Dagsetning fyrir kosningar veiti stjórnarandstöðunni vopn í hendur

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir engan fram­sókn­ar­mann geta boðið sig fram gegn sitj­andi for­manni. Hann vill fá Sigmund Davíð af krafti inn í bar­átt­una á ný. Hann segir að dag­setn­ing fyrir kosn­ingar veiti stjórn­ar­and­stöð­unni vopn í hendur.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir engan Fram­sókn­ar­mann lík­legan til þess að bjóða sig fram sem for­mann gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni.

„Ég vil fá Sigmund Davíð af krafti inn í bar­átt­una á ný til að leiða flokk­inn,“ sagði Gunnar Bragi í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. „Ég er sann­færður um að hann verði for­maður, enda sé ég engan annan sem ætlar að taka við eða getur tekið við.“

Annað mál ef Sigmundur stígur til hliðar

Gunnar Bragi var þá spurður út í áform Eyglóar Harð­ar­dóttur, sem hefur ekki úti­lokað að bjóða sig fram gegn honum. Gunnar Bragi sagði þá að Eygló hefði sagt að Sig­mundur væri for­maður og á meðan svo væri þá mundi hún styðja hann.

„En ef hann ákveður að stíga til hliðar er það annað mál og þá eru eflaust fleiri sem færu að hugsa sig um,“ sagði Gunnar Bragi. 

Gunnar Bragi og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra fóru á fund Sig­mundar á heim­ili hans í síð­ustu viku. Bæði sögðu ekk­ert óeðli­legt við fund­inn og Gunnar Bragi sagð­ist í Morg­un­út­varp­inu oft heim­sækja „aðra ráð­herra“ á heim­ili þeirra.

Glapræði að ákveða kjördag

Varðandi orð sín í Morg­un­blað­inu í gær um að stjórn­ar­and­staðan væri frek að biðja um dag­setn­ingu fyrir kosn­ingar og hvers vegna ekki væri búið að ákveða kjör­dag, sagði Gunnar Bragi að það væri algjört glapræði að ákveða kjör­dag strax. 

„Um leið og dag­setn­ing kemur verður stjórn­ar­and­staðan komin með ákveðið vopn í hend­urnar,“ sagði hann og bætti við að stjórn­ar­and­staðan gæti þá tekið þingið í gísl­ingu, tafið með mál­þófi og komið í veg fyrir að mál kæmust í gegn. „Um leið og stjórn­ar­and­staðan er til í að vinna með okkur, þá fær hún kjör­dag,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár