Vinnuhópar skipaðir – vísbendingar um árangur viðræðna strax eftir helgi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Viðreisn og Björt fram­tíð hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður.

Bjarni Benediktsson hefur formlegt stjórnarmyndunarumboð frá forseta Íslands og ætlar nú að reyna að mynda ríkisstjórn með Bjartri framtíð og Viðreisn.
Bjarni Bene­dikts­son hefur form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Íslands og ætlar nú að reyna að mynda rík­is­stjórn með Bjartri fram­tíð og Viðreisn.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist vænta þess að það muni skýr­ast strax eftir helgi hvort það muni ganga að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar. Ekki ríkir mikil bjart­sýni um að þessir flokkar muni ná saman um myndun nýrrar rík­is­stjórnar.

Morg­un­blaðið segir frá því í dag að nú verði skip­aðir starfs­hópar innan þess­ara þriggja flokka til þess að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður og setja saman drög að stjórn­ar­sátt­mála. Formenn þess­ara flokka hitt­ust síð­degis í gær og ákváðu að láta á það reyna með form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum hvort hægt væri að mynda rík­is­stjórn þess­ara flokka, áður en Bjarni myndi skila stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu aftur til Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands.

Fram hefur komið að helsti ásteyt­ing­ar­steinn í við­ræðum þess­ara flokka mun vera mál­efni aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki viljað efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eins og Viðreisn og Björt fram­tíð hafa farið fram á. Mála­miðlun í þeim efnum verður hugs­an­lega að Alþingi fái málið til með­ferðar en í Morg­un­blað­inu í dag segir að Sjálf­stæð­is­menn vilji heldur að málið verði þings­ins frekar er rík­is­stjórn­ar­innar. Málið yrði þá tekið fyrir í lok kjör­tíma­bils­ins.

Bjarni Bene­dikts­son lét hafa eftir sér í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi að það myndi skýr­ast strax eftir helgi hvort form­legar við­ræður myndu skila árangri. Ekki eru allir innan Bjartar fram­tíðar eða Við­reisnar á eitt sáttir með að hefja form­legar við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frétta­blaðið hefur eftir Óttarri Proppé að ástæða þess að Björt fram­tíð gangi til slíkra við­ræðna sé að „við eygjum von á því að ein­hver mögu­leiki [sé] að ræða málin og ná góðum umbótum.“ Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, tekur í sama streng og seg­ist vona að þetta muni ganga sem allra best.

Ef form­legar við­ræður þess­ara flokka fara út um þúfur er talið næsta víst að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, fái næst form­legt tæki­færi til þess að spreyta sig á að mynda rík­is­stjórn. Katrín hefur staðið fast á því að Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn greini á um of veiga­mikla hluti til þess að geta starfað saman í rík­is­stjórn. Þess vegna hefur því verið spáð að Katrín myndi reyna að mynda rík­is­stjórn yfir miðj­una og til vinstri, sé hinn klass­íski póli­tíski kvarði not­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár