Eygló ætlar í varaformanninn ef Sigurður Ingi verður formaður

Eygló Harð­ar­dóttir, rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, ætlar að bjóða sig fram til vara­for­manns flokks­ins ef Sigurður Ingi Jóhanns­son verður kjör­inn for­maður. Þetta til­kynnti hún í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Þar segir Eygló: „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur gengið í gegnum erf­iða tíma á síð­ustu vikum og mán­uðum. Fjöl­margir flokks­menn hafa kallað eftir breyt­ingum á for­ystu flokks­ins og hefur því kalli nú verið svarað. Eftir vand­lega íhugun hef ég tekið þá ákvörðun að verði nýr for­maður kjör­inn á flokks­þing­inu mun ég bjóða mig fram sem vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.“

Sigurður Ingi til­kynnti í gær að hann ætl­aði að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, sitj­andi for­manni, á flokks­ins­þingi í byrjun októ­ber. Hann sagði í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun að hann hefði kosið að Sig­mundur Davíð skýrði aflands­fé­laga­mál sín og eft­ir­mál þeirra með öðrum hætti en hann hefði gert. Hann segir skiptar skoð­anir innan flokks­ins hvort að Sig­mundi Davið hafi tek­ist að end­ur­reisa traust sitt á meðal Fram­sókn­ar­manna og hafnar því að hafa lofað Sig­mundi Davíð að bjóða sig ekki fram gegn hon­um.

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hefur einnig sagt að hún íhugi að bjóða sig fram til vara­for­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár