Vigfús Bjarni mælist með mest fylgi utan þeirra sem hafnað hafa framboði

Vigfús Bjarni Albertsson.
Vigfús Bjarni Alberts­son.

Sjúkra­hús­prest­ur­inn Vigfús Bjarni Alberts­son, sem til­kynnti um síð­ustu helgi að hann ætl­aði að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands, mælist með tólf pró­sent stuðn­ing í nýrri skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis. Vert er að taka fram að svar­hlut­fall í könn­un­inni var mjög lágt. Kjarninn greindi fyrstur frá mögu­legu for­seta­fram­boði Vigfúsar Bjarna 17. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Mestan stuðn­ings mælist Katrín Jak­obs­dóttir með, en 25 pró­sent svar­enda vilja helst sjá hana á Bessa­stöðum. Katrín til­kynnti hins vegar í gær­morgun að hún myndi ekki gefa kost á sér í emb­ættið. Sitjandi for­seti, Ólafur Ragnar Grímsson, nýtur einnig tölu­verðs stuðn­ings þrátt fyrir að hafa til­kynnt í ára­móta­ávarpi sínu að hann muni ekki fara aftur fram. Alls segj­ast ell­efu pró­sent svar­enda enn styðja Ólaf Ragnar í starfið.

Ýmsir aðrir hafa verið að hug­leiða, bæði leynt og ljóst, fram­boð á und­an­förnum vikum og mán­uðum. Andri Snær Magnason rit­höf­undur sagði í við­tali við Frétta­blaðið í byrjun árs að hann væri að íhuga málið. Hann mælist með fimm pró­sent stuðn­ing í könnun miðla 365. Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, mælist með fjögur pró­sent stuðn­ing, en Davíð hefur ekk­ert gefið upp um hvort hann ætli í for­setaslag eður ei.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrrum vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði Kjarn­anum 23. febr­úar að hún væri að íhuga fram­boð og þeir sem þekkja til segja að Þor­gerður Katrín hafi m.a. viljað bíða eftir nið­ur­stöðu Katrínar Jak­obs­dóttur áður en hún til­kynnti um sína ákvörðun. Stuðn­ingur við hana sem for­seta er þrjú pró­sent, sam­kvæmt könn­un­inni. Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur einnig verið sterk­lega orð­aður við fram­boð. Hann mælist með tvö pró­sent stuðn­ing, eða jafn mik­inn og Ólafur Jóhann Ólafsson. Stuðn­ingur við Höllu Tóm­as­dóttur, sem á hefur verið skorað að bjóða sig fram, var einnig mældur. Hann reynd­ist eitt pró­sent. 

Þeir sem þátt tóku í könnun 365 miðla var boð­inn sá val­kostur að nefna aðra en þá sem spurt var beint um. Á meðal þeirra sem voru nefndir voru Jón Gnarr (tvö pró­sent), Ástþór Magn­ús­son (eitt pró­sent), Bogi Ágústs­son (eitt pró­sent), Salvör Nordal (eitt pró­sent), Sigrún Stef­áns­dóttir (eitt pró­sent), Stefán Jón Hafstein (eitt pró­sent), Þor­grímur Þrá­ins­son (eitt pró­sent), Þóra Arn­órs­dóttir (eitt pró­sent) og eng­inn (eitt pró­sent). Þá sögð­ust eitt pró­sent aðspurðra vilja leggja emb­ættið niður.

Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.082 manns þar til náð­ist í 794 dag­ana 8. og 9. mars. Svar­hlut­fallið var því 73,4 pró­sent. Svar­hlut­fall í könn­un­inni er mjög lágt. Alls tóku 39 pró­sent sem spurðir voru afstöðu til spurn­ing­ar­innar. Spurt var: Hvern viltu sjá sem næsta for­seta Íslands?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár