Pokémon Go er viðhengi við raunveruleikann og höfðar til frumeiginleika mannsins

Pokémon Go er svo vin­sæll tölvu­leikur að vef­þjónar leiks­ins höndla ekki alla þá sem vilja spila.

Pokémon-æði hefur gripið um sig í heiminum.
Pokémon-æði hefur gripið um sig í heim­inum. Mynd: EPA

„Venusaur, Charizard, Bla­stoise, Pikachu og fleiri Pokémon-skrímsli hafa fund­ist á jörðu.“ Svona er hinn geysi­vin­sæli Pokémon Go-leikur kynntur á AppStore-verslun Apple í snjall­símunum. Leik­ur­inn er orð­inn að eins­konar „költi“ og það er ekki í fyrsta sinn sem Pokémon nær slíkum vin­sældum. Risa stór mót eru haldin á fólkvöngum og fátt annað virð­ist kom­ast að í umfjöllun fjöl­miðla, nema þá kannski stöku valda­rán og hvíta­birnir.

Leik­ur­inn kom út í Banda­ríkj­unum, Ástralíu og Nýja Sjálandi 5. júlí síð­ast­lið­inn og varð strax feyki­vin­sæll; svo vin­sæll raunar að vef­þjón­arnir sem hýsa leik­inn höfðu ekki undan umferð­inni svo ákveðið var að fresta útgáfu leiks­ins í Evrópu og víðar. Leik­ur­inn hafði verið sóttur 7,5 milljón sinnum 11. júlí og spil­arar skráðu sig inn í að með­al­tali 43 mín­útur á dag.

Leik­ur­inn varð svo aðgengi­legur í íslenskum app­versl­unum rétt fyrir helgi. Blaða­manni Kjarnans hefur hins vegar ekki tek­ist að prófa leik­inn því enn anna vef­þjón­arnir ekki umferð.

Það kemur ekki að sök hér, enda hefur verið nóg rætt um gang leiks­ins og hvernig ung­menni virð­ast ráfa stjórn­laust um allt í leit að Pokémon-skrímslum til að veiða. Skrímslin birt­ast á skjánum hjá þeim sem veiðir. Veiði­menn­irnir hafa þá þegar fundið þau á korti og þurfa að leita leiða til að kom­ast að felu­stað skríms­is­ins.

Raunveruleikaviðhengi

Leik­ur­inn er þess vegna eins konar við­bót við raun­veru­leik­ann og snjall­sím­inn orð­inn að glugga inn í ver­öld sem við sjáum ekki með berum augum. Niantic, fyr­ir­tækið sem fram­leiðir leik­inn, hefur áður feng­ist við svipað við­fangs­efni í snjall­síma­leiknum Ingress sem kom út árið 2013. Í þeim leik virð­ast yfir­nátt­úr­legir hlutir hafa gerst á jörð­inni og er það hlut­verk spilar­ans að púsla saman vís­bend­ingum og kom­ast að leynd­ar­dóm­inum.

Niantic varð til sem nýsköp­un­ar­deild innan Google árið 2010. Þá hafði John Hanke, yfir­maður í korta­deild hug­bún­að­ar­ris­ans, lýst áhuga sínum á að róa á önnur mið og halda áfram að búa til nýja hluti. Í stað þess að missa Hanke úr fyr­ir­tæk­inu var ákveðið að búa til nýja deild í kringum hann þar sem hann gæti sinnt hugð­ar­efnum sínum og búið til nýjar vörur með mátt Google á bak við sig.

„Ég er búinn að gera allt sem hægt er til að stilla þessu upp eins og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki,“ sagði Hanke í við­tali við Fastcompany.com árið 2013 um það leyti sem Ingress kom fyrst út. Það sem var óvana­legt við þetta nýsköp­un­ar­verk­efni innan stór­fyr­ir­tækis var að honum var frjálst að gera hvað sem honum lang­aði, án þess að það væri tengt þeim vörum sem Google þurfti til að halda sínum stalli í tækni­heim­inum.

Þetta sprota­fyr­ir­tæki innan Google byrj­aði þess vegna án vöru. Hanke hafði ein­ungis hug­mynd um hvað honum lang­aði að gera. Fyrst urðu til verk­efni sem byggðu á korta­grunni Google, kannski eðli­lega miðað við fyrra starf Hanke sem yfir­maður korta­deild­ar­innar. Field Trip-appið lét ferða­langa vita þegar þeir fóru fram­hjá merki­legum stöðum eða kenni­leitum og birti á skjánum fróð­leik um það sem fyrir augum bar.

„Leið­ar­vísir­inn þinn að töff, földum og ein­stökum hlutum í heim­inum umhverfis þig,“ segir ein­hver­staðar í kynn­ing­ar­efni fyrir Field Trip. Gögnin sem hver not­andi bjó til í því appi urðu á end­anum mik­il­væg fyrir Google til að full­komna kortin á Google Maps og til að læra á göngu­hegðun fólks.

En þegar eign­ar­hald Google var end­ur­skipu­lagt undir nafn­inu Alphabet í sept­em­ber árið 2015 fékk Niantic sjálf­stæði frá skap­ara sínum. Stuttu síðar var komin stór fjár­fest­ing frá Google, Nintendo og The Pokémon Company svo Niantic gæti haldið áfram að þróa raun­veru­leika­við­hengið sitt.

Hvað er málið með Pokémon?

Fjár­fest­ingin nam 30 millj­ónum doll­ara, eða því sem nemur rúm­lega 3,7 millj­örðum íslenskra króna. Til sam­an­burðar hefur íslenska sprota­fyr­ir­tækið Plain Vanilla fengið ríf­lega fjög­urra millj­arða króna í fjár­fest­ingar frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins. Leik­ur­inn er frír í app­versl­unum en not­endum býðst að eyða pen­ingum í app­inu með því að kaupa sér PokéCoins, eins­konar spila­pen­inga, sem gjald­gengir eru í leiknum.

Leik­ur­inn er þegar far­inn að hafa áhrif á hluta­bréfa­verð eig­enda leiks­ins. Japanski tölvu­leikja­fram­leið­and­inn Nintendo á 32 pró­sent hlut í verk­efn­inu en hluta­bréfa­verðið hefur hækkað um 49 pró­sent síðan leik­ur­inn kom út. Nintendo hefur átt erfitt upp­dráttar und­an­farin ár eftir að snjall­síma­leikir náðu yfir­hönd­inni á tölvu­leikja­mark­að­inum.

Pokémon er hins vegar mun eldra hug­tak en snjall­sím­inn. Fyrir um 20 árum spil­uðu ung­menni og safn­arar með Pokémon-spil, og gera raunar enn. Pokémon Go-leik­ur­inn bætir við nýju lagi af raun­veru­leik­anum í þennan far­sæla leik.

Leik­ur­inn, hvort sem það er með spilum, á Nintendo Game Boy-leikja­tölvu eða í snjall­sím­anum, hefur flesta þá hvata sem góður tölvu­leikur þarf til að vera ávana­bin­andi og kalla á meiri spilun. Quatric Foundry, fyr­ir­tæki sem greinir tölvu­leiki og notkun þeirra, greinir þessa hvata sem: aðgerðir, félags­þátt­taka, leikni, ein­beit­ing, sköp­un­ar­gáfa og við­ur­kenn­ing fyrir afrek.

Þetta síð­asta hefur ein­stak­lega mikið að gera með vin­sældir leikja og ann­arra snjall­for­rita. Margir þekkja fryggð­ina sem fylgir því að ná settu skrefa­tak­marki á dag, hvort sem það er á þar til­gerðu arm­bandi eða í sér­stökum skrefa­mæli í snjall­sím­anum. Það sama er með Pokémon þar sem fólk er verð­launað fyrir að fara víða og safna skrímslum og hvað eina. Þetta má jafn­vel heim­færa á aðra úti­vist; hvers vegna förum við í fjall­göngur eða í golf nema til að ná ein­hverju tak­marki.

Höfundur Pokémon-hug­mynd­ar­innar, Satoshi Tajiri, þótti til dæmis ofboðs­lega gaman að veiða skor­dýr þegar hann var ungur drengur í úthverfi Tokyo á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum. Það er raunar upp­runa Pokémon að finna; í skor­dýra­veiðum.

Framtíð snjall­tækja­tölvu­leikja er spenn­andi því það þykir nær aug­ljóst að fleiri leikir fylgi for­dæmi Ingress og Pokémon Go og noti alla tækni snjall­sím­anna í leik­inn. Ætli korta­teng­ing Pokémon Go sé bara brella eða hugs­an­lega fram­tíðin í snjall­síma­tölvu­leikjum? Slíkt verður tím­inn að fá að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár