Stríðið gegn uppljóstrurum

Sá fáheyrði atburður hefur nú átt sér stað að rit­stjórn dag­blaðs­ins Washington Post hefur hvatt til að heim­ild­ar­maður þess verði sóttur til saka. Margir upp­ljóstr­arar hafa verið ákærðir í Banda­ríkj­unum og aðrir eru í útlegð.

Uppljóstrarar hafa þurft að sæta refsingum fyrir að leka gögnum.
Upp­ljóstr­arar hafa þurft að sæta refs­ingum fyrir að leka gögnum. Mynd: EPA

Aldrei hafa fleiri upp­ljóstr­arar verið ákærðir í Banda­ríkj­unum en í for­seta­tíð Barack Obama. Stjórn­völd þar í landi hafa not­ast við gömul njósn­a­lög (e. the Espionage Act) til að ákæra upp­ljóstr­ara og fjöl­margir þeirra sitja nú í fang­elsi eða hafa flúið til ann­arra landa. Upp­lýs­ing­arnar sem lekið hefur verið eru margs konar en þær geta verið leyni­leg eða við­kvæm gögn á vegum ríkja eða fyr­ir­tækja. Upp­ljóstr­arar koma þessum gögnum síðan til lög­fræð­inga, fjöl­miðla eða ann­arra stofn­anna sem koma fyrir augu almenn­ings með einum eða öðrum hætti.

Á tímum raf­rænna upp­lýs­inga er hugs­an­lega ennþá auð­veld­ara að safna gögnum, afrita og deila en nokkurn tím­ann áður. Það gæti skýrt fjölgun upp­ljóstrana og við­brögðin við þeim. Inter­netið hefur líka átt sinn þátt í að auð­velda aðgengi almenn­ings að leka­gögnum og aldrei hefur verið eins auð­velt að fara í gegnum ógrynni skjala á tölvu­tæku formi. Fjölmörg nýleg dæmi eru um gagna­leka af ýmsum toga.

Dagblað krefst ákæru á hendur heimildarmanni

Dag­blaðið Washington Post komst á spjöld sög­unnar á dög­unum fyrir að gefa út yfir­lýs­ingu þar sem hvatt er til að heim­ild­ar­maður þeirra sé sóttur til saka. Blaðið gengur jafn­vel svo langt að hvetja hann að koma aftur til Banda­ríkj­anna til að horfast í augu við eigin afbrot og taka afleið­ing­unum. Hann eigi að vera til­bú­inn að standa fyrir framan jafn­ingja sína í kvið­dómi og verja sig. Í grein­inni segir að það væri vissu­lega í anda þeirra sem stunda borg­ara­lega óhlýðni, að þeir hafi alltaf verið reiðu­búnir að fara í fang­elsi.

Í öllu falli leggur rit­stjórn blaðs­ins til að stjórn­völd og Snowden kom­ist að ein­hvers konar nið­ur­stöðu eða mála­miðlun um refs­ingu fyrir brot hans. Segja má með sanni að þessi afstaða sé sér­stök í ljósi þess að blaðið birti og not­að­ist við upp­lýs­ingar sem lekið var.

Þessi afstaða Washington Post hlýtur að vekja upp margar spurn­ingar innan fjöl­miðla­geirans og hjá blaða­mönnum. Þetta er sér­stak­lega áhuga­vert fyrir þær sakir að blaðið vann til Pulizer-verð­launa í apríl 2014 fyrir umfjöllun byggða á upp­lýs­ingum frá Snowden.

Ritstjórn gegn blaðamönnum

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem rit­stjórn blaðs­ins lýsir yfir áhyggjum sínum vegna upp­lýs­inga­leka Snowdens. Í júlí 2013, mán­uði eftir lek­ann, birt­ist rit­stjórn­ar­grein þar sem hug­leitt var hvernig hægt væri að stöðva upp­lýs­inga­lek­ann til þess að hags­munum Banda­ríkj­anna yrði ekki ógnað frekar. Og þrátt fyrir að við­ur­kenna að sumar upp­lýs­ing­anna varði almanna­hags­muni, eins og njósnir yfir­valda á almennum borg­urum, þá virt­ust áhyggj­urnar bein­ast að hinum gögnum sem Snowden tók.

Hin þrjú blöðin sem birt hafa mikið af þeim gögnum sem Snowden lak hafa komið fram og stutt hann opin­ber­lega. Þetta eru blöðin Intercept, New York Times og Guardian en þau hafa beðið banda­rísk yfir­völd að leyfa honum að snúa aftur án þess að eiga yfir höfði sér ákæru.

Ný bíómynd um Snowden

Edward Snowden er sá sem um ræðir en hann er einn fræg­asti upp­ljóstr­ari nútím­ans. Hann lak gögnum um viða­mikið eft­ir­lit banda­rískra yfir­valda með þegnum sínum í júní 2013 en hann vann á þeim tíma hjá Þjóðar­ör­ygg­is­stofnun Banda­ríkj­anna, NSA, sem hafði eft­ir­lit með síma- og net­notkun í tæp­lega tvö­hund­ruð löndum. Ekki er vitað nákvæm­lega hversu yfir­grips­miklar upp­lýs­ing­arnar voru sem Snowden lak en skjölin hlaupa á tugum þús­unda og hafa að geyma upp­lýs­ingar um bresku, banda­rísku og áströlsku leyni­þjón­ust­una.

Eftir frum­sýn­ingu kvik­myndar Oliver Stone um Edward Snowden, sem nefn­ist ein­fald­lega Snowden, hafa mann­rétt­inda­sam­tökin, Amnesty International, efnt til netá­kalls. Þau krefj­ast þess að Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, veiti Edward Snowden sak­ar­upp­gjöf en hann heldur nú til í Rúss­landi.

Mega ekki verja sig

Njósn­a­lögin (e. the Espionage Act) eru lög frá árinu 1917 sem notuð eru í dag til að ákæra upp­ljóstr­ara fyrir að deila óop­in­berum gögnum. Vandinn sem upp­ljóstr­arar standa frammi fyrir þegar þeir eru ákærðir er að þeir geta ekki borið fyrir sig þeirri vörn að upp­ljóstr­unin hafi verið í almanna­þágu.

Jeffrey Alex­ander Sterling er einn þess­ara upp­ljóstr­ara. Hann er banda­rískur lög­fræð­ingur og fyr­ir­ver­andi starfs­maður CIA, leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna. Hann var dæmdur fyrir að brjóta títt­nefnd njósn­a­lög með því að leka upp­lýs­ingum um aðgerðir stjórn­valda þar í landi til að grafa undan kjarn­orku­stefnu ann­arra landa.

Thomas Drake, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Þjóðar­ör­ygg­is­stofnun Banda­ríkj­anna (NSA), var ákærður fyrir að brjóta njósn­a­lögin. Hann hélt því aftur á móti fram að hann væri ofsóttur fyrir að efast um gagn­semi svo­kall­aðar Trailblazer-aðgerðar NSA. Hann var þó aðeins dæmdur fyrir smá­vægi­leg brot og hefur hann æ síðan verið aðgerð­ar­sinni sem mót­mælir eft­ir­lits­stefnu stjórn­valda.

Chelsea Manning er fyrr­ver­andi her­maður sem heims­byggðin hefur fylgst með síðan hún lak leyni­legum gögnum um stíðið í Íran og Afganistan á síð­una WikiLeaks. Hún var dæmd í júlí 2013 fyrir meðal ann­ars að brjóta njósn­a­lögin og situr nú 35 ára dóm­inn af sér. Hún komst nýverið í frétt­irnar fyrir að fara í hung­ur­verk­fall til að mót­mæla slæmri með­ferð í fang­elsi.

Julian Paul Assange er ástr­alskur for­rit­ari og blaða­maður sem er frægastur fyrir að stofna leka­síð­una WikiLeaks. Hann er einnig eft­ir­lýstur í Banda­ríkj­unum fyrir margs konar brot, meðal ann­ars fyrir að aðstoða Chelsea Manning, og rann­sókn yfir Assange stendur enn yfir. Hann dvelur nú í sendi­ráði Ekvador í London en hann á yfir höfði sér ákæru fyrir nauðgun í Svíþjóð. Yfirvöld í Svíþjóð hafa ekki séð sér fært að lofa að fram­selja hann ekki til Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár