Tugþúsundir milljarða í lausu fé hjá fimm tæknifyrirtækjum

Mestu tæknirisar Banda­ríkj­anna hafa rakað til sé pen­ingum með árang­urs­ríkum rekstri á und­an­förnum árum.

Stærstu tækni­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna hafa notið mik­illar vel­gengni á und­an­förnum árum og eiga þau gríð­ar­lega upp­hæði í lausu fé um þessar mundir.

Sé mið tekið af stöðu mála um mitt þetta ár, þá áttu fimm fyr­ir­tæki – sé horft fram­hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum – meira en þriðjun af öllum lausa­fjár­eignum fyr­ir­tæki í Banda­ríkjum.

Þetta eru Apple, Microsoft, Alphabet (Google), Cisco og Oracle.

5. Hug­bún­að­ar­ris­inn Oracle hefur hagn­ast veru­lega á miklum breyt­ingum sem orðið hafa í tækni­geir­anum á und­an­förnum árum, meðal ann­ars með til­komu snjall­síma. Um mitt þetta ár átti fyr­ir­tækið 52,3 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur rúm­lega sex þús­und millj­örðum króna.

4. Cisco hefur vaxið með svip­uðum hætti og Oracle, með fram­leiðslu hug­bún­aðar og örgjafa. Veltan hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum, og reiðu­féð safn­ast upp. Um mitt þetta ár átti fyr­ir­tækið ríf­lega 60 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé, eða sem nemur um sjö þús­und millj­örðum króna.

3. Alphabet (Google) hefur svo einnig vaxið mikið. Snjall­síma­væð­ingin í heim­inum hefur verið eins og byr í seglin hjá aug­lýs­ing­aris­anum, sem stofn­aður var fyrir 18 árum á þessu, eða árið 1998. Um mitt þetta ár átti fyr­ir­tækið 73,1 millj­arða Banda­ríkja­dala.

2. Microsoft hefur stundum orð á sér fyrir að svifa­seint í hug­bún­að­ar­geir­anum, en það er nú í besta falli umdeil­an­legt. Fjár­hagur fyr­ir­tæk­is­ins, sem hefur ennþá helj­ar­tak á heim­il­is­tölvu­geir­anum í heim­inum og einnig í þjón­ustu við fyr­ir­tæki, með marg­vís­legu og fjöl­breyttu vöru­úr­vali. Þá hafa Xbox One leikja­tölv­urnar selst vel. Um mitt þetta ár átti fyr­ir­tækið 102,6 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé, eða sem nemur 11.800 millj­örðum króna.

1. Apple er eitt í úrvals­deild­inni, þegar að þessu kemur. Ótrúleg vel­gengni iPhone frá því hann kom fyrst fram, hefur skapað annað vanda­mál fyrir fyr­ir­tækið. Sem er að ákveða hvað það á að gera við þær fúlgur fjár sem fyr­ir­tækið á. Um mitt þetta ár átti fyr­ir­tæið 215,7 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé. Það er upp­hæð sem nemur 25 þús­und millj­örðum króna, eða um tífaldri árlegri lands­fram­leiðslu Íslands. Það ætti því að ráða vel við að greiða 14 millj­arða Banda­ríkja­dala sekt­ina sem það þarf að greiða, vegna skatta­laga­brota, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár