Skoska þingið vill nýja þjóðaratkvæðagreiðslu

Skoska þingið hefur sam­þykkt að kraf­ist verði við­ræðna við bresk stjórn­völd um nýja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði. Bresk stjórn­völd vilja ekki ræða neitt slíkt fyrr en að lok­inni útgöngu úr ESB í fyrsta lagi.

Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands.
Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands. Mynd: EPA

Skoska þingið sam­þykkti í dag til­lögu um að krefj­ast ann­arrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands. 69 þing­menn greiddu atkvæði með til­lög­unni en 59 gegn henni.

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, sagði í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unnar á þing­inu að nú sé það lýð­ræð­is­legur vilji að við­ræður eigi að hefj­ast við stjórn­völd í London um aðra þjóð­arak­tævða­greiðslu. Almenn­ingur eigi að fá þann val­mögu­leika þegar útgöngu­samn­ingur Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu er ljós.

Sturgeon sagði jafn­framt að það væri óverj­andi og í raun ómögu­legt fyrir stjórn­völd í London að reyna að standa í vegi fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði. „Þetta snýst fyrst og fremst um það að gefa skosku þjóð­inni val um fram­tíð þessa lands.“

Skosk stjórn­völd muni því á næstu dögum, eftir að búið er að virkja 50. grein Lissabon-sátt­mál­ans og hefja form­legt útgöngu­ferli Bret­lands úr ESB, óska eftir við­ræðum við stjórn­völd í London.

David Mundell, ráð­herra gagn­vart Skotlandi, hefur hins vegar strax sagt að stjórn­völd í London muni ekki ræða við skosk stjórn­völd um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu nærri því strax. Það verði ekki á meðan verið sé að ganga frá útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu og ekki heldur fyrr en að breyt­ing­ar­tímunum sé lokið. Það gæti þýtt að engin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin fyrr en eftir 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár