Tíu staðreyndir um Zika-veiruna

Starfsmaður Chacao sýslu í Venesúela dreifir skordýraeitri í skólastofu til að koma í veg fyrir útrbreiðslu zika-veirunnar í landinu
Starfs­maður Chacao sýslu í Venes­ú­ela dreifir skor­dýra­eitri í skóla­stofu til að koma í veg fyrir útrbreiðslu zika-veirunnar í land­inu Mynd: EPA

1 - Veiran greind­ist fyrst í apa í Úganda árið 1947. Fyrsta til­fellið sem greind­ist í manni var árið 1952. Síðan hafa flest til­felli greinst í Afríku, Suð­austur Asíu og á Kyrra­hafs­eyj­unum þar til far­ald­ur­inn braust út í Brasilíu 2015.

2 - Algeng­ustu ein­kenni Zika-veirunnar eru hiti, útbrot, verkur í liðum og roði í augum. Einungis einn af hverjum fimm sem eru með veiruna fá ein­kenni. Veiran sem slík er ekki mjög alvar­leg, ein­ungis þrír hafa lát­ist af hennar völdum í far­aldr­inum í Brasilíu. Alvar­leg­ustu afleið­ingar veirunnar er að finna í nýburum þegar móð­irin hefur verið sýkt, að því er talið er.

3 - Talið er að um ein og hálf milljón sé nú sýkt af veirunni, þar af um milljón í Brasilíu. Veiran hefur þó greinst í að minnsta kosti 20 öðrum löndum í Suður- og Miðam­er­íku og í Kar­ab­íska haf­inu eins og í Kólumbíu, El Salvador, Haítí, Hondúras, Mexíkó, Venes­ú­ela og Puertó Ríkó. 52 hafa greinst með veiruna í Banda­ríkj­unum. Öll til­felli voru tengd ferða­lögum. Þá hafa til­felli einnig greinst í Evrópu og Ástralíu.

4 - Zika-veiran dreif­ist með bitum moskítóflugna (Aedes aeg­ypti mosquito). Flug­urnar bíta mest á dag­inn og þá helst fætur og hendur fólks. Þær eru algengar um mest allan heim þar sem lofts­lag er heitt.

5 - Nýlega kom í ljós að veiran getur smit­ast milli fólks með kyn­mökum. Tilfelli greind­ist í Texas­fylki í Banda­ríkj­unum þar sem íbúi veikt­ist af veirunni eftir að hafa haft mök við smit­aðan mann.

6 - Talið er að veiran valdi svoköll­uðu höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni hjá fóstrum ef barns­haf­andi konur eru smit­aðar. Heil­kennið er alvar­legur fæð­ing­ar­kalli hjá nýburum. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að veiran hafi valdið um 4.000 til­vikum þess í Brasilíu árið 2015, sam­an­borið við 147 til­vik 2014. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa hvatt brasil­ískar konur til að seinka barn­eignum. Tengsl Zika-veirunnar og höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni hefur þó ekki verið sannað, þó að tengslin liggi fyrir. Staðfest eru meira en 400 til­felli barna með heil­kennið sem höfðu veiruna í blóð­inu. 

7 - Það verður ekki byrjað að bólu­setja gegn veirunni fyrir en eftir eitt og hálft ár. Um 15 fyr­ir­tæki og starfs­hópar vinna nú að þróun bólu­efn­is­ins og það er langt ferli, að sögn Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar.

8 - Miklar umræður hafa skap­ast um áhrif Zika-veirunnar á kom­andi ólymp­íu­leika í Rio de Janeiro, höf­uð­borg Brasilíu, í haust. Yfirvöld hafa lýst því yfir að hún eigi ekki að hafa nein áhrif og engin plön munu breyt­ast.

9 - Heil­brigð­is­yf­ir­völd víða um heim hafa ráð­lagt ófrískum konum frá því að ferð­ast til Mið- og Suður Ameríku, þar sem veiran er skæð­ust, á meðan far­ald­ur­inn geysar. 

10 - Brasil­ísk stjórn­völd ætla að ráð­ast í her­ferð gegn veirunni um helg­ina þar sem um 220.000 her­menn munu ganga á milli húsa og dreifa bæk­lingum og fræðslu­efni. Þá verða heim­ili fólks úðuð með eitri til að drepa moskítóflug­una og lirfur hennar sem dreifa veirunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár