Lífeyrissjóðirnir ætla að kaupa Arion banka og setja hann á markað

Líf­eyr­is­sjóð­irnir ætla ekki að vinna með Virðingu né Arctica Finance að kaupum á Arion banka. Vilja forð­ast tor­tryggni og ávirð­ingar um að færa völdum einka­fjár­festum völd og auð.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins ætla sér að kaupa Arion banka og við­ræður gætu haf­ist strax í næstu viku. Þeir ætla ekki að taka þátt í þeim kaup­enda­hópum sem fjár­mála­fyr­ir­tækin Virðing og Arctica Finance hafa verið að reyna að setja saman und­an­farnar vikur, þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing á stærstu sjóði lands­ins um að gera það.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður munu leiða kaupin. Öllum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins verður boðið að vera með og gangi kaupin eftir ætla líf­eyr­is­sjóð­irnir að skrá Arion banka á markað strax á næsta ári.

Þessi atburð­ar­rás hefur verið að teikn­ast upp í lið­inni viku. Við­mæl­endur Kjarnans innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins segja að sjóð­irnir séu ekki síður að horfa til þess hvernig kaup þeirra á banka muni líta út í augum almenn­ings eins og þeirrar ávöxt­unar sem slík kaup geti leitt af sér. Sjóð­irnir vilja að það sé eng­inn vafi um að þeir ætli sér ekki að færa hópi einka­fjár­festa völd og auð með þátt­töku þeirra í kaupum á einni stærstu og kerf­is­lega mik­il­væg­ustu eign íslensks hag­kerfis.

Ekki hægt að kaupa banka án lífeyrissjóða

Fyrir liggur að Arion banki verður ekki keyptur af inn­lendum aðilum nema með aðkomu líf­eyr­is­sjóða lands­ins. Umfang kaupanna, sem verður lík­lega um 100 millj­arðar króna, er það mikið að aðrir fjár­festar á íslenska mark­aðnum hafa ekki bol­magn til að ráð­ast í þau án þeirra aðkomu. Þess vegna hafa þau tvö fjár­mála­fyr­ir­tæki sem hafa reynt að koma saman kaup­enda­hópi að Arion banka, Arctica Finance og Virðing, róið að því öllum árum að fá stærstu líf­eyr­is­sjóði lands­ins til liðs við sig.

Eðli aðkomu fyr­ir­tækj­anna tveggja að hinum fyr­ir­hug­uðu kaupum er ólíkt. Virðing ætl­aði sér að vera í ráð­gjaf­ar­hlut­verki og fá þókn­anir fyrir aðkomu sína. Á meðal einka­fjár­festa sem tengj­ast þeim hópi sem Virðing var að setja saman eru Hregg­viður Jónsson, stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Veritas, og Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers, var einn eig­andi Haga og stofn­aði fyrr á þessu ári verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði með nokkrum fyrrum lyk­il­starfs­mönnum úr Straumi. Sig­ur­björn hefur verið nokkuð áber­andi í fjár­fest­ingum á Íslandi á und­an­förnum árum, og þá í slag­togi við fjár­fest­anna Árna Hauksson og Hall­björn Karlsson. Þeir keyptu meðal ann­ars saman hlut í Símanum í umdeildum við­skiptum fyrr á þessu ári.

Þá hefur nafn Bjarna Ármans­sonar, fyrrum banka­stjóra Glitnis, verið nefnt í þessu sam­hengi. Kjarninn hefur hins vegar fengið stað­fest að hann komi hvergi nærri hópnum né öðrum sem ætla sér að reyna að eign­ast íslenskan banka.

Gamla Kaupþing vs. gamli Landsbankinn

Arctica Finance ætl­aði sér hins vegar sjálft að taka þátt í kaup­unum með ýmsum einka­fjár­festum sem eru í við­skiptum við fyr­ir­tækið og líf­eyr­is­sjóði lands­ins.

Aðkoma fyr­ir­tækj­anna að hugs­an­legum kaupum hefur verið tor­tryggð vegna ýmissa þátta. Það hefur meðal ann­ars verið bent á að Virðingu sé stýrt af fólki sem áður var í lyk­il­stöðum innan Kaup­þings. Hannes Frímann Hrólfs­son, for­stjóri Virð­ingar, var áður aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta hjá Kaup­þingi. Hann var einnig um tíma aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar og mark­aðsvið­skipta hjá Arion banka eftir hrun.

Ármann Þor­valds­son, fyrrum banka­stjóri Kaupþing Singer&Fried­lander í London og þá einn helsti stjórn­andi Kaup­þings­sam­stæð­unnar, er í dag fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­þró­unar hjá Virðingu. Frosti Reyr Rún­ars­son, áður for­stöðu­maður verð­bréfa­miðl­unar hjá Kaup­þingi, er nú fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Virð­ingar. Og þá er Ásgeir Jónsson, fyrrum for­stöðu­maður grein­inga­deildar Kaup­þings, efna­hags­ráð­gjafi Virð­ingar.

Arctica Finance er síðan stýrt af Bjarna Þórði Bjarna­syni, aðstoð­ar­fram­kvæmd­ar­stjóra og Stefáni Þór Bjarna­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Bjarni Þórður á 50,2 pró­sent hlut og Stefán Þór 33,5 pró­sent hlut í Arctica. Bjarni var for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Lands­bank­ans áður en sá banki hrundi haustið 2008 og Stefán Þór var yfir fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans á Íslandi. Fleiri starfs­menn Arctica störf­uðu með þeim þar. Bjarni Þórður situr m.a. í stjórn Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins.

Lífeyrissjóðirnir vilja forðast tortryggni

Stjórnir og stjórn­endur stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins ákváðu hins vegar undir lok síð­ustu viku að fara ekki í sam­starf með Virðingu eða Arctica. Þess í stað ætla þeir að bjóða sjálfir beint í 87 pró­sent hlut slita­stjórnar Kaup­þings í Arion banka, án milli­liða á borð við ofan­greind fyr­ir­tæki. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru nokkrar hliðar á þeirri ákvörðun.

Í fyrsta lagi leist for­svars­mönnum líf­eyr­is­sjóð­anna illa á að þurfa að velja á milli Virð­ingar og Arctica Finance. Hvor hóp­ur­inn sem yrði fyrir val­inu þá yrði ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna alltaf tor­tyggð og ástæður þess að annar hóp­ur­inn hafi verið valin fram yfir hinn dregin í efa. For­tíð­ar­tengsl stjórn­enda fyr­ir­tækj­anna tveggja við tvo af föllnu bönk­unum, sem kost­uðu líf­eyr­is­sjóð­ina mikið tap þegar þeir féllu, voru einnig nefnd sem ástæða sem, með réttu eða röngu, myndi gera sam­starf við Virðingu eða Arctica Finance við kaup á banka tor­tryggi­leg.

Í öðru lagi gætir óþols innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins gagn­vart því að milli­liðir séu að hagn­ast stór­kost­lega á baki sjóð­anna í fjár­fest­ingum. Það sé í raun engin þörf á því. Líf­eyr­is­sjóð­irnir geti ráð­ist sjálfir, og án aðkomu milli­lið­anna, í fjár­fest­ingar sem þessar og án þess að greiða háar þókn­anir fyrir veitta þjón­ustu.

Í þriðja lagi er for­svars­mönnum líf­eyr­is­sjóð­anna mjög umhugað um hvernig kaup á banka munu líta út í augum almenn­ings. Þeir eru, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans, upp­teknir af því almanna­tengsla­hlið máls­ins. Þessar áhyggjur eru sér­stak­lega fyr­ir­ferða­miklar hjá full­trúum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í stjórnum líf­eyr­is­sjóða. „Sjóð­irnir vilja ekki sýn­ast taka ein­hverja einka­fjár­festaklíku fram yfir aðra,“ sagði einn við­mæl­andi Kjarnans innan úr líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu.

Auk þess skiptir máli í þessu sam­hengi að líf­eyr­is­sjóðir ætla sér ekki að vera virkir eig­endur í fyr­ir­tækjum sem þeir eiga. Í ljósi þess að líf­eyr­is­sjóð­irnir hefðu alltaf þurft að kaupa þorra þess hlutar i Arion sem er til sölu myndu völd þeirra einka­fjár­festa sem yrðu með í kaup­unum því ýkj­ast mjög umfram þann hlut sem þeir myndu kaupa. Þannig gæti lít­ill hópur einka­fjár­festa verið með tögl og haldir í stjórnun banka í krafti minni­hluta­eignar sinnar, vegna óvirkni líf­eyr­is­sjóð­anna.

Brenndir af umtali og umfjöllun um Símasöluna

Það fer heldur ekki á milli mála að aðdrag­andi skrán­ingu Símans á markað hefur farið mjög illa í margar lyk­il­leik­menn í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Það er einkum tvennt sem ber þar að nefna.

Snemma á þessu ári var hand­salað sam­komu­lag um að stjórn­endur Símans og alþjóð­legir fjár­festar myndu fá að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum af Arion banka á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Þessi ráð­stöfun naut stuðn­ings innan líf­eyr­is­sjóð­anna, sem eru sam­an­langt stærstu eig­endur Símans í dag. Það þótti skyn­sam­legt að binda stjórn­endur Símans, meðal ann­ars Orra Hauksson for­stjóra hans, við fyr­ir­tækið til lengri tíma og fá inn alþjóð­lega fjár­festa. Einn þeirra sem greint var frá að myndi taka þátt í við­skipt­unum var Sig­ur­björn Þor­kels­son. Sökum reynslu hans á alþjóða­fjár­mála­mark­aði var ekki mikil and­staða við þátt­töku hans í kaup­unum.

Þegar það kom hins vegar í ljós, nokkrum dögum áður en almennu hluta­fjár­út­boði í Símanum, þar sem fag­fjár­festar á borð við líf­eyr­is­sjóð­ina voru að greiða tug­pró­senta hærra verð fyrir hluti í Símanum en ofan­greindur hópur greiddi, að Árni Hauksson og Hall­björn Karlsson, við­skipta­fé­lagar Sig­ur­björns, hefðu tekið þátt í við­skipt­unum, varð mikil reiði innan líf­eyr­is­sjóð­anna. Sér­stak­lega þar sem félag Sig­ur­björns, Árna og Hall­björns keypti stærstan hluta þeirra bréfa sem seld voru á lægra verði í aðdrag­anda skrán­ingar. Skiln­ings­leysi gætir á meðal líf­eyr­is­sjóð­anna gagn­vart þeirri ákvörðun Arion banka, selj­anda bréf­anna, að selja umsvifa­miklum inn­lendum einka­fjár­festum bréf á lægra verði en fag­fjár­festum á borð við líf­eyr­is­sjóð­ina.

Þá er sú ákvörðun Arion banka að selja völdum hópi við­skipta­vina fimm pró­sent hlut í Símanum á 2,8 krónur á hlut nokkrum dögum fyrir útboð þar sem með­al­gengi reynd­ist 3,33 krónur á hlut, harð­lega gagn­rýnd innan líf­eyr­is­sjóða líkt og víðar í sam­fé­lag­inu. Arion banki hefur við­ur­kennt að ekki hafi verið vel að söl­unni staðið. Þeir sem keyptu bréfin halda þeim hins vegar og geta selt þau eftir einn og hálfan mánuð. Gengi Símans hefur hækkað 26 pró­sent frá því að vild­ar­við­skipta­vin­irnir fengu að kaupa. Virði hlut­ar­ins hefur hækkað um 360 millj­ónir króna frá því að hann var keyptur.

Þurfa að vinna saman til að dæmið gangi upp

Líf­eyr­is­sjóð­unum er því mjög umhugað um eins lítil tor­tryggni og mögu­legt muni umlykja kaupin á Arion banka. Og svo hagn­ast þeir auð­vitað meira á við­skipt­unum ef milli­lð­unum og þókn­unum þeirra er sleppt.

Ljóst er þó að flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins þurfa að vinna saman ef að kaup­unum á Arion á að verða. Stærstu sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, LSR og Gildi, munu taka stóra hluti í bank­anum, allt að tíu pró­sent hvor. Aðeins minni sjóðir munu geta tekið í kringum fimm pró­sent hlut hver og svo koll af kolli. Þannig ætla sjóð­irnir sér að kaupa þann 87 pró­sent hlut slita­stjórnar Kaup­þings sem er til sölu og vera eig­endur bank­ans á móti íslenska rík­inu, sem á 13 pró­sent.

Stefnt er að því að fara í við­ræður og ganga frá kaup­unum með fyr­ir­vara á næstu vikum. Í kjöl­farið, gangi það ferli snuðru­laust fyrir sig, verður að fram­kvæmda ítar­lega áreið­an­leika­könnun á Arion banka áður en hægt verður form­lega að ganga frá kaup­unum. Það gæti því gerst á fyrri hluta næsta árs. Og gangi kaupin eftir er það skýr stefna líf­eyr­is­sjóð­anna að skrá Arion banka síðan á markað. Sú skrán­ing, sem yrði sú allra stærsta sem átt hefur sér stað á Íslandi eftir hrun, myndi gefa öllum Íslend­ingum jaft tæki­færi til að kaupa hluti í bank­anum. Og hún gæti orðið að veru­leika strax á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár