Vigfús Bjarni íhugar forsetaframboð eftir fjölmenna áskorun

Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur íhugar nú hvort hann muni bjóða sig fram til for­seta Íslands í næstu for­seta­kosn­ingum. Fjöldi manns hefur skorað á hann. „Kom mjög á óvart," segir hann.

Vigfús Bjarni Albertsson
Vigfús Bjarni Alberts­son

Hópur fólks hefur safnað miklum fjölda und­ir­skrifta til að skora á Vigfús Bjarna Alberts­son, sjúkra­hús­prest á Land­spít­al­anum, til að bjóða sig fram sem næsta for­seta Íslands. Vigfús Bjarni stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann. Hann hefur ekki tekið ákvörðun, en er að íhuga málið alvar­lega.

„Það er tölu­vert stór hópur búinn að vinna að þessu í ein­hvern tíma og ég stopp­aði það ferli ekki þegar ég heyrði af þessu. En ég hef ekki tekið ákvörðun,” segir hann. „Ég er mjög þakk­látur, þetta er vissu­lega mjög óvænt staða til að vera í. Mér hefur dottið ýmis­legt í hug í líf­inu, en þetta var svo sann­ar­lega ekki eitt af því.” 

Vigfús Bjarni seg­ist alltaf hafa viljað gera gagn og þykir vænt um að fólk sýni honum þetta traust. Þetta sé vissu­lega verð­ugt verk­efni til að gera eitt­hvað gott. Hann seg­ist munu skoða málið mjög alvar­lega þegar þar að kemur. Það velti alls ekki á hvaða aðrir fram­bjóð­endur stigi fram á sjón­ar­sviðið.

„Ef af verður, mun fram­boð mitt ekki verða póli­tískt, heldur þvert á allar slíkar stærðir,” segir hann.

Til stendur að birta áskor­un­ina á næst­unni og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er um að ræða mörg hund­ruð und­ir­skriftir sem nú þegar hafa safn­ast. Vigfús Bjarni hefur ekki séð list­ann og veit ekki hversu margar und­ir­skriftir er um að ræða.

„En ég ætla að skoða þetta alvar­lega og eiga sam­tal við þennan hóp sem stendur fyrir þessu,” segir hann. 

Vigfús Bjarni tók þátt í umræð­unni um sam­visku­frelsi presta, frelsi þeirra til að neita að gefa saman sam­kyn­hneigð pör, sem stóð hátt síð­ast­liðið haust. Vigfús Bjarni sagð­ist þá ætla að berj­ast fyrir því „sem prestur, kirkju­þings­maður, stjórn­ar­maður í Presta­fé­lagi Íslands, sem mann­eskja, að þetta hug­tak fái ekki stað­ist í þessu sam­hengi. Enn og aftur ætlar fámennur hópur að ógna sam­fylgd þjóðar og kirkju. Nei takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár