Brúin mikla

Fá svæði í ver­öld­inni hafa vaxið jafn mikið í hinum vest­ræna heimi og Seattle-svæðið á und­an­förnum árum. Svæðið iðar af lífi. Tækni­fyr­ir­tæki hafa vaxið hratt og útflutn­ingur frá svæð­inu sömu­leiðis. Þarna gætu legið mikil tæki­færi fyrir íslensk fyr­ir­tæki.

Í Washington-ríki í norð­vest­ur­hluta Banda­ríkj­anna er mik­ill efna­hags­legur upp­gangur. Einkum og sér í lagi á Seattle-stór­svæð­inu. Í borg­inni sjálfri búa 652 þús­und manns en á stór­svæði borg­ar­innar, með nær­sveit­ar­fé­lögum með­töldum, eru 3,7 millj­ónir. Í rík­inu sjálfu eru íbúar rúm­lega sjö millj­ónir.

Ástæð­urnar fyrir efna­hags­legum upp­gangi eru einkum þær að fjöl­breyttar stoðir hag­kerf­is­ins á svæð­inu eru nú flestar hverjar á miklu vaxt­ar­skeiði. Stærstu fyr­ir­tækin á svæð­inu, einkum tækni- og smá­sölu fyr­ir­tæki, hafa stækkað ört og sé mið tekið af áformum þeirra þá hefur aðeins sést í topp­inn á ísjak­anum. Þá hefur hafn­ar­svæðið blómstrað og útflutn­ingur auk­ist mikið, einkum til Kína. Það má með sanni segja að hér sé hin bjarta hlið alþjóða­væð­ing­ar­innar sjá­an­leg.

Tenging við Ísland

Ísland hefur tölu­verða mögu­leika á svæð­inu, af ýmsum ástæðum. Frá því að Icelandair hóf að fljúga í beinu flugi milli Seattle og Kefla­víkur, árið 2009, hefur efna­hags­legt sam­band þessa ríkis við Ísland styrkst. Þegar mest er, eru flug á milli Seattle og Kefla­víkur sextán á viku. Óhætt er að full­yrða að þessi flug­leið hafi opnað nýja mögu­leika fyrir ferða­þjón­ust­una á Íslandi, en allt útlit er fyrir að banda­rískir ferða­menn á Íslandi verði um 350 þús­und tals­ins á þessu ári.

En að öðru leyti eru við­skipta­leg tengsl ekki svo mikil. Marel og Hamp­iðjan eru með starf­semi á svæð­inu, og tækni­fyr­ir­tæki hafa í gegnum tíð­ina einnig myndað hingað tengsl, ekki síst við ris­ann Microsoft sem tengir sínar stóru og sterku tekju­pípur um allan heim. Sé horft til talna Hag­stof­unnar þegar kemur að utan­rík­is­verslun Íslands, þá liggja aug­ljós tæki­færi í því að efla við­skipta­leg tengsl við hávaxt­ar­svæðin í Banda­ríkj­unum.

Eitt aug­ljós­asta svæðið í þeim efnum er Seattle-svæðið. Árið 2015 nam utan­rík­is­verslun Íslands við EES-mark­aðs­svæðið í Evrópu um 489 millj­örðum króna en sam­bæri­leg tala fyrir Banda­ríkin var aðeins 35 millj­arðar. Við­skiptin hafa þó farið vax­andi við Banda­ríkin. Árið 2014 námu þau um 29 millj­örðum, og voru 4,9 pró­sent af heild­inni, en í fyrra var sama hlut­fall komið í 5,7 pró­sent. Inn­flutn­ingur hefur auk­ist mikið og má meðal ann­ars rekja það til versl­unar í gegnum netið.

Helsti efna­hag­legi styrkur Seattle svæð­is­ins er fjöl­breyti­leiki. Sum fyr­ir­tækj­anna á svæð­inu eru alþjóð­legir risar en önnur lítil og með­al­stór, en þau hafa styrkt veru­lega útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins á und­an­förnum árum.

Styrk­leikum og ein­kennum hag­kerf­is­ins má skipta í tíu hluta.

1. Nátt­úru­legar und­ir­stöður hag­kerf­is­ins eru ekki aðall svæð­is­ins, en þær eru samt sterkar. Vöru­flutn­ingar á landi, í gegnum Washington ríki - til Kanada í norðri, Oregon í suðri og Idaho í austri - hafa farið vax­andi. Fátt bendir til ann­ars en að sú þróun haldi áfram. Vöxt­ur­inn í því sem kalla má nátt­úru­leg stoð liggur þó í hafn­ar­svæð­inu. Seattle-Tacoma-Hampton svæðið er þriðja stærsta og mik­il­væg­asta hafn­ar­svæði Banda­ríkj­anna, og í seinni tíð hefur svæðið verið eins konar mið­punktur mik­illa vöru­flutn­inga á Asíu markað. Þetta hafa fyr­ir­tækin á svæð­inu nýtt sér og það sama má segja um mörg alþjóð­leg fyr­ir­tæki sem hafa komið sér fyrir á svæð­inu gagn­gert til að styrkja tengsl við vöxt­inn í Asíu. Skemmti­ferða­skip hafa einnig verið að fjölga stoppum sínum á svæð­inu en í fyrra komu yfir milljón ferða­menn til svæð­is­ins með skemmti­ferða­skipum. Áður fyrr var þetta ekki vin­sæl stoppi­stöð skemmti­ferða­skipa.

2. Evrópa, Seattle, Asía. Þegar borg­ar­yf­ir­völd hér á svæð­inu eru að reyna að laða til sín fyr­ir­tæki þá beina þau oft athygl­inni að því, að Seattle sé brúin mikla - fyrir vörur, þjón­ustu, fólk og þekk­ingu af ýmsu tagi - bæði til Asíu og inn á Evr­ópu­markað, og til baka sömu leið. Í flæð­inu þarna á milli er Seattle í miðj­unni og nýtur góðs af því.

3. Þessi við­skipta­leið hefur sprungið út á und­an­förnum árum, ekki síst eftir fjár­málakrepp­una á árunum 2007 til 2009. Útflutn­ingur hefur vaxið um 82 pró­sent frá Seattle svæð­inu frá árinu 2009, og má einkum þakka það vax­andi við­skiptum fyr­ir­tækja við Asíu­markað. Af um 67,2 millj­arða Banda­ríkja­dala útflutn­ingi (7.700 millj­arðar) frá svæð­inu í fyrra, voru við­skipti upp á 14,5 millj­arða Banda­ríkja­dala til Kína. Af heild­inni er útflutn­ingur frá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum umsvifa­mik­ill, en hann stendur undir 89 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni. Stærsta við­skipta­land svæð­is­ins í Evrópu er Bretland, en heild­ar­út­flutn­ingur þangað nam í fyrra 2,4 millj­örðum Banda­ríkja­dala eða sem nemur um 270 millj­örðum. Til sam­an­burðar þá nam heild­ar­út­flutn­ingur Íslands til Bret­lands 120 millj­örðum í fyrra, og er Seattle-svæðið því meira en tvö­falt stærri útflytj­andi til Bret­lands en Ísland.

4. Maður er nefndur Bill Gates. Hann er næst auð­ug­asti maður heims, en heild­ar­eignir hans eru nú metnar á 90 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 10 þús­und millj­örðum króna. Ýmislegt má gera fyrir þann pen­ing, en Bill Gates og kona hans Melinda, hafa ákveðið að gefa hann allan frá sér í góð­gerð­ar­starf. Eign­irnar eru bundnar í alls konar eignum, en grunn­ur­inn að veldi hans má rekja til Microsoft, sem hann stofn­aði ásamt Paul Allen og stýrði um ára­bil. En hvers vegna skiptir þessi maður svona miklu máli fyrir Seattle? Ákvörðun hans - og Allens - um að byggja Microsoft upp á Seattle svæð­inu - þeirra heima­svæði - hefur haft gríð­ar­lega mikil áhrif á hag­kerfi svæðs­ins. Ekki nóg með að 44 þús­und starfi hjá Microsoft, með öllum marg­feld­is­á­hrif­unum sem fylgja, heldur hefur Gates einnig byggt upp góð­gerða­stofnun hans og eig­in­konu hans á svæð­inu. Bill and Melinda Gates Foundation er með höf­uð­stöðvar í Seattle. Starf stofn­un­ar­innar er umfangs­mikið og fjöl­breytt, og vex stöðugt.

5. Paul Allen hefur heldur ekki látið sitt eftir liggja en hann er þekktur fyrir ríku­legan stuðn­ing sinn við sprota á Seattle-svæð­inu og einnig menn­ingar- og íþrótta­starf. Hann er helsti bak­hjarl NFL-liðs­ins Seattle Seahawks, og hefur gefið borg­inni sam­tals tólf söfn - þar á meðal hið magn­aða The Experience tón­list­ar­safn. Á síð­ustu árum hefur hann lagt áherslu á fast­eigna­við­skipti, og á meðal ann­ars landið þar sem Amazon hefur byggt upp nýjar höf­uð­stöðvar sínar.

6. Mestu vaxt­ar­á­formin á svæð­inu eru hjá Amazon. Jeff Bezos, stofn­andi þess og for­stjóri og lang­sam­lega auð­ug­asti maður heims­ins, er með svo stórar hug­myndir um starf­semi Amazon í fram­tíð­inni, að hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins hafa átt í erf­ið­leikum með að trúa því sem hann hefur borið á borð á und­an­förnum árum. Eignir Bezos eru nú metnar á 135 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 13.500 millj­örðum króna.

Þrátt fyrir ótrú­lega stór­huga áform hefur fyr­ir­tæk­inu tek­ist að skila betri rekstr­ar­tölum en reiknað var með, og vöxt­ur­inn er ógn­ar­hraður. Í ítar­legu bréfi til hlut­hafa, árið 2015, sagði hann að miklir kraftar væru að leys­ast úr læð­ingi í tækni­heim­inum sem margir átt­uðu sig ekki á hversu magn­aðir væru. Í dag eru um 40 þús­und starfs­menn hjá Amazon á Seattle-svæð­inu, en í lok árs 2020 er því spáð að 70 þús­und manns - mest starfs­menn með tækni­menntun af ýmsu tagi - muni starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Fyr­ir­tækið er nú að setja upp höf­uð­stöðvar númer 2, og stendur fyrir sam­keppni meðal borga um stað­setn­ingu þeirra. Mark­aðsvirðið er komið nærri 800 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 80 þús­und millj­örðum króna.

7. Í dag er áætlað að tæp­lega 200 þús­und tölvu- og tækni­mennt­aðir ein­stak­lingar séu við störf á svæð­inu, og er vöxtur þar meira en 10 pró­sent á ári. Amazon, sem í grunn­inn er smá­sölurisi á net­inu, er með áform um að feta sig inn á nýjar brautir þegar kemur að verslun, póst­þjón­ustu, afþr­ey­ingu og marg­vís­legum öðrum þáttum.

Meðal ann­ars eru uppi stór áform um að efla sölu á ferskvöru beint til heim­ila og stærri við­skipta­vina (veit­inga­staða og stór­mark­aða). Íslensk fyr­ir­tæki ættu að gefa þessum áformum gaum, því eins og áformin líta út hjá Amazon þá mun skipta miklu fyrir mat­væla­fram­leið­endur í heim­inum - meðal ann­ars í sjáv­ar­út­vegi - að átta sig á þeim miklu breyt­ingum sem framundan eru í versl­un­ar­geir­anum. Kaup fyr­ir­tæk­is­ins á Whole Foods, og um 500 versl­unum þess víðs vegar, eru liður í að efla þessa starf­semi og styrkja þjón­ust­una.

Amazon Go búðin, við höf­uð­stöðv­arnar í Seattle, er síðan alveg sér kap­ít­uli. Ótrúlega mögnuð tækni sem leyfir við­skipta­vinum að ganga inn, ná í vörur og fara út, án þess að stoppa. Þegar út er komið kemur síðan strim­ill­inn beint í sím­ann.

8. Seattle hefur lengi verið hjartað í flug­iðn­aði í heim­inum, þar sem ris­inn Boeing er með höf­uð­stöðvar sínar. Fyr­ir­tækið er stærsti vinnu­veit­andi svæð­is­ins, með um 80 þús­und fasta starfs­menn en með marg­feld­is­á­hrifum er talið að Boeing-hag­kerfið taki til um 213 þús­und starfa.

Til sam­an­burðar þá er vinnu­mark­að­ur­inn íslenski sam­tals 197 þús­und störf. Oft hefur verið nefnt, að Boeing sé mik­il­vægt mót­vægi við sveifl­urnar í öðrum geirum atvinnu­lífs­ins á svæð­inu, því í nið­ur­sveiflum í gegnum síð­ustu ára­tugi hefur Boeing náð vopnum sínum með stórum samn­ingum við Banda­ríkja­her. Skammt frá höf­uð­stöðvum Boeing er her­stöð Banda­ríkja­hers, þar sem starfa að jafn­aði 56 þús­und manns. Þetta styrkir efna­hag svæð­is­ins.

Við­skipt­sam­band Boeing og Icelandair er með umfangs­mestu við­skipta­sam­böndum íslensks fyr­ir­tækis við alþjóð­legt fyr­ir­tæki. Flug­véla­kaup eru risa­vaxin við­skipti, og umfang end­ur­nýj­unar flug­flota Icelandair tekur til meira en 100 millj­arða króna.

9. Háskól­inn, Uni­versity of Washington, hefur í ára­tugi verið einn af virt­ustu háskólum Banda­ríkj­anna, einkum og sér í lagi á sviði raun­vís­inda og verk­fræði. Borg­ar­yf­ir­völd, háskól­inn og fyr­ir­tæki á svæð­inu hafa unnið skipu­lega að því að þróa háskóla­starfið í takt við þarf­irnar í atvinnu­líf­inu á svæð­inu. Skólinn hefur á sér ein­stak­lega gott orð og hafa auð­menn á svæð­inu styrkt hann veg­lega. Paul Allen, Jeff Bezos og Bill Gates hafa allir fjár­magnað end­ur­bætur á stór­kost­legu háskóla­svæði skól­ans. Þó fleiri háskólar á svæð­inu hafi á sér gott orð, þá er UW stærstur þeirra og mik­il­vægastur þegar kemur að tengsl­unum við hag­kerfið.

10. Sköp­un­ar­kraftur í menn­ing­ar­lífi hefur í seinni tíð verið eitt af helstu ein­kennum Seattle, ekki síst í Evrópu. Grunge-rokk­bylgjan, sem varð til í vest­ur­hluta Seattle fyrir um ald­ar­fjórð­ungi, hafði mikil áhrif á tísku- og tón­list­ar­strauma, og gætir þess­ara áhrifa enn. Þetta tíma­bil fær ríku­legan sess á fyrr­nefndu tón­list­ar­safni sem Paul Allen gaf borg­inni.

Einn af áhrifa­mestu mönnum í Seattle-hag­kerf­inu, að mati rit­stjórnar Seattle-tíma­rits­ins, er Jonathan Poneman, sem var annar stofn­enda Sub Pop Records, sem hagn­að­ist vel á útgáfu hljóm­sveita frá svæð­inu, meðal ann­ars Soundgarden, Nirvana, Pearl Jam og Alice in Chains, og hefur í seinni tíð ein­beitt sér að fyrstu skrefum tón­list­ar­manna þegar kemur að útgáfu.

Borg­ar­yf­ir­völd leggja mikið upp úr því að tengja þessa ímynd borg­ar­innar við ferða­þjón­ustu á svæð­inu, og við­halda þannig „spennu“ fyrir því að koma á stað­inn og upp­lifa það sem hún hefur að bjóða. Borgin er svo til ein­stök þegar kemur að afþr­ey­ingu, þar sem nær allt sem hug­ur­inn girn­ist er innan stuttrar fjar­lægðar. Auk borg­ar­lífs og suðu­potts nýsköp­unar, þá eru skíða­svæði, flugu­veiðiár, vín­ekrur, kaffi­ræktun og blóm­strandi brugg­húsa­menn­ing í mik­illi nálægð við borg­ar­svæðið.

11. Þetta er inn­flytj­enda­sam­fé­lag, alveg inn að beini, og í því hefur falist mik­ill efna­hags­legur styrkur, ekki síst á und­an­förnum árum. Í miklum upp­gangi tækni­fyr­ir­tækja á svæð­inu hafa þau ekki síst leitað til Asíu eftir tækni­mennt­uðu fólki. Á svæð­inu eru stór sam­fé­lög Indverja og Suður-Kóreu búa, og Kínverja sömu­leiðis. Þeir eru fjöl­mennir hjá öllum helstu tækni­fyr­ir­tækjum svæðs­ins. Fyrir utan Amazon og Microsoft eru það meðal ann­ars Alphabet (Google), sem er með stóra starfs­stöð í Kirkland á Seattle-svæð­inu, Facebook og Oracle. Borg­ar­yf­ir­völd hafa brugð­ist við áformum stjórn­valda í Hvíta hús­inu um að vísa ólög­legum inn­flytj­endum úr landi af ákveðni, og hafa talað fyrir því að inn­flytj­endur geti andað rólega í Seattle og nágrenni. Þar séu þeir vel­komnir og verði áfram. Fyrir svæði eins og Seattle er þetta einn af lyk­il­þáttum þess, að efna­hag­ur­inn blóm­stri og vaxi í rétta átt. Það er að sam­fé­lagið sé opið og mót­tæki­legt fyrir fólki með þekk­ingu á hinum ýmsu sviðum.

12. Viltu kaffi­bolla? Seattle-hag­kerfið er með svarið við þessu, og það er jákvætt. Hér fædd­ist Starbucks kaffi­húsa­keðjan og eru höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins ennþá á svæð­inu. Vöxtur þess hefur verið ævin­týri lík­astur. Árið 2003 voru sjö þús­und Starbucks kaffi­hús í heim­inum en á þessu ári eru þau orðin 24 þús­und. Vöru­merkið er orðið eitt það verð­mætasta í ver­öld­inni, og hefur vöru­þróun þess á und­an­förnum árum orðið fjöl­breytt­ari en í fyrstu. Margar vörur fyr­ir­tæk­is­ins eru seldar í búðum um allan heim, og er gert ráð fyrir að helsti vöxt­ur­inn verði á því sviði á und­an­förnum árum.

13. Líkt með Microsoft og Amazon, þá eru marg­feld­is­á­hrifin mikil af því að vera með stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki á svæð­inu. Í kringum þau hafa sprottið upp sér­hæfð ráð­gjafa­fyr­ir­tæki og tækni­fyr­ir­tæki af ýmsu tagi sem hjálpa þeim að við­halda sam­keppn­is­hæfni sinni í alþjóð­legu umhverfi. Þau áhrif hjálpa hag­kerf­inu á svæð­inu. Stoð­irnar verða fjöl­breytt­ari og um leið sveigj­an­legri.

14. Vinnu­mark­að­ur­inn á Seattle-svæð­inu er um 2,4 millj­ónir manna, en 3,7 millj­ónir í rík­inu öllu. Til sam­an­burðar er vinnu­mark­að­ur­inn á Íslandi um 197 þús­und manns, eða innan við 1/10 af því sem hann er á Seattle-svæð­inu. Árið 2014 var Seattle útnefnd sjálf­bærasta borg Banda­ríkj­anna, og er þar ekki aðeins litið til umhverf­is­mála heldur ekki síður efna­hags­mála.

15. Framundan er svo mesta vaxt­ar­skeið sem svæðið hefur staðið frammi fyrir. Enn fremur verður spenn­andi að fylgj­ast með því hvernig tækninýj­ungar muni breyta starf­sem­inni á svæð­inu.

Vöru­þróun Microsoft er umfangs­mikil þegar kemur að gervi­greind og öðrum tengdum þáttum, en fyr­ir­tækið er með fulla vasa fjár og má búast við því að fram­þróun á hinum ýmsu hliðum tölvu­tækn­innar verði hröð þegar hún á annað borð lítur dags­ins ljós.

Í byrjun þessa árs átti Microsoft 135 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé frá rekstri, eða sem nemur tæp­lega 14 þús­und millj­örðum króna. Aðeins Apple á meira í tækni­geir­anum, en fyr­ir­tækið situr nú á rúm­lega 260 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Það sem helst ein­kennir svæðið, í seinni tíð, er ein­lægur vilji borg­ar­yf­ir­valda og einnig sveit­ar­fé­laga og sýslna í nágrenni, að vinna með fyr­ir­tækj­unum á svæð­inu svo það geti styrkt sig efna­hags­lega inn í fram­tíð­ina. Fá svæði í ver­öld­inni búa nú við við­líka vöxt alþjóð­legra fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár