC

Búið er að bæta við nýjum kröfum í starfs­leyfi Thorsil og PCC, en þó er ekki hægt að úti­loka að erf­ið­leikar og ófyr­ir­séð mengun muni stafa af þeim kís­il­verum líkt og United Silicon. Umhverf­is­stofnun segir ýmsa ann­marka á umhverf­is­mati og margt van­reifað.

Kísilver United Silicon í Helguvík.
Kísilver United Silicon í Helguvík. Mynd: United Silicon

Ýmsir ann­markar eru á mats­skýrslu á umhverf­is­á­hrifum á kís­il­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, sam­kvæmt mati Umhverf­is­stofn­unar. Ýmislegt var van­reifað þegar mat á umhverf­is­á­hrifum verk­smiðj­unnar fór fram. Þetta kemur fram í svari Umhverf­is­stofn­unar við fyr­ir­spurn frá Skipu­lags­stofnun, sem Kjarninn hefur undir höndum.

Skipu­lags­stofnun sendi Umhverf­is­stofnun bréf í febr­úar síð­ast­liðnum vegna frétta­flutn­ings af upp­bygg­ingu kís­il­vers United Silicon í Helguvík. Ítrek­aðar fréttir hafa verið sagðar af mengun sem stafar frá starf­sem­inni, og um helg­ina sagði bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar að hún vildi láta loka verk­smiðj­unni.

Stofn­unin seg­ist hafa farið yfir gögn máls­ins sem lögð voru fram þegar mat á umhverf­is­á­hrifum verk­smiðj­unnar fór fram, og segir að í frum­mats­skýrslu um áhrif á loft­gæði hafi þess hvergi verið getið að búast mætti við frá­vikum á mengun við gang­setn­ingu á verk­smiðj­unni. Alltaf hafi verið gert ráð fyrir því að styrkur helstu meng­un­ar­efna yrði undir meng­un­ar­mörkum. Því segir Skipu­lags­stofnun það vekja athygli hversu mikið og þrá­látt ónæði hafi verið af völdum loft­meng­unar frá því að starf­semi hófst hjá United Silicon. Stofn­unin óskaði því eftir upp­lýs­ingum um það hvers konar mengun væri um að ræða og hver sé styrkur helstu meng­un­ar­efna.

Loks spurði Skipu­lags­stofnun Umhverf­is­stofnun álits um það hvort ein­hver efn­is­at­riði hafi verið van­reifuð þegar mat á umhverf­is­á­hrifum fór fram.

Umhverf­is­stofnun segir að svo hafi verið. Allt umhverf­is­matið og öll losun meng­un­ar­efna voru miðuð við það að rekstur verk­smiðj­unnar gangi eins og best verður á kosið. Ofnar séu keyrðir á kjör­hita þannig að lítið sem ekk­ert af meng­andi efnum mynd­ist, og að allur reykur frá ofn­unum fari í reyk­hreinsi­virki. „Raunin er hins vegar sú að rekstur kís­il­vers Sam­ein­aðs Sílikons hefur ekki verið með þessum hætti,“ segir í bréfi Umhverf­is­stofn­unar. 

[links]Oft hafi þurft að slá út ofn­inum sem kom­inn er í vinnslu, „og meðan ofn­inn er ekki í kjör­hita geta mynd­ast ýmis óæski­leg efni.“ Þegar ofn­inum er slegið út þarf líka að lækka í reyk­hreinsi­virki, og þar sem engir skor­steinar eru á ofn­inum eða ofn­hús­inu berst sá reykur sem þá mynd­ast út um hurðir og loft­ræstiop. Ekki var gert ráð fyrir þess­ari losun í mati á umhverf­is­á­hrifum, en Umhverf­is­stofnun segir að það virð­ist vera tengsl á milli fjölda kvart­ana frá almenn­ingi og ofn­stoppa hjá kís­il­ver­inu.

Þá eru fleiri teg­undir los­ana sem ekki var gert ráð fyrir í umhverf­is­mat­inu. „Alveg ljóst er að ekki var fjallað um lykt­ar­mengun í mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­anna sem hér um ræðir og er það því eitt­hvað sem er einnig van­reifað í mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­anna,“ segir Umhverf­is­stofnun.

Spurðu líka um Thorsil og PCC

Í bréfi sínu til Umhverf­is­stofn­unar minnir Skipu­lags­stofnun á það að auk kís­il­vers United Silicon hafi einnig farið fram mat á umhverf­is­á­hrifum á kís­il­veri Thorsil í Helguvík og verk­smiðju PCC á Bakka. „Með hlið­sjón af reynslu við gang­setn­ingu verk­smiðju United Silicon veltir stofn­unin því fyrir sér hvort búast megi við sams konar erf­ið­leikum þegar Thorsil og PCC hefja sinn rekstur og óskar álits Umhverf­is­stofn­unar um hvort ein­hver efn­is­at­riði hafi verið van­reifuð þegar mat á umhverf­is­á­hrifum verk­smiðj­anna fór fram.“

Umhverf­is­stofnun segir að í ljósi alls sé ekki hægt að full­yrða að erf­ið­leikar og ófyr­ir­séð mengun muni ekki stafa af kís­il­verum Thorsil og PCC. „Umhverf­is­stofnun vill þó benda á að við útgáfu starfs­leyfis til handa Thorsil skil­aði Mannvit fyrir hönd fyr­ir­tæks­is­ins inn minn­is­blaði þar sem fram kemur sam­an­burður á losun og með­höndlun útblást­urs Thorsil við starf­semi Sam­ein­aðs Sílikons. Í nið­ur­lagi þess minn­is­blaðs kemur fram að upp­spretta reykj­ar­lyktar muni verða mun minni þar sem fyr­ir­tækið muni nota koks en ekki timbur við bökun fóðr­inga. Að auki verði dreif­ing á hugs­an­legum raka og rok­g­jöfnu efni úr ofn­fóðr­inum meiri vegna hærri skor­steins. „Því ætti fólk ekki að verða fyrir óþæg­indum af upp­keyrslu ofna í verk­smiðjum Thorsil“ segir í minn­is­blaði Mannvits,“ segir í svari Umhverf­is­stofn­unar.

Í starfs­leyfi Thorsil hafi verið bætt við tveimur nýjum kröfum hvað varðar bökun á fóðr­ingum og lykt frá fram­leiðslu­starf­sem­inni. „Þessi ákvæði eru til­komin vegna reynsl­unnar af rekstri Sam­ein­aðs Sílikons en ekki er um slík ákvæði að ræða í starfs­leyfi Sam­ein­aðs Sílikons, enda um ófyr­ir­séða mengun að ræða eins og rakið hefur verið hér að framan. Umhverf­is­stofnun vinnur nú að starfs­leyfi fyrir PCC og hefur stofn­unin óskað eftir sam­bæri­legu minn­is­blaði frá því fyr­ir­tæki við vinnslu starfs­leyf­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár