Kaup lífeyrissjóðanna á Arion banka runnin út í sandinn

Viðræður um kaup hóps líf­eyr­is­sjóða á 87 pró­sent hlut Kaup­þings í Arion banka hafa runnið út í sand­inn. Þetta hefur gerst sam­hliða því að nýir stjórn­endur hafa tekið við hjá Kaup­þingi í kjöl­far þess að nauða­samn­ingur bank­ans var klár­aður um síð­ustu ára­mót og eign­ar­halds­fé­lagið Kaupþing tók við eft­ir­stand­andi eignum hans. Engar við­ræður eru í far­vatn­inu. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Kaupþing þarf að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­lok 2018. Takist það ekki mun rík­is­sjóður leysa bank­ann til sín. Þetta var hluti af því sam­komu­lagi sem kröfu­hafar Kaup­þings gerðu við ríkið þegar samið var um upp­gjör á slita­búi bank­ans á síð­asta ári. For­svars­menn Kaup­þings vildu ekki ræða við Morg­un­blaðið um hvernig þeir hyggð­ust losa sig við eign­ar­hlut­inn innan þess tíma­frests sem gef­inn hefur verið.

DV greindi frá því í byrjun viku að hópur um 20 starfs­manna Kaup­þings ætti von á sam­tals 1,5 millj­arði króna í bón­us­greiðslur ef sala á eignum félags­ins gengi vel á næstu tæpu tveimur árum. Þær bón­us­greiðslur ná ekki til æðstu stjórn­enda Kaup­þings og þykir lík­legt að sér­stakt bónus­kerfi, með hærri greiðslum, verði sett upp fyrir þá. Lang­verð­mætasta eign Kaup­þings er hlut­ur­inn í Arion banka.

Bjarna fannst hugmyndin skrýtin

Greint var frá því í fréttum í nóv­em­ber í fyrra að stærst­u líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafi hug á því að kaupa Arion banka af kröfu­höf­um ­Kaup­þings og að þeir hafi ráðið menn til að halda sér­stak­lega utan um það ­ferli. Það gerð­ist í kjöl­far þess að fjár­­­mála­­fyr­ir­tæk­in Virð­ing og Arct­­ica Fin­ance reyndu að setj­a ­saman hóp til að kaupa bank­ann, m.a. með aðkomu líf­eyr­is­sjóð­anna. Þeir ákváðu frekar að sleppa milli­liðnum og ráð­ast sjálfir beint í það verk­efni að reyna að eign­ast bank­ann.

Stærst­u líf­eyr­is­­sjóð­ir lands­ins, Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­­sjóð­ur­ versl­un­­ar­­manna og Gildi líf­eyr­is­­sjóður leiddu verk­efn­ið. Öll­u­m líf­eyr­is­­sjóð­u­m lands­ins var boðið að vera með.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði þessi fyr­ir­hug­uðu kaup að umtals­efni á á umræðu­fundi um eign­ar­hald á at­vinnu­fyr­ir­tækj­um, hlut­verki líf­eyr­is­sjóða og áhrif á sam­keppni sem haldn­ar voru á Hilton Reykja­vik Nor­dica í maí. Hann ­sagði að staðan hafi verið þannig einn dag­inn að ólík verð­bréfa­fyr­ir­tæki hefð­u verið að koma sér fyrir til að keppa um hlut í banka en svo hafi hann les­ið einn dag­inn frétt um að líf­eyr­is­sjóð­irnir ætl­uðu ekki að starfa með þeim held­ur að taka sig saman og kaupa banka. Þá yrði þetta orðið dálítið skrýt­ið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru með um 45 pró­sent af skráðum hluta­bréfum og eru svo farnir að tala sig saman um að kaupa fjár­mála­fyr­ir­tæki sem eru að þjón­usta ­fyr­ir­tækin sem þeir eru aðal­eig­endur að[...]Þetta slær mig mjög illa og auð­vitað er ástæða til að staldra við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár