Páll Magnússon studdi ekki ráðherraskipan Bjarna

Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, studdi ekki þá ráð­herra­skipan sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, lagði til og var sam­þykkt af þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks í gær­kvöldi. Páll greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni. Þar seg­ist hann ekki hafa getað stutt ráð­herra­skip­an­ina af tveimur ástæðum. Önnur væri sú að skip­anin gangi í veiga­miklum atriðum gegn því lýð­ræð­is­lega umboði sem þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefðu áunnið sér í próf­kjörum og síðan í kosn­ing­unum í haust. Í öðru lagi fæli hún í sér „lít­ils­virð­ingu gagn­vart Suð­ur­kjör­dæmi þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vann sinn stærsta sigur í kosn­ing­unum.“

[adspot]

Til­kynnt var um ráð­herra­skipan nýrrar rík­is­stjórnar í gær­kvöldi. Í henni munu sitja ell­efu ráð­herr­ar. Bjarni Bene­dikts­­­son verður for­­sæt­is­ráð­herra, Þór­­­dís Kol­brún Reyk­­­fjörð Gylfa­dótt­ir verður ráð­herra ferða­­mála, iðn­­aðar og ný­­­sköp­un­­­ar, Guð­laug­ur Þór Þórð­­ar­­­­son verður ut­an­­­rík­­s­i­ráð­herra, Sig­ríður And­er­­­sen verður dóms­­­mála­ráð­herra, Jón Gunn­­­ar­s­­­son verður ráð­herra sam­­­göng­u­­­mála, byggða­­mála, sveita­­­stjórn­­­­­ar­­­mála og Krist­ján Þór Júlí­us­­­son verður mennta­­­mála­ráð­herra. Þá verð­­ur Unn­ur Brá Kon­ráðs­dótt­ir for­­­seti Alþing­­­is. Því verða ráð­herrar Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins sex tals­ins en hinir tveir flokk­­arnir í rík­­is­­stjórn­­inni, Við­reisn og Björt fram­­tíð, fá saman fimm ráð­herra.

Bene­dikt Jóhann­es­­son verður fjár­­­mála­ráð­herra, Þor­­steinn Víglunds­­son félags- og jafn­­rétt­is­­mála­ráð­herra, Þor­­gerður Katrín Gunn­­ar­s­dótt­ir, sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, Ótt­­arr Proppé heibrigð­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­- og auð­linda­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár