Fjárfestirinn að baki einkasjúkrahúsinu vill ekki tjá sig

Formaður vel­ferð­ar­nefndar segir að ganga verði úr skugga um að íslensk lög tryggi að heil­brigð­is­kerfi lands­ins sé ekki ógnað eftir þörfum fjár­festa. Meg­in­fjár­festir­inn að baki einka­sjúkra­húsi í Mos­fellsbæ vill ekki tjá sig um málið.

Formaður vel­ferð­ar­nefndar segir nauð­syn­legt að ganga úr skugga um hvort íslensk lög geti tryggt að heil­brigð­is­kerfi lands­ins sé ekki ógnað. Áætluð bygg­ing einka­sjúkra­húss í Mos­fellsbæ verður rædd á fundi vel­ferð­ar­nefndar í dag. Nefndin fær til sín full­trúa frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og Land­lækn­is­emb­ætt­inu til að fara yfir stöð­una. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, segir í sam­tali við Kjarnann að nauð­syn­legt sé að fá fram upp­lýs­ingar um hvernig málið blasi við heil­brigð­is­yf­ir­völdum og hvað sé fram undan.

„Við þurfum að ganga úr skugga um hvort raunin sé sú að yfir­völd geti ekki haft uppi neinar varnir ef þau telja að heil­brigð­is­kerfi lands­ins sé ógnað,“ segir Sigríður Ingi­björg. „Heil­brigð­is­kerfið er grunn­stoð í öllum sam­fé­lögum og það er mik­il­vægt að lögin séu þannig að það sé ekki hægt að þróa kerfið í hvaða átt sem er eftir þörfum fjár­festa.“

Vildi ekki tjá sig um málið

Henri Midd­eldorp, fram­kvæmda­stjóri Burbank Holdin BV, sem á meiri­hlut­ann í fyr­ir­tæk­inu MCPB, sem stendur að fram­kvæmd­inni, vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarninn náði tali af honum. Hann sagði að for­svars­menn sjúkra­húss­ins vildu bíða og sjá hvað yfir­völd segðu um málið, enda ætti málið að vera unnið í fullri sam­vinnu við þau.

Ætla að sækja um skattaívilnanir hjá stjórnvöldum

Áætlaður kostn­aður við sjúkra­húsið er um 50 millj­arðar króna. Um er að ræða einka­rekið hátækni­sjúkra­hús fyrir efna­meiri útlend­inga, sem mun leggja sér­staka áherslu á með­ferð við hjarta- og æða­sjúk­dómum. Kjarninn greindi frá því í lok júlí að engar fram­kvæmdir hefj­ist þó við sjúkra­húsið fyrr en for­svars­menn þess eru búnir að sækja um skattaí­viln­anir hjá stjórn­völdum. Þetta sögðu Haraldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar, og Gunnar Ármanns­son, stjórn­ar­maður í MCPB, sem stendur að fram­kvæmd­un­um. Þá verða nöfn fjár­festa heldur ekki gerð opin­ber fyrr en umsagn­irnar verða lagðar fram. Gögn um nöfn fjár­festa og mat frá við­skipta­banka verða lögð fyrir stjórn­völd og hafa for­svars­menn sjúkra­húss­ins frest til þess fram til 1. des­em­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár