Verðhrun Icelandair - Hvað veldur?

Icelandair hrap­aði á mark­aði í gær. Vísi­talan lækk­aði um ríf­lega 6 pró­sent enda vegur Icelandair þungt fyrir heild­ina.

Mark­aðsvirði Icelandair Group hefur hrapað á und­an­förnum mán­uðum. Gengi bréfa félags­ins er nú rúm­lega 16 á hlut en var tæp­lega 40 fyrir rúmu hálfu ári, í lok maí mán­aðar í fyrra. Þá var mark­aðsvirði félags­ins um 189 millj­arða króna en nú er það 83 millj­arða, miðað við stöðu félags­ins í lok árs í gær.

Icelandair er eitt mik­il­væg­asta fyr­ir­tæki lands­ins og hefur verið það á upp­gangs­tímum í ferða­þjón­ust­unni á und­an­förnum sex árum.

Gengi félags­ins á mark­aði í gær var með nokkrum ólík­indum en mark­aðsvirði félags­ins lækk­aði um rúm­lega 24 pró­sent eftir að til­kynn­ing var send til kaup­hallar og greint þar frá versn­andi afkomu rekstr­ar­ins.

Miðað við síð­ustu birtu upp­lýs­ingar frá fyr­ir­tæk­inu þá nema eignir félags­ins tæp­lega 1,2 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 145 millj­örðum króna. Eigið fé félags­ins nemur tæp­lega 600 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 74 millj­örðum króna.

En hvers vegna er gengi bréfa félags­ins að lækka jafn mikið og raun ber vitni, á sama tíma og mik­ill vöxtur hefur verið í ferða­þjón­ustu?

Nokkur atriði má þar nefna sér­stak­lega, sem varða rekstur félags­ins og hags­mun­ina sem eru undir.

1. Í til­kynn­ingu Icelandair til kaup­hallar frá því í gær, kemur fram að miðað við núver­andi for­sendur geri félagið ráð fyrir að EBITDA árs­ins 2017 verði 140-150 millj­ónir Banda­ríkja­dala en í fyrra var hún 210 til 220 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Ljóst er að þessar upp­lýs­ingar virð­ast hafa farið illa í mark­að­inn, enda um mikla lækkun að ræða milli ára gangi spáin eftir.

2. Gert er ráð fyrir að verð á þotu­elds­neyti (án til­lits til varna) verði 540 USD/tonn að með­al­tali, gengi EUR gagn­vart USD verði að með­al­tali 1,07 og geng­is­vísi­tala íslensku krón­unnar verði 164 að með­al­tali á árinu 2017. Vísi­talan hefur að und­an­förnu verið í kringum 160. Eins og oft, er erfitt að spá fyrir um hvernig gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum þró­ast á þessu ári, en á því síð­asta styrkt­ist krónan veru­lega, eða um 18,4 pró­sent að með­al­tali. Of mikil styrk­ing getur verið erfið fyrir Icelandair.

3. Í til­kynn­ingu Icelandair er sér­stak­lega vikið að því að gangur í alþjóð­stjórn­málum kunni að hafa haft áhrif á gang mála þegar kemur að pönt­unum á ferða­lögum til Íslands. Ekki er nákvæm­lega greint frá því um hvaða hrær­ingar er að ræða. Ferða­bann Banda­ríkj­anna á íbúa sjö ríkja þar sem múslimar eru í meiri­hluta hefur þó vakið gríð­ar­leg við­brögð í Banda­ríkj­unum. The Economist fjall­aði meðal ann­ars um mögu­leg mikil nei­kvæð áhrif af bann­inu á ferða­þjón­ust­una og segir þau geta orðið víð­tæk. Fólk muni ein­fald­lega hræð­ast það að ferð­ast út fyrir landið, ekki síst inn­flytj­endur. Allur hrær­ingur í dval­ar­leyfum geti leitt til hræðslu hjá fólki. Í fyrra komu 415 þús­und Banda­rískir ferða­menn til lands­ins, eða um 24 pró­sent af heild­inni.

4. Stærstu hlut­hafar félags­ins eru líf­eyr­is­sjóðir. Stærsti ein­staki hlut­haf­inn er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna með 14,6 pró­sent. Af fimm stærstu hlut­höf­unum eru auk Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna Gildi og LSR með ríf­lega sjö pró­sent hlut hvort. Þessi mikla lækkun að und­an­förnu, upp á meira en hund­rað millj­arða að mark­aðsvirði, hefur því verið tölu­vert högg fyrir þá.

5. Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, hefur sagt að þrátt fyrir skamm­tíma­sveiflur sem komi sér illa fyrir félagið þá sé félagið með sterka og trausta stöðu til lengdar litið. Hót­el­starf­semin gangi vel. Harðn­andi sé í sam­keppni á flug­leiðum til og frá Íslandi og það komi við rekst­ur­inn. Þá vinni félagið að því að hag­ræða í rekstri og auka tekjur, eins og kostur er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár