Michael Flynn hættur sem þjóðaröryggisráðgjafi

Flynn ræddi við sendi­herra Rúss­lands um við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum, en hann sagði við Mike Pence, vara­for­seta, að hann hefði ekki gert það. FBI hefur nú sam­skipti Flynn við Rússa til rann­sóknar.

Michael Flynn er hættur sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Donalds J. Trump Banda­ríkja­for­seta, en sam­kvæmt fréttum Bloomberg er hann sagður hafa logið að Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, um að hann hefði ekki rætt við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum við Ser­gei Kislyak, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum.

Keith Kellogg hefur tíma­bundið tekið við sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi.

Svo virð­ist sem nú liggi fyrir að Flynn hefði rætt þving­an­irnar, og ýmis­legt fleira, við Kislyak í aðdrag­anda emb­ætt­is­töku for­set­ans og einnig í nokkrum sím­tölum í des­em­ber. Alrík­is­lög­reglan FBI er nú með þessi sam­skipti Flynn við sendi­herr­ann til rann­sóknar, en óbreyttum borg­urum í Banda­ríkj­unum er óheim­ilt að eiga í sam­skiptum um þjóðar­ör­ygg­is­mál Banda­ríkj­anna við diplómata eða sendi­herra frá öðrum löndum.

Staða þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa er ein æðsta staðan innan banda­ríska stjórn­kerf­is­ins og vinnur hann náið með for­set­anum.

Í upp­sagn­ar­bréfi sínu, sem birt hefur verið á vef Boston Globe, játar Flynn að hafa greint Mike Pence, vara­for­seta, rang­lega frá um sam­skipti sín við sendi­herra Rúss­lands. Hann seg­ist jafn­framt hafa beðið for­set­ann og vara­for­set­ann afsök­unar.

Flynn neit­aði í fyrstu að ræða málið við fjöl­miðla, þegar efa­semdir um að hann væri að segja satt komu upp, en sagð­ist síðan ekki vera viss um það hvort hann hefði rætt við rúss­neska sendi­herr­ann. Þetta leiddi til vanga­velta um það hvort hann hefði greint Pence rangt frá, og atburða­rásin í dag virð­ist hafa verið hröð og leiddi hún til þess að Flynn hætti.

Stephen Miller, ráð­gjafi Trumps, neit­aði fyrr í dag að svara því þegar fjöl­miðlar inntu hann eft­ir því hvort Trump bæri traust til Flynns. Sagði hann að for­set­inn sjálf­ur yrði að svara því. Hann hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um afsögn Flynns.

Sonur Flynn, Micheal G. Flynn, hætti í teym­inu hjá Donald Trump í des­em­ber síða­sliðnum, fyrir að dreifa fölskum fréttum um Hillary Clinton. Þeir feðgar eru því báðir horfnir á braut og koma ekki að valda­þráðunum í Hvíta hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár