Framkvæmdir við einkaspítala hefjast ekki fyrr en ívilnanir fást frá ríkinu

Engar fram­kvæmdir hefj­ast við einka­sjúkra­húsið í Mos­fellsbæ fyrr en íslensk stjórn­völd hafa veitt skattaí­viln­anir. Bæj­ar­stjór­inn í Mos­fellsbæ segir að umræðan und­an­farna daga geta drepið verk­efnið.

Forsvarsmenn einkasjúkrahússins sem reisa á í Mosfellsbæ upplýsa ekki um nöfn fjárfesta fyrr en sótt verður um skattaívilnanir til íslenska ríkisins vegna framkvæmdarinnar. Framkvæmdir við sjúkrahúsið hefjast ekki fyrr en þær ívilnanir liggja fyrir.
For­svars­menn einka­sjúkra­húss­ins sem reisa á í Mos­fellsbæ upp­lýsa ekki um nöfn fjár­festa fyrr en sótt verður um skattaí­viln­anir til íslenska rík­is­ins vegna fram­kvæmd­ar­innar. Fram­kvæmdir við sjúkra­húsið hefj­ast ekki fyrr en þær íviln­anir liggja fyrir. Mynd: Wikipedia

Engar fram­kvæmdir verða hafnar við bygg­ingu einka­sjúkra­húss í Mos­fellsbæ fyrr en búið er að sækja um skattaí­viln­anir hjá stjórn­völdum. Þá verða nöfn fjár­festa heldur ekki gerð opin­ber fyrr en umsagn­irnar verða lagðar fram. Gögn um nöfn fjár­festa og mat frá við­skipta­banka verða lögð fyrir stjórn­völd og hafa for­svars­menn sjúkra­húss­ins frest til þess fram til 1. des­em­ber 2017. Þetta segja bæjastrjóri Mos­fells­bæjar og stjórn­ar­maður MCPB, sem stendur að fram­kvæmd­unum. Áætlað er að sjúkra­húsið muni kosta um 50 millj­arða króna. Landið er við Sólvelli í Mos­fellsbæ við Hafra­vatns­veg.

Ekki venjulegt fyrirtæki

Haraldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar, segir í sam­tali við Kjarnann að sú und­an­tekn­ing hafi verið gerð á samn­ingnum við MCPC að ekki verði lögð fram gögn um mat frá banka eða fjár­mála­stofnun áður en lóð­inni var úthlutað. Frestur var veittur til 1. des­em­ber 2017. Í úthlut­un­ar­reglum vegna bygg­inga­lóða í Mos­fellsbæ segir að umsækj­endur um lóðir skuli leggja fram mat frá við­skipta­banka eða fjár­mála­stofnun ásamt grein­ar­gerð umsækj­anda sjálfs um að við­kom­andi geti staðið undir þeirri fjár­fest­ingu sem áætluð er. Haraldur segir samn­ing­inn hafa verið gerðan með fyr­ir­vara um slík gögn, en þau þurfi að liggja fyrir í des­em­ber á næsta ári og nú vinni Capacent að gerð við­skipta­á­ætl­unar verk­efn­is­ins.

„Þetta er að mörgu leyti óvenju­legt verk­efni,“ segir hann. „Það er ekki eins og það sé verið að úthluta lóð til venju­legs fyr­ir­tækis.“

Ekki hægt að kaupa fyrr en ívilnanir fást

Gunnar Ármanns­son, stjórn­ar­maður Í MCPB, segir við Kjarnann að fram­kvæmdir geti ekki haf­ist fyrr en öll gögn liggi fyrir. Ástæðan fyrir fyr­ir­komu­lag­inu við Mos­fellsbæ, að lóðin sé fyrst leigð og síðan tryggður kaup­réttur á land­inu, sé sú að það standi til að sækja um íviln­anir til íslenska rík­is­ins í sam­ræmi við lög.

„Ef búið er að fara af stað í verk­efnið áður en umsóknir eru lagðar inn, fást ekki þær ívinln­anir,“ segir Gunnar. „Við gátum því ekki byrjað á því að kaupa landið.“

Þarf að skila öllu inn til ráðuneytisins

Ekki liggur fyrir hverjir standa að baki hol­lenska fjár­fest­inga­sjóðnum sem leggja til fé í verk­efnið en Gunnar segir að um leið og form­legt umsókn­ar­ferli fari af stað til íslenskra stjórn­valda vegna íviln­ana, verði það allt saman upp­lýst.

„Við höfum ekki haft áhyggjur af því að upp­lýsa neitt þegar við sækjum um íviln­anir,“ segir hann og bendir þar á reglur iðn­að­ar­ráðu­neyt­is­ins sem lúta að slíkum umsóknum. Það þurfi að skila inn við­skipta­á­ætl­unum, rekstr­ar­á­ætl­unum, upp­lýs­ingum um alla eig­endur og hvaðan féð kemur sem eigi að fara í verk­efnið.

Ekki hægt að sækja um leyfi fyrirfram

„Umræðan í kring um þetta fór gríð­ar­lega hratt af stað. Fólk virð­ist halda að við höfum ætlað að byggja fyrst og spyrja svo, sem er algjör­lega út úr kort­inu.“ segir hann. „Stað­reyndin er sú að það er ekki hægt að sækja um leyfi fyr­ir­fram í svona verk­efni, en það þarf auð­vitað að vinna þetta í sam­vinnu við bæj­ar­yf­ir­völd á staðnum og í fullri sátt og sam­vinnu við heil­brigð­is­yf­ir­völd.“

Fram hefur komið að hvorki land­læknir né heil­brigð­is­ráð­herra hafi vitað af áformum um bygg­ingu spít­al­ans fyrr en þeir heyrðu af því í fjöl­miðlum. Gunnar segir að áætlað sé að fá hingað alþjóða­vott­un­ar­að­ila til sam­vinnu frá upp­hafi og land­læknir verði stöðugt upp­færður um gang mála.

„Þegar þetta verður til­búið verður búið að upp­fylla alla staðla og þá getur land­læknir votta þetta með íslenskum lögum,“ segir hann. „Það er eng­inn að fara að henda 50 millj­örðum í svona verk­efni án þess að fylgja íslenskum lögum.“

Skilur vel að fólk sé hrætt við huldumenn

Þá liggi fyrir boð hjá heil­brigð­is­ráð­herra og heil­brigð­is­yf­ir­völdum til þess að fara yfir málið.

„Þetta er algjört lyk­il­at­riði. Ég skil vel að fólk sé hrætt við huldu­menn sem eng­inn veit hver er, nýbúið að upp­lifa hrun með huldu­mönnum, Wintris og Panama­skjölum. Þetta hefur nátt­úru­lega verið með ólík­indum“ segir hann. Spurður hvers vegna það sé ekki upp­lýst strax hverjir fjár­fest­arnir séu segir hann að það sé talið eðli­legt að upp­lýsa við­eig­andi yfir­völd um það fyrst.

„Bankar geta ekki upp­lýst um við­skipta­vini sína nema við við­eig­andi yfir­völd. Það er í raun og veru ein­falda svarið og það er ekk­ert óvið­eig­andi við það,“ segir hann. „Þegar við sækjum um íviln­anir verður allt upp­lýst.“

Getur verið að umræðan drepi verkefnið

Haraldur bendir á að það sé verið að koma með gíf­ur­legt fjár­magn af pen­ingum inn í landið til verk­efn­is­ins, um 50 millj­arða króna, og það þurfi að fara í gegn um Seðla­bank­ann og það taki tíma að fara í gegn.

„Þess vegna var þessi frestur gef­inn,“ segir hann. Spurður hvort hann sé bjart­sýnn að spít­al­inn verði að veru­leika seg­ist hann hvorki bjart­sýnn né svart­sýnn. Mikil umræða hafi farið af stað í kring um fregnir af spít­al­anum, bæði í fjöl­miðlum, meðal almenn­ings og hjá stjórn­mála­mönnum.

„Svo getur vel verið að umræðan sem hefur skap­ast í kring um þetta drepi verk­efnið. Það getur vel farið svo.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár