Sigurður Ingi hafnar því að hafa lofað að bjóða sig ekki fram gegn Sigmundi

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að hann hefði kosið að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skýrði aflands­fé­laga­mál sín og eft­ir­mál þeirra með öðrum hætti en hann hefði gert. Hann segir skiptar skoð­anir innan flokks­ins hvort að Sigmundi Davið hafi tek­ist að end­ur­reisa traust sitt á meðal Fram­sókn­ar­manna og hafnar því að hafa lofað Sigmundi Davíð að bjóða sig ekki fram gegn honum. Þetta kom fram í við­tali við Sigurð Inga í Viku­lok­unum í dag.

Sigurður Ingi lýsti því yfir í gær að hann ætl­aði að bjóða sig fram til for­manns flokks­ins gegn Sigmundi Davíð. Það geri hann vegna fjölda­margra áskor­ana sem honum hafi borist á liðnum vikum og vegna þeirrar ólgu sem sé innan flokks­ins vegna stöðu Sig­mundar Davíðs.

Sú ólga hefur auk­ist á und­an­förnum dögum, sér­stak­lega eftir frammi­stöðu Sig­mundar Davíðs í leið­toga­þætti á RÚV á fimmtu­dags­kvöld. Þar hafn­aði hann því alfarið að ástæður þess að kosið verði í októ­ber en ekki næsta vor teng­ist afsögn hans sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl síð­ast­liðnum, í kjöl­far Wintris-máls­ins.

Sigurður Ingi sagði í Viku­lok­unum að það hafi engum dulist að það væru skiptar skoð­anir innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um þær útskýr­ingar sem Sig­mundur Davíð gaf í leið­toga­þætt­inum. Hann segir einnig að for­mann­inum hafi ekki tek­ist að end­ur­reisa traust sitt á meðal allra flokks­manna.

Aðspurður hvort að það hafi verið full­reynt hvort að Sigmundi Davíð tæk­ist að end­ur­reisa traust sitt sem for­manns sagði Sigurður Ingi að hann hefði lagt sig allan fram við það, á því tíma­bili sem hann hefði gegnt starfi for­sæt­is­ráð­herra, að skapa svig­rúm fyrir Sigmund Davíð til að gera það, skapa ró í flokknum og að koma í veg fyrir að fylk­ingar myndu mynd­ast innan Fram­sóknar. Það hafi hann meðal ann­ars gert með trausts­yf­ir­lýs­ingum á for­mann­inn. Á síð­ustu vikum hafi hins vegar orðið ljóst að ætl­un­ar­verk Sig­mundar Davíðs um að end­ur­reisa traust hafi ekki tek­ist.

Sigurður Ingi sagði enn fremur að hann hafi ekki gefið Sigmundi Davíð lof­orð um að bjóða sig ekki fram gegn honum, líkt og Sig­mundur Davíð hefur haldið fram. Hann hafi til­kynnt for­mann­inum um ætlun sína að bjóða sig fram sím­leiðis áður en að hann gerði slíkt opin­ber­lega í kvöld­fréttum RÚV í gær. Sigurður Ingi sagði að Sig­mundur Davíð hefði lýst yfir von­brigðum sínum með ákvörðum for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Sigurður Ingi sagð­ist hafa ákveðin skiln­ing á þeim sjón­ar­miðum fólks sem telur að Sig­mundur Davíð hafi ekki gefið nægi­lega traustar eða eðli­legar skýr­ingar á Wintris-mál­inu. „Ég hefði kosið að hann hefði gert það með öðrum hætti. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár